Vísbending - 19.03.1999, Page 3
ISBENDING
Tilgangur fynrtækj a
Fyrirtækjarekstur krefst þess að
stjórnendur og eigendur
fyrirtækis skoði reglulega hver
staða þess er og hvert það stefnir. Hluti
af þessari naflaskoðun er að byrja aftur
á byrjuninni og skoða fyrir hvað
fyrirtækið stendur og hver tilgangur
þess sé.
Fyrirtæki stofnað
Þegar fyrirtæki er stofnað þá má spyrj a
hver sé tilgangur þess og af hverju
það sé stofnað. Svarið getur verið
tvenns konar: Annars vegar getur
fyrirtæki verið stofnað af persónulegri
ástæðu (til að veita starfsöryggi, vera
sjálfs síns herra, græða peninga o.s.frv.)
og er þá að starfa fyrir stofnanda þess,
hins vegar getur fyrirtæki verið stofnað
af samfélagslegri ástœðu (til að mæta
þörf, bætaheilbrigði, aukaúrval o.s.ffv.)
og starfar þá ekki einungis fyrir
stofnanda þess.
Togað eða ýtt út í rekstur
Sá sem stofnar fyrirtæki af persónu
legum ástæðum er annað hvort ýtt
út í það af neyð (því hann missti vinnuna,
vantar peninga o.s.frv.) eða hann er
togaður út í það vegna tækifærisins (sem
gæti verið gróðavon, aðgangur að
upplýsingum, auðlindum o.s.frv.). Sá
sem stofnar fyrirtæki af samfélagslegum
ástæðum er annað hvort ýtt út það til að
„bæta“ (t.d. laga umhverfisspjöll, stuðla
að heilbrigði o.s.frv.) eða hann er
togaður út í það til að „búa til“ (gera
eitthvað nýtt, t.d. auka vöruúrval, lækka
verð o.s.fh'.).
Þörf eða aðstæður
Einnig er hægt að segja að
viðskiptahugmynd sé annað hvort
afsprengi af innri þörf eða ytri
aðstæðum. Líklegast er þó að
viðskiptahugmynd sé samspil innri og
ytri aðstæðna. Einstaklingur þarf að
hafa áhugann og áræðið til jjess að
stofna fyrirtæki og eitthvað þarf að
gerast í umhverftnu sem veldur því að
möguleiki skapast fyrir stofnun
fyrirtækis, viðskiptahugmynd fæðist og
tilgangur fyrirtækis verður ljós.
Stefiiumarkandi tilgangur
Ef fyrirtæki ætlar að gera einhverjar
stórvægilegar breytingar, stefnu-
markandi breytingar eins og að keppa á
erlendum mörkuðum þá verður að byrja
á því að skoða fyrirtækið sjálft, að hugsa
það upp á nýtt. Að hugsa eitthvað upp
á nýtt krefst þess að það verður að leita
rótarinnar, leita upphafsins, leita
tilgangsins.
Fyrsta spumingin sem er
nauðsynlegt að spyrja við rekstur nýs
fyrirtækis er sú sama og sú mikilvægasta
við rekstur eldra fyrirtækis: „Hver er
tilgangur fyrirtækisins og hlutverk
þess?“.
Fj ármálamarkaðurinn
Nýútskrifaður viðskiptafræðingur
frá Háskóla íslands mundi svara
spurningurnni um tilgang fyrirtækja
hátt og snjallt: „að hámarka hagnað“.
hetta svar byggir á þeirri hugmynd að
markmið fyrirtækis sé að hámarka virði
þess fyrir eigendur. Þetta er hugmynd
sem flaggað er á fjármálamörkuðum sem
hinn eini sanni tilgangur fyrirtækja. Allar
aðgerðir fyrirtækis eiga að rniða að því
að auka virði þess fyrir eigendur
hlutabréfa fyrirtækis.
Nauðsynlegt er að gera sér grein
fyrir þvi að þessi hugmynd er tilkomin
úr klassískri hagfræði, upphaflega til
þess að útskýra hegðun fyrirtækis og
hlutverk stjómanda þess.Tilgangur
fyrirtækis er hinn sami og persónulegur
tilgangur eigenda þess.
Stj ómunarvitringurinn
Peter Drucker, sem oft er sagður faðir
stjórnunarfræðanna og einn virtasti
stjórnunarráðgjafi viðskiptasögunnar,
mundi harðlega gagnrýna þetta viðhorf.
„Hagnaður sem ástœða og afsprengi
þeirrar hugmyndar, hámörkun
hagnaðar [...] skiptir ekki máli hvað
varðar hlutverk fyrirtœkja, ti/gang
fyrirtækja og stjórnun fyrirtœkja.“'
Skv. hugmyndum hans verður tilgangur
fyrirtækja að standa fyrir utan fyrirtækið
sjálft, í samfélaginu þar sem það starfar.
Tilgangurinn er aðeins einn: „að skapa
viðskiptavin". Þessi hugmynd byggir
á því að fyrirtæki sé til fyrir tilstilli
viðskiptavinarins, án hans sé enginn
fótur fyrir viðskiptum og þar af leiðandi
enginn þörf fyrir fyrirtæki. Tilgangur
þess er skv. Drucker þá samfélagslegur
frekar en persónulegur.
Pólitíska hugmyndin
• •
Onnur hugmynd er sú að fyrirtæki
eigi að taka tillit til allra aðila sem
tengjast því, þ.e. eigenda, starfsmanna,
viðskiptavina, birgja og jafnvel
samfélagsins.2 Hugmyndin endursp-
eglast í því að skoða verði
heildarmyndina, að fyrirtækið verði að
bera ábyrgð gagnvart þeint sem tengjast
fyrirtækinu. Tilgangur fyrirtækis er þá
tvíþættur, bæði persónulegur og
samfélagslegur.
Hugsjónin
Fjórða hugmyndin sem talin er hér
upp er að fyrirtæki eigi að einbeita
sér að því að fúllnægja þörfúm þeirra
sem tengjast því, standa fyrir eitthvað
sem eigendur, starfsmenn, viðskipta-
vinir, birgjar og samfélag geta verið stolt
af og vilja eiga viðskipti við. Tilgangur
þess fylgir þá einhverri hugsjón sem
það leitast við að fóstra, svo háleitri að
allir geta fallist á hana.3 Tilgangur
fyrirtækisins er þá eitthvað sem
sameinar bæði persónulegar og
samfélagslegar ástæður þess. Þá fyrst
hættir tilgangurinn að vera annað hvort
tilgangur þeirra sem tengjast því
fjárhagslega (hluthafar eða eigendur)
eða þeirra sem tengjast því á annan hátt
(starfsmenn, stjórnvöld, birgjar,
viðskiptavinir o.s.frv.) og verður
tilgangur fyrirtækisins sjálfs.
Mótað af upphafinu
Tilgangur fyrirtækis er oft mótaður af
upphaiinu, af upphaflegu viðskipta-
hugmyndinni, hvort að það hafi verið
einhver hugsjón á bak við hana eða
ekki, hvort að fyrirtækihafi verið stofnað
í kringum eitthvað nýstárlegt. Það er
hins vegar ekkert sem segir að
tilgangurinn geti ekki breyst. Yfirleitt
gerist það með nýju fólki, nýjum
eigendum eða stjómendum, alltaf með
nýjum hugmyndum. Nýjar hugmyndir
fela í sér skýran tilgang fyrir fyrirtæki og
ákveðið hlutverk. Hlutverkogtilgangur
fyrirtækis er það sem gefurþví tilverurétt
og það snýst alltaf um að uppfylla þörf.
Tilfyrirsjálftsig
Það er ekki aðalatriðið að tilgangur
fyrirtækis sé sá sami og tilgangur
þeirra sem fæddu það og fóstruðu til
lífs. Heldur er ekki aðalatriðið að
tilgangurinn sé samfélagslegur, sé
þeirra sem móta umhverfið. Aðalatriðið
er að tilgangurinn sé tilgangur
fyrirtækisins rétt eins og það væri lifandi,
að það liafi eigin tilverurétt. Sem
sjálfstæð eining með eigin tilgang getur
fyrirtæki mun betur þjónað þeim sem
tengjast því og það er það sem gefur
tilganginum tilgang.
1 Drucker, 1954.
2 Cambell og Yeung, 1991.
3 Cambell og Yeung, 1991.
3