Vísbending - 30.04.1999, Qupperneq 4
V
ISBENDING
(Framhald af síðu 3)
endurgjafarinnar. Eftir leiðréttandi
endurgjöf er hins vegar gott að taka
annað mál til umræðu en íyrst eftir að
starfsmaður hefur skilið og viðurkennt
endurgjöfina. Með slíkri hegðun stuðlar
stjórnandi að því að neikvæðar
tilfinningar starfsmannsins vari ekki
lengur en nauðsynlegt er. Auk þess
gefur hann starfsmanninum þá
tilfmningu að hann sé enn þá metinn að
verðleikum.
Til athugunar
Ekki veita endurgjöf þar sem þú notar
„en“
Notaðu ekki orðið „en“ á eftir
endurgjöf heldur orðið „og“. Orðið „en“
neitar öllu því sem sagt var þar á undan.
Tengdu í staðinn setningamar saman
með orðinu „og“.
Ekki „en“: „Þú komst of seint í
morgun en Gestur hringdi til að segja
þér að þú hafir skilað frá þér frábærri
vinnu.“
Fremur „og“: „Þú komst of seint í
morgun og Gestur hringdi til að segja
þér að þú hafir skilað frá þér frábærri
vinnu.“
Veittu styrkjandi og leiðréttandi
endurgjöf til skiptis
Þegarveitaverðurmikið afendurgjöf
er oft betra að veita styrkjandi og
leiðréttandi endurgjöf til skiptis í stað
(Framhald af síðu 1)
6. Að hreyta rekstrarformi rikis-
viðskipabanka og fjúrfestingar-
lúnasjóða, svo og fyrirtœkja og
stofnana í eigu ríkisins sem eru í
samkeppni við einkafyrirtœki
Ríkisbankamir hafa allir verið settir
undir hlutafélagaformið og að hluta til
boðnir á almennum hlutabréfamarkaði.
Landssíminn og íslandspóstur hafa
verið gerð að hlutafélögum og
Sementsverksmiðjan og Aburðar-
verksmiðjan hafa verið seldar.
7. Að byggja ú aflahlutdeildarkerfi í
sjúvarútvegi
Kvótakerfið er enn við !ýði rétt eins
og það var í upphafi kjörtímabilsins.
8. Að efla byggð ú landinu með
traustum og góðum samgöngum með
verkefnaflutningi frú ríki til
sveitarfélaga og taka úkvarðanir um
staðsetningu opinberra stofnana til
að stuðla að eflingu þjónustukjarna
Mikil búbót var í samgöngum á
kjörtimabilinu og grunnskólinn var
færður til sveitarfélaganna. Engu að
síður hafa fólksflutningar til þéttbýlis
haldið áfram.
9. Valfrelsi i lífeyrissparnaði og
samkeppni mil/i lifeyrissjóða
Lífeyrismálin voru tekin í gegn.
Heildstæð löggjöf um lífeyriskerfi var
þess að veita fyrst leiðréttandi og síðan
styrkjandi endurgjöfeðaöfugt. Fólkman
best endurgjöfina sem er veitt síðast,
sama hvers konar hún er. Ef einhver
með litla trú á sjálfum sér fær fyrst hrós
og síðan aðeins leiðréttandi endurgjöf
mun hann trúa því að styrkjandi
endurgjöfin hafi aðeins verið veitt til að
gera leiðréttandi endurgjöfma mildari.
Styrkjandi og leiðréttandi endurgjöf er
einlægari ef hún er veitt til skiptis. Best
er þó að halda þeim aðskildum í nokkrar
mínútur að minnsta kosti.
Notaðu styrkjandi endurgjöf til að
styðja leiðréttandi endurgjöf
Styrkjandi endurgjöf er oftast mjög
gagnleg til að nota við þjálfun á þeim
starfssviðum þar sem leiðréttingar er
þörf, sérstaklega ef starfsmaður hefur
staðið sig vel fyrst en hefur mistekist
síðar við svipaðar aðstæður. Styrkjandi
endurgjöf á einnig að nota til að styrkja
allt sem er í rétta átt eftir að hafa gefið
leiðréttandi endurgjöf.
Rannsóknir sýna að einlæg og
nákvæm endurgjöf á ffammistöðu
starfsmanns getur haft mjög mikil
jákvæð áhrif. Það hefur m.a. verið sýnt
fram á það að stjómendur sem veita
endurgjöf á frammistöðu starfsmanns
við að vinna ákveðið verkefni ná meiri
árangri en stjórnendur sem reyna að
útskýra hvemig eigi að vinna ákveðið
verkefhi. Gildi endurgjafar er því mikið
en eins og kemur ffam hér á undan þá er
ekki sama hvemig hún er gefin.
samin og samþykkt eftir margra áratuga
tilraunir. Frelsi og jafnræði í
lífeyrismálum var aukið.
10. Að endurskoða kosninga-
löggjöfina svo að Itún verði einfaldari
og tryggi jafnara vcegi atkvœða milli
kjördœma
Kosningalöggjöfin var gerð
einfaldari þó svo að margir hefðu viljað
sjá lengra gengið í þeim efnum.
Þá er bara að bíða og sjá hvort að
þessi árangur nægi stjómarflokkunum
til þess að fá nægilegt fylgi í nýja
fram(fara)sókn.
Vísbendingin
g | \
að vakti athygli þann 23. apríl þegar
áhættufjárfestirinn George Soros
steig á stokk og lýsti því yfir að hinni
alþjóðlegu efnahagskreppu, sem átti
upphaf sitt í Tælandi á haustmánuðum
1997, væri lokið. Góð sala á brasilískum
skuldabréfum undirstrikar það. Nýleg
könnun sýnir einnig að flestir forstjórar
í Hong Kong em á sama máli og Soros.
Alþjóðagjaldeyrisstofnunin tekur í
sama streng. Allt virðist því benda til að
orð Soros hafi verið í tíma töluð enda
maðurinn betri spákaupmaður en flestir.
v.________________________y
Aðrir sálmar
Nýju fötin ‘93-‘99?
Fréttir á baksíðu Moggans: 12.
desember 1993. Vinnslustöðin jók
tekjur um 49% á milli ára. Allt tap
fyrirtækisins samtals 342,5. 29. mai
1994. Atta mánaða uppgjör Vinnslu-
stöðvarinnar, Vestmannaeyjum.
Hagnaður 308 milljónir. 18. október
1994. Vinnslustöðin hf. í Vestmanna-
eyjum: Lækkar skuldir milli ára um 700
milljónir. 28. október 1994. ÍS kaupa
um 30% hlut í Vinnslustöðinni hf. 3.
nóvember 1994. SJÁVARÚTVEGUR:
Stríðshanskanum kastað! 4. nóvember
1994. SJÁVARÚTVEGUR: Dó Sam-
bandið aldrei? 4. nóvember 1994.
Vinnslustöðin á verðbréfaþing. 30.
desember 1994. Framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar: Allt hlutaféð selt.
Desember 1994. Sighvatur Bjamason
forstjóri Maður ársins í viðskiptalífinu
hjá Frjálsri verslun og Stöð 2
27. janúar 1995. Vinnslustöð og
SH skilja 1. febrúar. 2. apríl 1995.
Vinnslustöðin: Fersk karfaflök til
Evrópu. 23. maí 1996. Vinnslustöðin:
Sparisjóðimir lánatil skipakaupa. Hefur
gert kaupleigusamning að fjárhæð um
600 milljónir króna við sparisjóðina. 2.
október 1996. Sameining Vinnslu-
stöðvarinnar og Meitilsins er í athugun.
24. október 1996. Kvótinn er 13.500
þorskígildistonn. 24. febrúar 1999.
Þúsund tonn til Svíþjóðar. VINNSLU-
STÖÐIN hf. er nú að framleiða fisk í
neytendapakkningar.
16. mars 1999. (Úr verinu).
Útkoman í rekstrinum reyndist ekki
nógu góð. Sighvatur Bjarnason,
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar hf., hefur sagt starfi sínu lausu.
20. apríl 1999. Hlutabréf lækka um
7,7%. VINNSLUSTÖÐIN hf. í Vest-
mannaeyjum sendi í gærmorgun frá sér
afkomuviðvörun. 28. apríl 1999.
Vinnslustöðin tapar 605 milljónum á
hálfu ári: S igurgeir Brynj ar Kristgeirsson
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar segir aðspurður að félagið sé ekki
í verulegri hættu í dag, þó taka verði í
taumana. „Fjárhagsstaðan hefur verið
ágæt en hefur versnað við tapreksturinn.
I óbreyttum rekstri þá stefnir illa, þannig
að það er ekkert annað í stöðunni en að
taka á kostnaðinum, það er vandamálið."
^Ritstjórn: Eyþór Ivar Jónsson ritstjóri og\
ábyrgðarmaður, Benedikt Jóhannesson.
Útgefandi: Talnakönnun hf., Borgartúni 23,
105 Reykjavlk.
Slmi: 561-7575. Myndsendir: 561-8646.
Netfang:visbending@talnakonnun.is.
Málfarsráðgjöf: Málvlsindastofnun Há-
skólans.
Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án
, leyfis útgefanda.
4