Vísbending


Vísbending - 05.01.1995, Qupperneq 3

Vísbending - 05.01.1995, Qupperneq 3
ISBENDING Verðbólgu- horfur á árinu 1995 Helgi Tómasson s Iupphafi árs er hefð fyrir því að menn geri spár um ýmsa hluti. Hér fylgja nokkrar hugleiðingar urn hugsanlega verðbólguþróun á árinu. Til grundvallar liggur verðbólgulíkan sem notað hefur verið í Vísbendingu um nokkurra ára skeið. Líkanið byggir, eins og önnur íslensk verðbólgulíkön, á upplýsingum um þróun innlends og erlends verðlags, laun og gengi íslensku krónunnar fyrr og nú. Reiknifræðilega er innlend verð- breyting skýrð með breytingum í hinum stærðunum ásamt samhengi innlends verðlags við erlent með svokölluðum „error-correction“ lið. Einnig er bætt við ARMA-afgangslið til að ná fram skamm- tímasveiflum íverðlagi. Líkanið er metið með Kalman-filter aðferðum á ársfjórð- ungslegum gildum breytanna síðastliðin 25 ár. Staðalfrávik spáskekkju er u.þ.b. 1,8% á ársfjórðungi. Samband verðbreytinga við skýri- stærðirnar hefur haldist nær óbreytt yfir tímabilið. Breytingar eru þær helstar að líkanið spáir heldur betur á seinni hluta tímabilsins heldur en á því fyrra (þ.e. staðalfrávik spáskekkju er minna). Þrjú dæmi um hugsanlega þróun á árinu Nýbyrjað ár er kosningaár og kjara- samningar eru lausir. Þessi tvö atriði hafa í Islandssögunni þótt uppskrift að ólgu og óstöðugleika. Hér á eftir eru dregin upp þrjú dæmi um þróun atburða og er verðbólguspá reiknuð samkvæmt því. 1) Kjarasamningar gefa 4% almenna kauphœkkun í upphafi árs og2%á miðju ári. 2) Kjarasamningar gefa 10% almenna kauphœkkun í upphafi árs og3%á miðju ári. 3) Sama og önnur forsendan nema 5% gengisfelling kemur á miðju ári Dæmi 1) er valið af þeirri ástæðu að ríkið bauð 4% hækkun í samningum við sjúkraliða fyrir skemmstu og er því e.t.v. búið aðfallastáalmennahækkun. Dærni 2) er einskonar gjaldþrotaleið (eða Fær- eyjaleið) þar sem atvinnuvegum er haldið gangandi með lántökum. Dærni 3) er gamalkunn íslensk kollsteypuleið þar sem kaupmáttur er skertur með gengis- aðlögun. Niðurstöður spáa samkvæmt þessum forsendum eru sýndar í með- fylgjandi töflu. Spá um framfærsluvísitölu ársins 1995 (meðaltal á ársfjórðungi) (1) (2) (3) 94.1V 171 171 171 95.1 172 172 172 95.11 175 178 178 95.III 177 182 185 95.IV 179 184 188 96.1 180 186 191 1) 4% launahækkanir 2) Gjaldþrotaleið 3) Kollsteypuleið Samkvæmt töflunni verður verðbólga ársins á bilinu 5-11% ef forsendur um þróun launa og gengis verður á því róli sem um getur í forsendum 1-3. Erlendu verðlagi var spáð með AR-líkani fyrir framfærsluvísitölu helstu viðskiptalanda. s Ahrif lækkunar virðisauka- skatts á matvælum Líkanið hér að ofan hefði spáð 3-5% verðbólgu á árinu 1994 en verðbólgan mældist innan við 1% eins og kunnugt er. I kjarasamningum síðustu ára hafa menn samið urn beinar launahækkanir en í ársbyrjun 1994 var hins vegar virðisaukaskattur á mörgum tegundum matvæla lækkaður. Túlka má hluta af spáskekkju líkansins fyrir árið 1994 sem afleiðingu af lækkun virðisaukaskatts á mat. Þessi lækkun kom til vegna samn- inga ríkisvalds og aðila vinnumarkaðar sem líklega hafa gert það að verkum að gengisfellingin í lok ársins 1993 skilaði sér aðeins að hluta út í verðlagið. Svigrúm í vörum sem bera háa, óbeina skatta I dæmunum hér að ofan staðfestast þau sögulegu sannindi að kaupmáttur launa eykst ekki í beinu hlutfalli við hækkun taxta. Við þetta bætist að hækkun launa mun samstundist breyta lánskjaravísi- tölunni og hækka höfuðstól skulda og greiðslubyrði. Þaðerþvíöllum hugsandi einstaklingum ljóst að kaupmáttur mun ekki aukast við háar taxtahækkanir. Þær munu þýða ólgu og óvissu á fjármagns- markaði með tilheyrandi vaxtahækkun- um. Ef menn minnast þess að á árinu 1994 tókst heimilum að víkja sér undan áhrifum gengisfellingarinnar í árslok 1993 með samningunt sem höfðu bein áhrif á vísitöluna eins nefnt var að ofan er hugsanlegt að slíkt verði reynt aftur. Ofanritaður telur ólíklegt að farið verði út í að hringla með vísitöluna sjálfa því slíkt grefur undan trausti á íslenskum fjármagnsmarkaði og atvinnulífi. Heimili, fyrirtæki og ríki þurfa að hafa aðgang að fjármagni. Svigrúmið til lækkana á einstökum þáttum framfærslu vísitölunnar er í vörum sem nú bera háa, óbeina skatta. Hugsan- legt er að menn finni leið 4) og horfi til matvæla sem bera mörg hundruð prós- enta vörugjald eða þá að bílaskattar verði lækkaðir. Bíllerdýrvarasembermikinn skatt og innflutningur bíla síðustu ár hefur verið of lítill til að halda í horfinu með fjölda bíla í landinu. Þannig mætti áreiðanlega finna svigrúm til að hnykkja vísitölunni til á þann hátt sem tölfræðilegt líkan eins og lýst er að ofan getur ekki séð fyrir. Líkleg þróun Hvaðastefnaerlíklegust? Leiðir l)og 4) fela ekki í sér nægjanlegar hetjudáðir fyrir forystumenn stjórnmálaflokka og verkalýðsfélaga. Ofanritaður telur að Islendingarhafi meiri fjármálalegaábyrgð en Færeyingar og útilokar því leið 2). Ný ríkisstjórn mun að afloknum kosningum ekki fresta vandanum til seinni hluta kjörtímabilsins. Hún mun vilja taka á vandanum strax eftir kosningar og vona að kjósendur verði búnir að gleyma því fyrirnæstu kosningar. Höfundurþessarar greinar veðjarþví á leið 3) og aðhugsan- legur efnahagsbati vegna gengisfellingar fari beint í eyðslu en ekki til lækkunar á halla ríkissjóðs. Þetta er leið sem enginn er hrifinn af en kosningar fara í hönd, flest verkalýðsfélög eru með lausa samninga og slík staða er frjór jarðvegur fyrir hasar á vinnumarkaði. Samkvæmt þessu ber að ráða fólki sem vill varðveita sparifé sitt að velja verðtryggð sparnaðar- form. Jafnframt ber að ráða þeirn sem þurfa að borga eitthvað á árinu og eiga verðtryggð bréf, spariskírteini eða húsbréf, að losa sig við þau því hætt er við að afföll af þeim verði ntikil vegna hærri vaxta. Höfundur er tölfrceðingur 3

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.