Vísbending - 27.08.1999, Blaðsíða 1
V
V i k u
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
27. ágúst 1999
34. tölublað
17.árgangur
Davíð Oddsson forsætisráðherra
olli miklum vangaveltum í
þjóðfélaginu með skörulegri
ræðu á Hólahátíð nýlega. Rússneska
mafian var honum sérstakt áhyggjuefni.
Hvað svo sem hefur kveikt þessar
áhyggjur er ekki úr vegi að skoða hvort
Islendingum stafi einhver ógn af
rússnesku mafíunni.
Upphafið
Þegar talað er um „mafíu“ er yfirleitt
átt við skipulagða glæpastarfsemi
eða glæpafyrirtæki eins og hag-
fræðingar vilja stundum nefna fyrir-
bærið. Hugtakið varð til um 1865 til að
lýsa hinum öflugu ítölsku Sikileyjar-
fjölskyldum sem með ofbeldi og
glæpsamlegu athæfi tókst að hafa
nokkra stjóm á atvinnu- og efnahagslífi
eyjarinnar og suðurhluta Italíu.
Hugtakið var svo síðar notað til að
eyrnamerkja hópa sem stunduðu
okurlánastarfsemi og fjárhættuspila-
starfsemi og seinna framleiðslu og
dreifíngu á áfengi á bannámnum í
Bandaríkjunum. I dag er það einkum
ólögleg starfsemi í Rússlandi eða
starfsemi sem tengist rússneskum
undirheimum sem fengið hefur mafíu-
heitið.
Viðskiptaleg áhrif
Hagfræðilega skilgreiningin á mafíu
er hópur sem notar glæpastarfsemi
í hagnaðarskyni, beitir ofbeldi eða hótar
ofbeldi, tryggir að meðlimir aðstoði ekki
lögregluna og spillir yfírvöldum.
Umræðan um mafíu tengist mjög oft
ólöglegum mörkuðum fyrir fikniefni
þegar fjallað er um mafíu í dagblöðum.
Starfsemi mafíunnar er yfirleitt í kringum
atvinnugreinar sem eru ólöglegar eins
og okurlánastarfsemi, fjárhættuspil,
eiturlyfjasala, smygl og fleira en getur
einnig miðað að einokun í ákveðnum
atvinnugreinum þar sem innganga nýrra
aðila er hindruð og samkeppnisaðilum
er ýtt út af markaðinum með ólöglegum
hætti. I könnun sem gerð var meðal
suður-ítalskra verktaka í byrjun þessa
Mafían
áratugarkemurffamað 53%þeirrahöfðu
dregið til baka tilboð sín í opinber
verkefni vegna glæpsamlegra hótana
eða vegna stjómmálaþrýstings.
Aðstæðumar
Sögulega séð hefur verið bent á að
upptök mafíu megi aðallega rekja til
þrenns konar tilvika: 1) þegar stjórnvöld
missa völd, 2) þegar skrifræði í
stjómsýslunni er vemlegt og 3) þegar
möguleikar á ábata af ólöglegri starfsemi
em miklir. Það er skemmst ffá því að
segja að öll þessi skilyrði vom fyrir hendi
í Rússlandi þegarkommúnisminnhrundi
upp úr 1991. Spillingin og valdníðslan
sem hafði verið ríkjandi í
kommúnistaflokknum var einkavædd.
Einkavæðingin sem átti að leysa allan
vandann í Rússlandi gerði það að
verkum að margir komust yfir mikið
fjánnagn fyrir lítið annað en tengsl við
flokkinn. Það má segja að það séu tveir
hópar af rússneskum glæpamönnum,
annars vegar skriffæðismafía sem hefúr
völd og hagnast á mútugreiðslum og
smygli á eignum og auðlindum
Rússlands (olíu, kolum, gasi og
góðmálmum) og hins vegar byssubófar
sem ganga um og heimta vemdar-
greiðslur og beita ofbeldi.
Samkvæmt áætlun bandaríska
dómsmálaráðuneytisins er talið að um
80% fyrirtækja og bankastofnana þurfi
að greiða 10-20% af hagnaði sínum til
glæpasamtaka fyrir „vernd“. Árið 1993
var áætlað að um 5.000 glæpasamtök
væru starfrækt í Rússlandi, þótt
einungis 300 þeirra hafí ákveðið
skipulag. Sérffæðingur í málefnum
ítölsku mafíunnar hefúr bent á að það sé
varla hægt að kalla þessar rússnesku
glæpaklíkur mafíu þar sem þær hefðu
hvorki hugmyndafræði né skipulag
ítölsku mafíunnar. Rússneskar
glæpaklíkur hafa þó verið að taka á sig
skipulagðari mynd og umsvifþeirra, eins
og eftirfarandi dæmi sýna, eru
margslungin. Sérstaklega hefur
peningaþvætti mafínnar vakið athygli
ekki síst þegar það er komið inn í
vestrænt bankakerfi.
Útrás
Rússneska mafían hefúr smám saman
fært sig út fyrir mörk gömlu
Sovétríkjanna. Oftast er talað um
Austur-Evrópu í því sambandi en
hennar hefur þó einnig orðið vart bæði
í Asíu og Ámeríku. Ungverjaland,
sérstaklega höfuðborgin Búdapest,
virðist vera vinsæl miðstöð mafíunnar
ef marka má fféttaflutning. Einnig hafa
bandarísk stjórnvöld haft vaxandi
áhyggjur af glæpastarfsemi sem tengist
rússneskum innflytjendum, sérstaklega
í Los Angeles og Brooklyn. Um miðjan
þennan áratug var talið að rússneskir
glæpamenn í Los Angeles væru á bilinu
600-800 manns. Þá lét svissneski
ríkissaksóknarinn af störfúm nýlega og
varaði landsmenn sina sérstaklega við
ítökum rússnesku mafíunnar í
svissnesku athafnalífi en Genf er
stundum nefnd sem ein af fjármála-
miðstöðvum rússnesku mafíunnar.
Rússneska mafían er þó sennilega
stórtækust í smygli, allt ffáfólki til íhluta
í kjamorkuvopn. Frændur okkar Danir
hafa t.d. lengi talið að mafían sé á bak
við stórtækt áfengis- og sígarettusmygl
til landsins.
A hlutabréfamarkaði
Peningaþvætti hefúr alltaf verið hluti
af mafíustarfsemi, en það miðar að
hvítþvo illa fengið fé svo að hver sem
er geti notað það hvar sem er. Yfirleitt
hafa einkafyrirtæki sem eru í rekstri sem
lítið eftirlit er haft með verið notuð í
þessum tilgangi. Nýleg dæmi benda þó
til að margar aðrar leiðir séu farnar í
hreinsunarátakinu.
Fyrir skömmu birtist grein í New Y ork
Times sem sagði ffá Semyon Yukovich
Mogilevich nokkmm en hann er þekktur
rússneskur glæpamaður. Hann hefur á
þrjátiu árum auðgast um 100 milljónir
Bandaríkjadollara, að mestu með ólög-
mætum hætti eins og fjársvikum,
hórmangi og fíkniefnasölu. Mogilevich
stofnaði fyrirtækið YBM í upphafi
áratugarins en það var skráð í Kanada.
(Framhald á síóu 2)
1
Rússneska mafían varð til
á þessum áratug og hefur
vaxið vemlega þó enginn
viti hversu miklið.
2
Þekkingarhagkerfí er
hagkerfí sem snýst um
hugvit en ekki handafl eins
og framleiðsluhagkerfið.
3
Stefán Amarson, sem er
viðskiptafræðingur hjá
Seðlabankanum, fjallarum
beina erlenda fjárfestingu
4
hér á landi. Hann greinir
frá skiptingu hennar á milli
kjördæma.
1