Vísbending


Vísbending - 24.11.1994, Blaðsíða 1

Vísbending - 24.11.1994, Blaðsíða 1
HISBENDING mrit um viðskipti og efnahagsmál 24. nóvember 1994 46. tbl. 12. árg. þessu ári eins og sést glöggt á meðfylgjandi mynd. Sjávarafurða- verð í SDR hefur t.a.m. hækkað um tæp 6% að meðaltali frá byrjun ársins samkvæmt Hag- vísum Þjóðhagsstofn- unar og álverð um tæp 60%, en þar hafa hækk- anirveriðævintýralegar að undanförnu eins og fram hefur komið í frétt- um. I þjónustuliðum hefur einkum orðið aukning í tekjum af samgöngum og vamar- liðinu. Þróun verðlags á helstu útflutningsafurðum og komur erlendra ferðamanna Vísitala Erlendir ferðamenn (br. frá áram., v. -ás) ifllthllll Álverð* (h.-ás) i Sjávarafurðaverð í SDR* (h.-ás) J FMAMJ J ASONDJ FMAMJ J ASON 1993 1994 * Vísitölur settarájanúar 1993=100. Heimild: Þjóðhagsstofnun / Hagvísar. Viðskipta- batinn eykur hagvöxt um 0,5-1% Sá bati sem orðið hefur í utanríkis- viðskiptum íslendinga á þessu ári mun að öllum líkindum leiða til þess að hagvöxtur verður talsvert meiri á árinu 1994 en Þjóðhagsstofnun gerði ráð fyrir í þjóðhagsáætlun sem lögð var fram með fjádagafrumvarpinu í byrjun október. Miðað við líklegar forsendurer ekki óvar- legt að áætla að aukning landsframleiðsl- unnar hér muni verða um eða yfir því sem spáð er í iðnríkjunum að meðaltali á þessu ári. Mikil aukning útflutnings- tekna á þessu ári Þjóðhagsstofnun gerði ráð fyrir að landsframleiðsla ykist um 1,9% á þessu ári. Spáin byggðist meðal annars á því að viðskiptin við útlönd yrðu hagstæð um rúma 3 miiljarða króna á árinu. Sam- kvæmt nýlegum tölum frá Seðlabank- anum bendir allt til þess að þróun viðskiptajafnaðarins verði mun hagstæð- ari en búist var við. Þannig var um 4,8 milljarða króna afgangur á vöru- og þjónustuviðskiptum á þriðja ársfjórðungi samkvæmt bráðabirgðatölum, og er viðskiptajöfnuðurinn þar með orðinn hagstæður um 9,3 milljarða á fyrstu níu mánuðum ársins. Hagstæðari þróun skýrist fyrst og fremst af auknumútflutn- ingstekjum, en þær jukust um 10,8% á föstu gengi frá ársbyrjun og fram til loka septembermánaðar miðað við sama tímabil á síðasta ári. Innflutningur jókst hins vegar einungis um 2,4% milli tíma- bila. Auknar útllutningstekjur hafa einkum myndast í vöru- viðskiptum. Utflutnings- verðmæti sjávarafurða, sem eru um 80% af öllum tekjum af vöruútflutningi, er 10,8% meira á föstu gengi en á sama tímabili í fyrra og verðmæti álsogkísiljárns 17,6%meira. Verðlag á þessum afurðum hefur farið mjög hækkandi á Hagvöxtur líklega um 3,2% Batinn í ulanríkisviðskiptum mun að líkindum einn og sér leiða til þess að landsframleiðslan eykst um 0,5-1,1 prósentustigfráþvísemÞjóðhagsstofnun áætlaði á þessu ári. Hversu mikil aukn- ingin verður nákvæmlega veltur á þróun viðskiptajafnaðarins til ársloka. Stærsti óvissuþátturinn þar liggur í vöruskipta- jöfnuðinunt, og þá einkum í útflutningi sjávarafurða. Þá eru samkvæmt Hagstofu Islands vísbendingar urn að vöruinn- flutningur vegna jólainnkaupa kaup- mannafari fyiTaf stað áþessu ári en ífyrra, sem gæti bent til meiri innflutnings. Miðað við líklegar forsendur um þróun vöruviðskiptannaogaðþjónustuviðskipti, að meðtöldum vaxtagreiðslum, fylgi svipaðri þróun og í fyrra, má gera ráð fyrir að viðskiptajöfnuðurinn verði á bilinu 9- 11 milljarðar fyrir árið í heild. í meðfylgjandi töflu eru birtar tölur um hagvöxt á þessu ári miðað við nokkrar forsendur um þróun viðskiptajafnaðar og þjóðarútgjalda. Tölurnar eru fengnar úr þjóðhagslíkani Vísbendingar. Eins og þar sést má búast við að hagvöxtur verði á bilinu 2,4-3,1 % ef forsendur Þjóðhags- stofnunar eru látnar standa óbreyttar að öðru leyli en því er varðar viðskiptajöfn- uðinn. Efhins vegarergertráðfyrirmeiri aukningu þjóðarútgjalda en stofnunin spáir, sem þá myndi einkum birtast í aukinni samneyslu og fjárfestingu, yrðu tölumar nokkuð hærri eins og sjá má, eða frá 3,0% og upp Í3,7%. Miðspá gerði ráð fyrir um 3,2% aukningu landsframleiðsl- unnar á þessu ári, en í henni felst að viðskiptajöfnuðurverði um 10 milljarðar króna og að jtjóðarútgjöld verði 0,5 prósentusdgum meiri en Þjóðhagsstofnun spáir. Til samanburðar má geta þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir því að hagvöxtur í iðnríkjunum verði 2,7% á þessu ári að meðaltali og 2,1% í ESB. ----------♦---♦---♦----- Vegna vinnslu 46. tölublaðs I þessu tölublaði var ætlunin að birta ítarlega þjóðhagsspá sem ritstjóri, ásamt umsjónarmanni þjóðhagslíkans Vísbend- ingar, Ottari Guðjónssyni, hafa unnið að um nokkurí skeið. S vo illa vildi hins vegar til að aðili sem Vísbending hefur haft viðskipd við braut trúnað við ritstjóra og nýtti sér að hluta til upplýsingar í eigin þágu sem honum voru veittar í tengslum við þessa vinnu. Hefur hann nú birt sam- bæiálega spá og ætlunin var að birta hér á síðum ritsins í eigin fjölmiðli, og hefur hún m.a. birst í dagblöðum og ljósvaka- miðlum. Vísbending býður áskrifendum sínum ekki upp á garnlar fréttirog var þ ví upphanegum áherslum breyttí meðfylgj- andi grein. Vísbending harmar vinnu- brögð af þessu tagi. • Hagvöxtur 0 Breyttar reglur vegna EES • Úrelding fiskiskipa Hagvöxtur árið 1994 m.v. nokkrar försendur uni viðskiptajöfnuð og þjóðarútgjöld Viðskiptajöfnuður 9 mrð. lOmrð. 11 mrð. ÞjóðartStgjöld skv. ÞHS (1,2%) 2,4% 2,7% 3,1% Þjóðarútgjöld aukast um 1,7% 3,0% 3,2% 3,4% Þjóðarútgjöld aukast um 2,0% 3,3% 3,5% 3,7% Heimild: Þjóðhagslíkan Vísbendingar/ Óttar Guðjónsson.

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.