Vísbending


Vísbending - 17.03.1994, Blaðsíða 3

Vísbending - 17.03.1994, Blaðsíða 3
er, eins og áður sagði, tilgreint hvaða þjónustu stofnun skuldbindur sig til að selja og hvað ráðuneyti skuldbindur sig til að kaupa. Við þessi breyttu vinnu- brögð skerpast öll samskipti stofnana og ráðuneyta. „Kaupandinn" veil betur en áður hvað hann er að kaupa og „seljandinn" getur sett fram skýrari markmið og áætlanir til að ná þeim markmiðum. Stjórnvöld verðaþannig betur upplýst um starf stofnana og stjórnmálamenn og skattgreiðendur geta fylgst með hvað stofnanir gera og hvernig þeim vegnar. I fjárhagsáætlunum nokkurra borga í Bandaríkjunum eru nákvæmlega tilgreind markmið tiltekinna stofnana. Sem dæmi um markmið er að stytta afgreiðslutíma, fjölga afgreiddum málum o.þ.h. Sörnu sögu er að segja frá Norðurlöndunum þar sem voru t.d. sett þau markmið í samning að meðal- afgreiðslutími yrði styttur úr sex ntán- uðum í þrjá og í öðrum samningi að framleiðni stofnunar ykist um 4% á einu ári. í fjárhagsáætlun sveitarfélags eða fjárlögum ríkisins er stofnun því ekki Iengur eingöngu nafn á blaði þar sem einungis er tilgreindur kostnaður við reksturinn, heldur eru birt markmið og það hvernig stofnuninni hefur tekist til við að ná þeim í samanburði við árin á undan. I framtíðinni eiga fjárlög ís- lenska ríkisins að endurspegla þetta. Undir liðnum „Landgræðsla ríkisins" væri því t.a.m. tilgreint hversu marga hektara var og verður sáð í. Það er í sjálfu sér ekki stofnunin sem skatt- borgararnir eru að greiða fyrir heldur þau verkefni og sú þjónusta sem hún veitir. Þannig á að láta verkin tala í opinberum rekstri. Með þessu gela stjórnvöld betur áttað sig á því hvort hægt er að kaupa tiltekna þjónustu á lægra verði annars- staðar. Þannig stuðlar samningsstjórn- un að því að efla samkeppnisvitund stofnana. Stjórnendur vita að ef mark- miðin nást ekki, þjónustan versnar og framleiðni dregst sarnan, getur komið lil þess að ríkið kaupi þjónustuna af öðrunt þar sem því verður við komið. Þarna geta notendur þjónustunnar haft meira að segjaum gæði hennaren áður. Bretar hafa verið frumkvöðlar á þessu sviði með hugmyndum um „borgara- skrá“ (Citizen’s charter). / Ymis vandamál Mikil vinna er framundan í sam- ningsgerð við einstakar stofnanir og mikilvægt að vandað verði til þeirrar vinnu. Þau vandamál sem upp hafa komið, t.d. á Norðurlöndunum, eru m.a. að í ýmsum tilfcllum reyndist erfitt að skilgreina hvað stofnun var að selja. I þeim tilfellum höfðu stjórnvöld annað- hvort ekki ákveðnar hugmyndir um það hvað þau vildu kaupa eða erfitt reyndist að rnæla árangur. Þá má nefna að í nokkrum tilfellum jókst skrifræði til muna. Stjórnendur stofnana sátu yfir skýrslum til ráðuneyta og ráðuneytin skrifuðu beiðnir urn frekari upplýs- ingar. Mikilvægt er að hafa í huga að vitlausir mælikvarðar geta verið verri en engir. Afkastamælikvarðar eiga ekki að ýta undir afkastahvetjandi hegðun stjórnenda stofnana á sviðum sem gagnast skattborgurum lítið. í Bandaríkjunum voru t.d. notaðirmæli- kvarðar á borð við fjölda frágenginna skýrslna. Skattborgurum er sjaldnast greiði gerður með slíkum mælingum. Lokaorð Á undanförnum árum hafa einka- fyrirtæki leitað allra leiða til að auka antöst og draga úr tilkostnaði. Ríkis- valdið hefur jafnframt náð að hagræða í sínum rekstri. Það eru þó fjöldamörg viðfangsefni á sviði hagræðingar og bættrar stjórnunar hjá hinu opinbera sem enn á eftir að fást við. Þörf er á varanlegum aðgerðum til að auka skilvirkni í opinberum rekstri. Sant- ningsstjórnun er stór áfangi í þá átt. Höfundur er hagfrœðingur -----------«---«----«— Ritgerðasamkeppni Vísbendingar Vísbending hleypti nýlega af stokk- unum ritgerðarsamkeppni meðal stúd- enta í viðskiptafræði og hagfræði í Háskóla íslands. Markmiðið með keppninni er að hvetja nemendur til sjálfstæðra greinaskrifa og fá frant hugmyndirsem nýstgætu sent innlegg í umræðu urn hin ýmsu málefni sem tengjast viðskiptum og efnahagslífi. Vísbending hefurfráupphafi tengst Háskólanum töluvert þar sem kenn- arar við skólann hafa verið ötulir við að skrifa íblaðið á undanförnum árum og nemendur hafa nýtt sér það í ríkum mæli lil þekkingaröflunar og við verkefnavinnu. Keppnin er liður í að viðhalda þeirn tengslum. Glæsilegverðlaunverðaveitt. Sigur- vegarinn fær 50.000 krónur auk þess sem grein hans verður birt í blaðinu. Fyrir önnur verðlaun verða veittar 25.000 krónur og 10.000 krónur fyrir þriðju verðlaun. Allarnánari upplýs- ingar unt keppnina fást á skrifstofu viðskipta- og hagfræðideildar Há- skólans. ISBENDING Sala ríkisfyrir- tækja: hugsjón eða hagsmunir? / Aundanförnum misserum hefur hugmyndum um einkavæðingu opinberra fyrirtækja vaxið fiskur um hrygg svo um munar. Þetta á ekki ein- ungis við hér á landi heldur víða annars- slaðar í Evrópu. Almenn trú evrópskra stjórnmála- manna á velferðarkerfið og „hæfileg“ ríkisafskipti á síðustu áratugum hefur skilið eftir sig marga minnisvarða í formi óhagkvæmra ríkisfyrirtækja sem enn standaóhaggaðirí mörgum löndunt. Nú hafa stjórnmálamenn í Evrópu komist að því að hægt er að „lækna“ sívaxandi halla á opinberum rekstri, a.m.k. til skamms tíma(fyrirkosningar), með sölu ríkisfyrirtækja. Þannig rná leiða líkur að því að það sé meira af nauðsyn en hugsjón að einkavæðing hefurorðið töfraorðið meðal stjórnmála- manna upp á síðkastið. Af Evrópuþjóðum hafa Frakkar og Italir verið róttækastir í einkavæðingar- áformum sínunt að undanförnu. Á síðasta ári seldu Frakkar ríkisfyrirtæki fyrir um 67 milljarða dollara og Italir fyriról milljarð. Meðal þeirrafyrirtækja sem Frakkar hafa selt að undanförnu er Banque Nationale de Paris, annar frönsku ríkisbankanna sem seldur var í október á síðasta ári og Elf Aquitaine, stærsta olíufyrirtækið þar í landi en samningar um sölu á því stóðu yfir fyrir skemmstu. Þá hefur ekki verið minnst á sölu Renault bílaverksmiðjanna. Meðal þeirra fyrirtækja sem Italir hafa einka- vætt eða eru í þann mund að einkavæða er Credito Italiano, sjötti stærsti banki landsins, og tveir aðrir bankar, Instituto Mobiliareltalioog BancaCommerciale Ilaliana. Sala ríkisfyrirtækja í þessum tveimur löndum nentur hærri upphæð en í öllum hinum Evrópulöndunum samanlagt. Einn erfiðasti hjallinn í einkavæð- ingaráformum á Italíu og í Frakklandi hefur verið að brjóta upp hið pólitískt skipaða embættismannakerfi (forstjóra ríkisfyrirtækjanna). Þetta á sérstaklega við á Italíu þar sem stöðuveitingar hafa beinlínis verið skiptimynt í valdatafli stjórnmálaflokka. Neyðin hefur þó kennt nöktum stjórnmálamönnum á Italíu að spinna. I framhaldi af því má velta fyrir sér hvað hún þurfi að vera mikil hér á landi til að stjórnvöld gætu hugsað sér að selja ríkisbankana. --------,---«--«----- 3

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.