Vísbending - 04.04.1997, Page 1
/
V
Viku
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
4. apríl 1997
13. tbl. 15. árg.
Greiðslumiðlunarkerfi
Nýlega gaf Seðlabankinn út skýrslu
um greiðslumiðlunarkerfi. í
henni er farið yfir stöðu greiðslu-
miðlunar í heiminum og þá umræðu sem
orðið hefur um þessi málefni
vegna breytinga sem hafa orðið
og eru fyrirsjáanlegar á alþjóð-
legum fjármálamörkuðum.
Með tilkomu bættrar fjarskipta-
tækni og tölvutækninnar hefur
orðið bylting í viðskiptum fjár-
málastofnana íeinstökumlönd-
um og einnig milli landa.
Greiðslumiðlun hefur einnig
tekið stakkaskiptum og enn
meiri breytingar eru fyrir-
sjáanlegar áður en langt um
líður. Greiðslumiðlun snýst um
það að koma greiðslum og
peningasendingum frá einum
aðilatil annars.Irammanumhér
á síðunni eru tvær skilgreiningar
á greiðslumiðlunarkerfum.
Munur milli landa
Iflestum löndum heims eru starfræktar
ein eða fleiri stofnanir sem sjá um
greiðslumiðlun, ýmist innanlands eða
milli landa. Þróunin hefur verið fremur
lausbeisluð og þess hefur oft gætt að
mikill munur er á kerfum milli landa. Oft
hefur reynst erfitt að tengja saman þessi
kerfi. Með aukinni notkun og meiri hraða
í viðskiptum er það sífellt meira áríðandi
aðgreiðslurskili séraf öryggi milli kerfa.
Greiðslumiðlunarkerfi eru því mjög mik-
ilvægur hlekkur í alþjóðlegum fjármál-
um.
✓
Ahættumati áfátt
Til skamms tíma var lítið hugað að
áhættuþáttum greiðslumiðlunar.
Þetta hefur breyst á allra síðustu árum.
Bankar hafa á síðustu árum átt í rekstrar-
erfiðleikum og það, ásamt gjaldþrotum
nokkurra stórra banka, hefur ýtt undir
áhyggjur seðlabanka ýmissa landa sem í
mörgurn tilfellum axla stóran hlutaáhætt-
unnar sem greiðslumiðlun fylgir. Auk
þessa hefur verulega verið dregið úr tak-
mörkunum á starfsemi fjármálastofnana
milli landa og það hefur ýtt undir að seðla-
bankar, sérstaklegaáEES-svæðinu skoði
og meti áhættu af greiðslumiðlunarkerf-
um. Ástæðan er tvíþætt, annars vegar er
eftirlit með lánastofnunum á EES-svæð-
inu falið heimalandi og því kann seðla-
banki í gistilandi að hafa takmarkaðar
upplýsingar um stöðu allra aðila að
greiðslumiðlunarkerfinu og hins vegar
að seðlabanki gistilands hefur líkindum
minni áhuga á að vera „örþrifalánveit-
andi“ (e.: lender oflast resort) fyrir er-
lendar en innlendar lánastofnanir.
Nettun og brúttun
Helstu ástæður fyrir áhættu eru þær
að lagalegur grunnur greiðslumiðl-
unar er víða veikur, mati á áhættu og stýr-
ingu eráfátt, greiðslukerfin eru mismun-
andi og afgreiðslutími skarast milli landa
vegna áhrifa tímabelta. Uppbygging nett-
unarkerfa leiðir til þess að erfitt er að
tengja saman mismunandi kerfi og því
erfitt að nýta nútímatækni til að koma
greiðslum á milli kerfa. Merkjanleg til-
færsla hefur því orðið úr nettunarkerfum
í brúttunarkerfi þar sem krafist er ábyrgða
eða veða, sérstaklega fyrir stórar greiðslur
þar sem slík kerfi draga úr að eyða ýmissi
áhættu sem fylgja nettunarkerfum. Þann-
ig hefur Evrópusambandið í undirbún-
ingi nýtt greiðslumiðlunarkerfi til að hægt
verði að stunda viðskipti með hina nýju
mynt, evró, þegarhún verðurtekin í notk-
un. Nýja kerfið mun heita TARGET og
byggist á tengingum frá Seðlabanka
Evrópu við brúttunarkerfi aðild-
arríkja. TARGET verður því
samtíma-brúttunar-greiðslu-
kerfi. (SBG-kerfi). Með TAR-
GET munu peningamálaað-
gerðir á vegum Seðlabanka
Evrópu verða samræmdar og
koma fram á sama tíma í öllum
ríkjum sem taka upp evró.
Opnari markaðir
/
Iljósi opnunar fjármála-
markaða og aukinna við-
skipta milli landa hefur sjón-
um verið beint að aðgengi að
greiðslumiðlunarkerfum. Nið-
urstaðan hjá Evrópusamband-
inu er sú að ef greiðslumiðl-
unarkerfi geta talist samkeppn-
isráðandi þá verður að leyfa almennan
aðgang lánastofnana að þeim. En hægt er
að setja skilyrði um ýmis atriði, t.a.m.
fjárhagslega stöðu, stjórnunarhætti og
umfang viðskipta. Einu gildir hvort lána-
stofnun sem sækir um aðild hefur útibú í
viðkomandi landi eður ei.
Reiknistofa bankanna
Hérlendis er starfrækt greiðslumiðl-
unarkerfi á vegum Reiknistofu bank-
anna. Kerfi Reiknistofu bankannaernett-
unarkerfi sem þróað var upp úr ávísana-
greiðslumiðlunarkerfi Seðlabankans og
starfrækt var áratugum saman. Lítið hefur
verið hugað að áhættu þátttakenda og að-
gengi nýrra aðila að þessum kerfum.
Lagaleg atriði er varða kerfið eru óljós,
sérstaklega varðandi endanleika færslna
og uppgjörs. Einnig eru óljós atriði varð-
andi stöðu þátttakenda ef einn aðila bry sti
greiðslugetu.
I skýrslunni er bent á nokkur atriði sem
talin er þörf á að skoða nánar. Þau eru
rakin á síðu 2.
Heimitd: Seðiabanki íslands, Greinargerð um
greiðslumiðlun, febrúar 1997.
Skilgreiningar á
greiðslumiðlunarkerfum
„Greiðslumiðlunarkerfi eru ferli þar sem fjármálastofn-
anir leggja fram og skiptast á gögnum og/eða skjölum er
varða sjóða- eða verðbréfafærslu til annarra fjármála-
stofnana. Oft fara einnig fram útreikningar á tvíhliða
og/eða fjölhliða nettóstöðu þátttakenda, til að hægt sé að
gera upp viðskipti miHi þeirra.“
„Greiðslumiðlunarkerfi samanstendur af skilgreindum
hópi stofnana, búnaði og vinnuaðferðum, sem notuð eru
til að tryggja dreifingu peninga innan landsvæðis, venju-
lega lands.“
INýútkominskýrsIaSeðla- Kynnt er aðgerðaáætlun Target er heili nýs kerfis A Framhald ááhremmingar-
bankaíslandsumgreiðslu- ) bankans og fjallað um semESB vinnurað.Rakin sögum greiðslumiðlunar-
miðlunarkerfi er aðalefni lielstu hugtök um áhættu í »_/ eru áhrif nokkurraatvikaá I kerfa í heiminum.
^ Vísbendingar._______________greiðslumiðlunarkerfum._____greiðslumiðlunarkerfi._____________________________