Vísbending - 16.08.1996, Qupperneq 1
V
Vi k u
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
16.
ágúst
1996
30. tbl. 14. árg.
Tekjur dragast saman, en minni afskriftir
Afskriftir1 (vinstri kvarði milljarðar króna) og arðsemi eiginfjár
(hægri kvarði %) hjá sjö stærstu innlánsstofnunum 1990-95
10
5
5
0
4
3
1990 1991 1992 1993 1994 1995
'Á verðlagi desember 1995 skv. vísitölu neysluverðs
Heimild: Ársreikningar og útreikningar Vísbendingar
Innlánsstofnanir 1995
Hagnaður sjö stærstu innláns-
stofnana var rúmlega einn
milljarður króna í fyrra og arð-
semi eiginfjár 5,6% að meðaltali, en
hagnaður árið 1994 var rúmlega hálfur
milljarður og arðsemi eiginfjár um 3%.
Sem fyrr var afkoma sparisjóða í heild
betri en bankanna þriggja. Astæða
þessarar bættu afkomu er fyrst og fremst
minni afskriftir, en þessar sjö stofnanir
lögðu 2,6 milljarða í afskriftasjóð í fyrra
sem er 1,6 milljarði minna en árið áður.
Hins vegar þyngdist reksturinn sjálfur,
tekjur minnkuðu um 8% og gjöld, fyrir
utan afskriftir, jukust um 1%. Þannig
skilaði rekstur fyrir afskriftir einum
Tekjur' á hvert stöðugildi við
bankastörf (milljónir króna á
verðlagi2 des. 1995)
1995 1994 Breyting
Landsbanki 6,4 6,7 -5,1%
Búnaðarbanki 6,3 6,4 -1,5%
Islandsbanki 6,0 6,8 -11,8%
SPRON 7,3 6,9 6,4%
Sparisj.vélstj. 9,0 7,9 14,0%
Sparisj.Hafnarfj. 9,0 8,4 7,3%
Sparisj.íKeflavík 6,8 8,1 -15,4%
Sunitals 6,4 6,8 -5,8%
Bankakerfið í heild þurfti að taka á sig
aukinn kostnað á síðasta ári vegna nýrra
kjarasamninga bankamanna og jukust
laun og tengd gjöld um 4,5% að meðal-
tali. Launahækkanirnar koma á sama
tíma og framleiðni bankastarfsmanna
minnkar, þ.e. tekjur á hvert stöðugildi.
En eins og sést af töflu þá minnkaði fram-
leiðnin um 6% að meðaltali á milli ára.
Þessi aukning launakostnaðar hlýtur að
þrýsta á um að stöðugildum skuli fækkað
enn frekar. Einnig væri góð hugmynd að
koma á einhverju afkastahvetjandi
launakerfi eins og tíðkast hafa hjá
mörgum fyrirtækjum.
Athugasemd: Ekki reyndist unnt að draga
gengishagnað eða -tap af verðbréfum frá tekjum
vegnaþess aðársreikningargáfuekki allirþessar
upplýsingar. Hins vegar hafa þessar óreglulegu
tekjur áhrif. T.d. var íslandsbanki með 6,5 millj.
kr. tekjuráhvertstöðugildi 1994og6,l mill. kr.
á hvert stöðugildi 1995 ef gengisbreytingar
veltuskuldabréfa eru teknar út.
’Tekjur af hlutdeildarfélögum eru ekki meðtaldar
. 2Miðað er við visitölu neysluverðs_______
milljarði minna en árið á undan. Eins og
sjá má af forsíðumynd hafa nefndar sjö
stofnanir, teknar sem heild, náð aftur fyrri
arðsemi sem þær höfðu áður en hrina af-
skrifta og útlánatapa reið yfir. Hitt er þó
vafaatriði hvort sú arðsemi hafi verið
viðunandi.
Minni tekjur
Vaxtamunur (hreinar vaxtatekjur)
minnkaði um 4% að raunvirði á milli
ára. Samdrátturinn var mestur hjá Is-
landsbanka 9%, en aftur á móti jukust
hreinar vaxtatekjur um 11,5% hjá Spari-
sjóði vélstjóra. Hins vegar drógust aðrar
tekjur bankanna, s.s. af þóknunum, enn
meira saman eða um 10% að raunvirði á
milli ára. Hlutfall vaxtatekna var 68% af
heildartekjum 1995, en 61% árið áður.
Minnkandi tekj ur hlj óta að vera áhyggju-
efni, t.d. voru tekjur íslandsbanka um
15% minni nú en árið á undan og 8%
minni hj á Landsbankanum. Þá má einnig
benda á að þó að tveir sparisjóðir, Sp.
vélstjóra og SPRON, auki tekjur sínar
umtalsvert, þá drógust tekjur sömu spari-
sjóða saman árið á undan, þannig að
síðustu tvö árin hafa tekjur þeirra hcldur
minnkað en aukist. Líklega rnunar hér
mestu að þóknanir vegna gjaldeyrisvið-
skipta féllu niður í upphafi árs, en það
virðist þó auðsælt að afskaplega erfitt
verður fyrir innlánsstofnanir að auka
tekjurnæstu árin. Vaxtamunurhefurfarið
minnkandi og mun væntanlega gera það
áfram sökum aukinnar samkeppni, bæði
hvað varðar útlán og innlán. Það hljóta
þóknunartekjur að gera einnig en flestöll
tækifæri til að leggja á þjónustugjöld hafa
þegar verið nýtt. Hagræðing og rninni
kostnaður virðast því ein helsta leiðin til
þess að auka hagnað, sérstaklega fyrir
viðskiptabankana en enginn þeirra sýndi
í raun viðunandi arðsemi árið 1995. En
af áðurgreindum 7 innlánsstofnunum
voru það aðeins Sparisjóður vélstjóra og
Islandsbanki sent ntinnkuðu kostnað
(fyrir afskriftir) (3% hjá báðum). Annar
möguleiki væri sá að bankamir nýttu sér
þau auknu tækifæri sem bankalögin frá
1993 gefa og færu að stunda fjölbreyttari
viðskipti, t.d. með verðbréf.
Sparisjóðir í sókn
Innlán og verðbréfaúlgáfa jukust hjá
öllum sjö innlánastofnunum, nema Is-
landsbanka þar var 4% samdráttur að
raunvirði. Vöxturinn var mestur hjá
SPRON, um 26% að raunvirði, og hefur
Sparisjóðurinn nú náð 5,3% markaðs-
hlutdeild sem er ríflega tvöföldun á 10
árum. Raunar jukust innlán og verðbréfa-
útgáfa mun meira hjá sparisjóðum al-
mennt, en ef viðskiptabankamireru teknir
sem heild þá stóðu innlán og
verðbréfaútgáfa alveg í stað á milli ára
að raunvirði. Sparisjóðirnir hafa verið í
mikilli sókn síðustu ár. Arið 1987 var
Efni blaðsins
Vísbending er að þessu sinni helguð
sjö stærstu innlánsstofnunum landsins
og eru ýmsar tölur birtar úr rekstri þeirra.