Vísbending - 22.08.1997, Side 4
V
ISBENDING
Framhald af síðu 2
landsframleiðslu á móti röskum þriðj ungi
á Madagaskar. Máritíus tekur við næstum
1 milljón ferðamanna á ári borið saman
við um 50 þúsund á Madagaskar. Bæði
löndin þykja ákjósanleg ferðamanna-
lönd, ekki síztfyrirnáttúrufegurðog fjöl-
breytni, en lélegt stjórnarfar á Madagask-
ar hefur haldið aftur af mannaferðum
þangað.
■ Hvort landið ætli sendi fleiri stúlkur í
barnaskóla? Enn er svarið Máritíus. Þar
ganga allar stúlkur í barnaskóla á móti
72% stúlkna á Madagaskar. Þetta skiptir
máli, því að góð menntun stúlkna er for-
senda hagvaxtar í fátækum löndum og
eykur langlífi. Meiri skólaganga helzt í
hendur við minni landbúnað.
• Hvort landið ætli laði til sín meiri erlenda
fjárfestingu? Máritíus. Munurinn er þó
ekki mikill: 0,4% af landsframleiðslu á
Máritíus 1995 á móti 0,3% á Madagaskar.
Þetta er snöggur blettur á Máritíus.
• I hvoru landinu ætli útlán bankakerfisins
til einkafyrirtækja séu meiri? Máritíus!
Utlán til einkarekstrar námu 48% af
landsframleiðslu á Máritíus 1995 á móti
11% á Madagaskar. A Máritíus stóðu
einkafyrirtæki á bak við 62% af fjárfest-
ingu árið 1994 á móti 53% áMadagaskar.
Lögmálið er eitt
ennan samanburð má ekki taka allt
of bókstaflega, enda getur verið erfitt
að greina orsök frá afleiðingu í sumu af
því, sem sagt hefur verið að framan. Auk
þess má ekki gera of mikið úr markaðs-
búskapnum á Máritíus, því að hann hefur
ekki verið til fyrirmyndar að öllu leyti.
Samanburðinum er aðeins ætlað að sýna,
að ýmsir helztu gangráðar hagþróunar
úti í heimi—erlend viðskipti, fjárfesting,
menntun o.s.frv.—virðastengu síður vera
að verki úti fyrir Afríkuströndum en hér
heima og annars staðar. Lögmálið er eitt.
-*---------♦---------
Vísbendingin
Fyrir áhugamenn um tölfræðileg gögn
sem varða hagfræði er hægt að benda
á þrjár slóðir á Internetinu. Ein slík er
slóð Efnahags- og framfarastofnunarinn-
ar (OECD) sem hefur slóðina:
http://www.oecd.org.
Önnur slóð er hjá Alþjóðabankanum en
sú slóð er rík af tölulegum upplýsingum.
http://www.imf.org.
Enn ein áhugaverð upplýsingalind leynist
á slóð Leyniþjónustu Bandaríkjanna
(CIA). Þar er t.d. mat á því hversu margir
Islendingar teljast hæfir til herþjónustu!
Slóðin hjá Leyniþjónustunni er:
LEYNILEG
V______________________________J
Framhald afsíðu 3
veginn flest sem snýr að fj ármálum vafist
fyrir okkur í gegnum tíðina. Þar er fátt
um fína drætti. Þannig eru erlendar
skuldirþjóðarinnarmiklar, viðskiptahalli
hefur verið landlægur og vextir eru hærri
en annars staðar. Rétt er þó að nefna tvo
ljósa punkta: annars vegar hefur tekist
vel til ílífeyrismálum áalmennum mark-
aði og hins vegar hefur að undanförnu
verið unnið ötullega að umbótum á fjár-
málakerfinu. Því fer ekki á milli mála að
það miðar í rétta átt á þessu sviði.
Hvaða lærdóm má draga
af þessum samanburði?
Eins og gefur að skilja eru ýmis
álitamál f svona samanburði. Líklega
kæmust engir tveir hagfræðingar að ná-
kvæmlega sömu niðurstöðum um hvaða
hagstærða ætti helst að líta til og hvaða
einkunn ætti að gefa fyrir árangur áhverju
sviði. Engu að síður er ekki ósennilegt
að greina mætti svipaða megindrætti í
hugmyndum flestra hagfræðinga í þess-
um efnum. Þannig er deginum Ijósara að
atvinnuástand og lífskjör eru góð hér á
landi og skipulag hagkerfisins er um
margt vanþróað í samanburði við önnur
hagsældarríki.
Til stuðnings þessum niðurstöðum má
vísatil skýrslnaalþjóðaefnahagsstofnana
og ýmissa sérfræðinga. Skýrslur alþjóða-
efnahagstofnana, s.s. OECD og Alþjóða-
bankans, sýna að landsframleiðsla á
mann, einkaneysla á mann, bílafjöldi,
húsnæði og fleira er að jafnaði í góðu
meðallagimiðaðviðaðrarefnaðarþjóðir.
A hinn bóginn sýna ýmsar samanburðar-
athuganir á gerð hagkerfa að skipulag
íslenskra efnahagsmála er ekki vel til þess
fallið að örva framleiðni og skilvirkni.
Til marks um þetta eru athuganir stofnan-
anna World Economic Forum og Inter-
national Institute for Management De-
velopment. Sömu vísbendingar gefa svo-
nefndar vísitölur efnahagslegs frjálsræðis
samanber nýlega bók: Economic Free-
dom of the World 1975-1995. Meginlín-
urnar virðast því vera nokkuð skýrar.
En hvaða lærdóm getum við dregið af
svona greiningu? Hvaða gagn má hafa af
þessum vangaveltum? Skilaboðin eru skýr
um hverjir eru helstu veikleikar íslenska
hagkerfísins og jafnframt að þeir em þess
eðlis að það er á okkar valdi að gera úrbæt-
ur, því þá má rekja til þess að við höfum
einfaldlega ekki búið hagkerfið nægilega
vel úr garði. Með því að efla markaðsbú-
skap og samkeppni, endurskoða rekstur
hins opinberaog afskipti þess af atvinnulífi
má áreiðanlega stuðla að aukinni fram-
leiðni og afköstum í efnahagslífinu.
Reynsla annarra þjóða bendir eindregið til
að skipulagsbreytingar af þessu tagi geti
skilað miklum árangri. Með slíkum um-
bótum gæti ísland styrkt stöðu sína í al-
þjóðlegu samhengi og bætt lífskjörin.
Aðrir sálmar
Fjórða valdið
/
Igreinargerð ArnarsJenssonarlögreglu-
manns sem birtist í Morgunblaðinu
þann 19. þ.m. nefnir hann að fjölmiðlar
séu fjórða valdið í því stjórnkerfi sem við
búum við og að orðið „bananalýðveldi“
geti átt við þegar réttarfarinu hér sé lýst.
Því er ekki að neita að áhrifamáttur fjöl-
miðla er mikill. Líta má á frjálsa fjölmiðl-
un sem einn af hornsteinum lýðræðisins
þar sem fjölmiðlar endurspegla álit al-
mennings og veita með því stjómvöldunr
aðhald. Hvort fjölmiðlar hafa völd er hins
vegar umdeilanlegt. Ahrifamáttur fjöl-
miðla er reyndar misjafnlega mikill. Fjöl-
miðlar geta nefnilega dæmt sig úr leik ef
þeir bregðast trausti almennings. Þótt slá-
andi fyrirsagnir eða áhrifamiklar auglýs-
ingar fangi athygli almennings þá leikur
ekki nokkur vafi á því að ef uppslátturinn
er ekki á rökum reistur þá er næstu „stór-
fréttum“ tekið með fyrirvara og fólk er lil-
tölulega fljótt að missa áhugann á þeim
sem slíkt stunda. Aðhaldið sem fjölmiðlar
veita hér á landi er mjög mikilvægt ekki
síst vegna þess að skilin á milli löggjafa-
valds og framkvæmdarvalds eru ekki
sköip. Reynslan hefur kennt að ekki er
alltaf hollt að hlaupa ti I um leið og ný tíðindi
berast heldur er stundum betra að bíða af
sér fyrstu hryðjurnar og meta síðan á hlut-
lausan hátt hvort ástæða er til aðgerða.
Orðið „bananalýðveldi" á vart við hér á
landi ámeðan fjölmiðlareru óháðirstjórn-
völdum og ekki allir í eigu sömu aðila.
Há dú jú læk Æsland?
að vekur athygli að frægir menn fá
ekki að koma til Islands í frí óáreittir af
fjölmiðlum. Nú síðast var sonur Kennedys
Bandan'kjaforseta hér á landi og Morgun-
blaðið birtir fréttir af því að hann hafi borð-
að hafragraut. Sumt fólk er athyglissjúkt,
en nú kom frant að Kennedy óskaði sér-
staklega eftir því að koma ekki fram í fjöl-
miðlurn. Hvers vegna kýs Morgunblaðið
að birta samt langar greinar, dag eftir dag,
afforsetasyninum.Getaffægirútlendingar
aldrei fengið fríhér á landi? Er þetta vegna
minnimáttarkenndaríslendinga?Væriþað
ekki heppilegt ef landið yrði athvarf þeirra
sem vilja komast út úr fjölmiðlaglaumn-
um? Þarf ferðaþjónustan ekki lika að sýna
viðskiptavinum trúnað, eða má sífellt senda
^fréttaskot um ferðir frægs fólks?_,
Ritstjórn: Tómas Örn Kristinsson ritstjóri
og ábm., Benedikt Jóhannesson. Útg.:
Talnakönnun hf., Borgartúni 23, 105 Rvík.
Sími: 561-7575. Myndsendir: 561-8646.
Internetslóð:http://www.strengur.is~talnak/
vief95.html,netfang:talnak@strengur.is
Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Háskól-
ans. Prentun: Gutenberg. Upplag: 700
eintök. Öll réttindi áskilin. Ritið má ekki afrita
án leyfis útgefanda.
4