Vísbending


Vísbending - 22.08.1997, Side 3

Vísbending - 22.08.1997, Side 3
ISBENDING Hvað gerum við vel og hvað illa? Þórður Friðjónsson hagfræðingur Það getur verið gagnlegt að velta fyrir sér stöðu efnahagsmála hér á landi í alþjóðlegu ljósi. Þetta má auðvit- að gera með ýmsum hætti. Hér er valin sú leið að líta á árangur okkar á nokkrum mikilvægum sviðum efnahagslífsins og bera hann saman við árangur annarra þjóða sem hafa gott vald á efnahagsmál- um sínum. Tilgangurinn er að draga fram í dagsljósið helstu veikleika og styrkleika í íslenskum þjóðarbúskap. Aðferðin byggist á því að velja nokkrar veigamiklar hagstærðir og meta hvort árangur okkar á umræddum sviðum er yfir meðallagi, nálægt meðallagi eða undir meðallagi í samanburði við aðrar þjóðir. Þetta er því gróf teikning, eins konar skissa af því sem við gerum vel og illa miðað við aðra. Hægt er að nota líkingu við umferð- arljós til að leggja áherslu á niðurstöðumar. Þannig táknar græna ljósið góðan árangur, gulaljósiðmiðlungsárangurograuðaljósið lélegan árangur. Sömu aðferð mætti reyndar einnig nota til að greina aðra málaflokka og jafnvel þjóðfélagið í heild. Þetta gæti verið fróð- legt viðfangsefni. H vernig kæmi til dæm- is menntakerfið út? Eða umhverfismál og velferðarmál? Hér verður hins vegar látið nægja að skoða efnahagsmálin. Gott atvinnuástand og lífskjör í hæsta flokki Niðurstöðurnar eru dregnar saman á myndinni hér til hliðar. Á grænu ljósi neðst á myndinni, er að finna þrjá mála- flokka: atvinnuástand, hagvöxt og lífs- kjör. Varla er umdeilt að á þessum sviðum höfum við náð góðum árangri. Atvinnu- ástand er betra en víðast hvar samanber tölur um atvinnuleysi hér og annars stað- ar, hagvöxtur hefur verið meiri en að með- altali í iðnríkjunum að undanfömu og lífs- kjöreru með því besta sem þekkist íheim- inum. Að því er varðar lífskjörin kunna að vfsu að vera skiptar skoðanir. Sumir benda vafalítið á að þau byggist á mikilli vinnu og fyrir vikið sé ekki einhlítt að þau séu betri en í flestum öðrum löndum. Því verður þó ekki á móti mælt að neysla, framleiðsla og þjóðartekjur á mann eru miklar. Á þessa mælikvarða erum við tví- mælalaust í fremstu röð og vilji virðist vera fyrir hendi til að leggja það á sig sem þarf til að hafa úr jafnmiklu að spila og landsmenn hafa. I öðrum löndum eru tækifærin til tekjuöflunar oft ekki einu sinni í boði. Þegar öllu er til haga haldið verða lífskjörin því að teljast góð þótt þau byggist að hluta á mikilli vinnu. Verðbólga og ríkisfjármál í meðallagi Eins og við er að búast erum við nálægt meðaltali á ýmsum sviðum (sjá mynd). Þetta á meðal annars við um verð- bólguna og einnig opinber fjármál þegar á þau er litið í heild. Verðbólgan hefur ekki verið vandamál hér á landi undanfarin ár; hún hefur verið á bilinu 1 -3% og talið er líklegt að svo verði 1 Skipulag hagkerfisins Vextir Erlendar skuldir Opinber rekstur r áfram á næstu misserum. Verðbólga á þessu bili er ekki áhyggjuefni. Til saman- burðar er verðbólgan í aðildarríkjum OECD 1,8% að meðaltali ef undan eru skilin ríki með meiri verðbólgu en 10%. Vísbendingar urn stöðu opinberra fjár- mála í s vona samanburði eru nokkuð mis- vísandi. Þannig eru heildarskuldir hins opinbera fremur litlar en á móti vegur að nettóskuldireru töluverðarog samsetning skuldanna í i nnlendar og erlendar er óhag- stæð. Afkoman er nokkuð góð en upp- sveiflan á þar þó stóran hlut að máli. Um- svif hins opinbera miðað við tekjur og útgjöld sem hlutfall af landsframleiðslu eru svipuð og að meðaltali í OECD ríkj- unum. I því sambandi er þó rétt að benda á að íslenska þjóðin er ung (lágur meðal- aldur) og atvinnuley si er lítið og fyrir vik- ið eru tilfærslur frá hinu opinbera til heimila minni en í ílestum þróuðum ríkj- um. Samneyslan er hins vegar mikil, báknið er stórt og dýrt, ekki síst þegar tillit er tekið til þess að kostnaður við varnir landsins er lítill. Að öllu þessu athuguðu er hér komist að þeirri niðurstöðu að staða hins opinbera á Islandi sé nálægt meðallagi miðað við þær þjóðir sem við berurn okkur saman við. Skipulag hagkerfisins og fjármál fá lága einkunn Efst á myndinni, þar sem rauða Ijósið er venjulega, er að finna þau svið þar sem við stöndum öðrum að baki. Þessi svið varða einkum skipulag hagkerfisins og fjármál í víðum skilningi. Enginn vafi er á því að margt má bæta í skipulagi hagkerfisins. Islenskahagkerfið er einfaldlega skemmra á veg komið í þróun markaðsbúskapar en önnur vest- ræn hagkerfi, þótt margt hafi breyst til hins betra í þeim efnum á síðustu árum. Til marks um þetta er meiri ríkiseign og opinber afskipti af atvinnulífi en tíðkast annars staðar, s.s. á sviði fjármála, orku- mála, fjarskipta og í fleiri greinum, sem falið hefur í sér ófullnægjandi samkeppni, vafasamar fjárfestingar oft á tíðum og óhagkvæman rekstur. Okkur hefur sem sagt ekki verið jafnlagið og öðrum að virkja markaðsöflin í þágu efnahagslegra framfara. Eins og fram kom hér á undan virðist skipulag hins opinbera einnig vera óhag- kvæmt. I því sambandi má meðal annars benda á að samneysla er hærra hlutfall af landsframleiðslu en í flestum öðrum rfkj- um OECD. Þetta er stundum skýrt með fámenni en það er hæpin kenning, meðal annars fyrir þær sakir að samneyslan virðist fyrst og fremst Itafa farið úr böndum á síðustu tuttugu árum eða svo. Jafnframt eru útgjöld til varna landsins miklu rninni en annars staðar. Það má því færa veigamikil rök fyrir nauðsyn þess að endurskoða tilhögun opinbers rekstrar hér á landi með aukna skilvirkni og „down-sizing“ að leiðarljósi. Ráðstöfunartekjur eru hér nefndar til að minna á að þótt þær séu miklar á mann í heild eru þær tiltölulega litlar á vinnu- stund. Fyrirutan skipulagsmálinhefureinhvem Framhald á síðu 4 3

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.