Vísbending


Vísbending - 24.11.1994, Qupperneq 2

Vísbending - 24.11.1994, Qupperneq 2
Breyttar leikreglur á fjár- magnsmarkaði vegnaEES: Nýjar reglur um starfsemi verðbréfa- fyrirtækja Finnur Sveinbjörnsson / Ifyrstu tveimur greinunum í þessum greinaflokki var farið yfir þær laga- og reglugerðabreytingar sem framundan eru á sviði gjaldeyrismála, sviði fjár- festingar erlendra aðila og í bankamálum vegna aðildar íslands að EES. í þessari lokagrein verður fjallað um nýjar reglur um starfsemi verðbréfafyrirtækja. Nýlegar lagabreytingar í EES-samningnum er gert ráð fyrir samræmdum reglum um verðbréfasjóði og kauphallarviðskipti. Þessum reglum var hrint í framkvæmd hér á landi með setningu laga urn verðbréfasjóði og Verðbréfaþing Islands á síðasta ári og setningu reglugerða viðskiptaráðu- neytisins, reglna Seðlabanka íslands og Verðbréfaþings Islands á grundvelli þessara laga í fyrra og í ár. Hins vegar hafði ESB enn ekki samþykkt samræmdar reglurfyrirstarfsemi verðbréfafyrirtækja. Ólíkt bönkum, sparisjóðum og öðrum lánastofnunum hefur hinn sameiginlegi markaður ESB enn sem komið er ekki náð til verðbréfafyrirtækja. Svipaðargrundvallarreglur oghjálánastofnunum I „viðbótarpakkanum" við EES-samn- inginn eru tvær tilskipanir er lúta að stofnun og starfsemi verðbréfafyrirtækja (sjá töflu). Eftir gildistöku þeirra munu svipaðar grundvallarreglur gilda urn verðbréfafyrirtæki og nú gilda um banka, sparisjóði og aðrar lánastofnanir. I þeim felst að starfsleyfi útgefið í einu ríki gildir í öllum hinum ríkjunum, heimilt verður að opna útibú í öðrum ríkjum án þess að þurfa til þess sérstakt leyfi, eða veita þjónustu án þess að stofna þar dóttur- fyrirtæki eða opna útibú. Þá verður öll starfsemi verðbréfafyrirtækjaundireftirliti eftirlitsaðilaíheimarfkinu án tillits til þess hvarhún ferfram. Einnig munu verðbréfa- fyrirtæki þurfa að uppfylla sömu eigin- fjárkröfur og bankar, sparisjóðir og aðrar lánastofnanir. Stofnun og starfsemi verð- bréfafyrirtækja í tilskipun um fjárfestingarþjónustu (ISD) erkveðið á um stofnun og starfsemi yerðbréfafyrirtækja og eftirlit með henni. Akvæðum tilskipunarinnar um rnörg þessara atriða s vipar til hliðstæðraákvæða í tilskipunum um stofnun og starfsemi banka,sparisjóðaogannarralánastofnana. Aðildarríkin verða að hafa breytt lögum og reglum til samræmis við ákvæði ISD fyrir l.júlí 1995. Breytingamarþurfa að taka gildi í síðasta lagi í árslok 1995. Þótt ýmis af ákvæðum ISD hafi verið til í drögum þegar lög um verðbréfaviðskipti hér á landi voru sett í fyrra og tillit tekið til þeirra að nokkru leyti, er engu að síður ljóst að breyta verður þessum lögum að einhverju ntarki. ÍSBENDING frá fjárfestingarverðbréfum. Þessi nýja eiginfjárkrafa kemur til viðbótar við þær eiginfjárreglur sem í gildi eru (BIS- reglumar) sem einungis endurspegla þá áhættu sem felst í því hver útgefandi skuldbindingar er. Grundvallarhugmyndin í nýju eigin- fj árreglunum er sú að greina á milli áhættu- tegunda fyrir hverj a einustu skuldbindingu í viðskiptabókinni og að reikna út eigin- fjárkröfu fyrir sérhverja áhættutegund. Heildareiginfj árkrafa er s vo fundin út með því að leggja saman eiginfjárkröfu vegna hverrar áhættutegundar. Ákvæðin um eiginfjárhlutfall verð- bréfafyrirtækja em að því leyti frábrugðin hliðstæðum ákvæðum um lánastofnanir að eigiðfé verðbréfafyrirtækja má í engum tilvikum nema lægri fj árhæð en sem s varar til 25% af föstum rekstrarkostnaði næst- liðins árs. Þörf róttækrar lagabreyt- ingar vegna eiginfjárkvaða Ný eiginfjárákvæði I tilskipun um eiginfjárkröfur fjárfest- ingarfyrirtækjaog lánastofnana (CÁD) eru settar grundvallarreglur á tveimur s viðum. Annars vegar er kveðið á um lágmarks- hlutafé og eigið fé verðbréfafyrirtækja. Aðildarríkin geta leyft allt að fimm tegundir verðbréfafyrirtækja sem hafa misrúmar starfsheimildir. Er þar um að ræða starfsheimildir sem eru allt frá því að vera mjög takmarkaðar, eins og starfsheimildir verðbréfamiðlara hér á landi, upp í það að vera alhliða verðbréfa- fyrirtæki. Gerðareru mismunandi kröfur um lágmarkshlutafé þeirra, eða frá 50.000 ekurn (rúmlega 4 m.kr.) upp í 730.000 ekur(rúmlega6l m.kr.). Til samanburðar má nefnaað skv. gildandi lögum skal lág- markshlutafé verðbréfafyrirtækis hér á landi nema 40 m.kr. Meðþessaritilskipunerveriðaðtryggja að verðbréfafyrirtæki lúti sömu eiginfjár- reglum og hingað til hafa gilt um banka, sparisjóðiog aðrarlánastofnanir, þ.e. svo- kölluðumBlS-reglum. Einnigerkomiðá þeirri nýjung að eiginfjárhlutfall verð- bréfafyrirtækja og lánastofnana eiga að endurspegla ýmiss konar áhættu vegna verðbréfa sem þessi fyrirtæki kaupa í því skyni að hagnast á markaðssveiflum. Þessi verðbréf eru sögð tilheyra svo- kallaðri viðskiptabók (e: trading book) ogeru nefnd veltuverðbréftil aðgreiningar Tilskipunin um eiginfjárkröfur kallar á róttæka breytingu á ákvæðum um eigið fé í lögum um verðbréfaviðskipti. I þeim er nú einungis kveðið á um lágmarkshlutafé verðbréfafyrirtækis en lögfesta verður ákvæði í líkingu við eiginfjárákvæðin í lögurn urn viðskiptabanka og sparisjóði. Þá er Ijóst að gera verður nokkrar breyt- ingar á eiginfjárreglum banka, sparisjóða og annarra lánastofnana. Það sama gildir um tilskipunina um eiginfjárkröfur og þá er varðar fjárfestingarþjónustuna: Breyta þarf lögum og reglum fyrir I. júlí 1995 og gildistakan skal í síðasta lagi vera í árslok 1995. Skráning verðbréfa í maí 1994 samþykkti ESB breytingu á tilskipun um samræmingu á kröfum um gerð, athugun og dreifingu á skráningar- lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru tekin til opinberrar skráningar á verð- bréfaþingi. Með þessari brey tingu er verið að auðvelda og hvetja til þess að verðbréf útgefin og skráð í einu aðildarrílti verði einnig skráð í öðru ríki. 1 október sl. var ákveðið að þessi breyting gilti einnig innan EES. Hér á landi er fj allað um þessi atriði í reglum Verðbréfaþings Islands . Höfundur er hagfrœðingur og skrif- stofustjóri í viðskiptaráðuneytinu. - Nýjar tilskipanir innan EES á sviði verðbréfaviðskipta Stytt heiti: Samþykkt EES: Nauðsynl. breytingar á innlendum reglum: Tilskipun um fjárfþjónustu „Viðbótarpakki" Ganga frá fyrir 1/7 '95. Gildistaka í árslok '95. Tilskipunumeiginfjárkröf. „Viðbótarpakki" Ganga frá fyrir 1/7 '95. Gildistaka í árslok '95. Tilskipun um skrán. verðbr. Varbreyttíoktóbersíðastliðinnum. 2

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.