Vísbending - 12.05.2000, Page 4
ISBENDING
Vinnustaðasamningar
Aðrir sálmar
Garðar Vilhjálmsson
s tj ó rn m ál afræð i ng u r
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson birti
ágæta yfirlitsgrein um verkfalls-
kenningar og hlutverk stéttar-
félaga í 13. tbl. Vísbendingar. Sá er hér
skrifar telur ástæðu til að hnýta við þá
umræðu, ekki síst við umræðuna um
nýtt hlutverk stéttarfélaga í breyttu
samfélagi og hlutverk vinnustaða-
samninga þar.
Eins og fram kemur hjá Gylfa byggir
allur tilgangur og starf stéttarfélaga á
hugmyndafræðinni um heildarhyggju.
Samtakamátturinn hefur verið hinn
rauði þráður í starfi verkalýðshreyf-
ingarinnar og byggt á þeirri sannfæringu
að sameinaðir fái launamenn meira
áorkað en sundraðir. Nauðsynlegt að
skoða þróun frá miðstýringu til vald-
dreifingar í kjarasamningum íþessu Ijósi.
Úr gryfju meðaltalsins
Vinnustaðasamningar eru tilraun til
þess að ná kjarabaráttu launafólks
úr meðaltalsútreikningum þar sem
grundvallarviðmið allra samninga er
hinn stærri efnahagslegi rammi þjóðar-
búsins. I viðræðum aðila vinnumark-
aðarins sem farið hafa fram um vinnu-
staðasamninga hefur þó verið eðlismun-
ur á skoðunum atvinnurekenda og
stéttarfélaga um hlutverk stéttarfélaga
við gerð slíkra samninga. Hér er fróðlegt
að líta til samninganna 1997 og aftur til
nýundirritaðra samninga árið 2000.
í kjarasamningsviðræðum 1997
voru vinnuveitendur ekki til viðræðu
um beina aðild stéttarfélaga að vinnu-
staðasamningum. Þeirra skoðun var sú
að stéttarfélagið skyldi vera ráðgefandi
aðili en forsvar af hálfu launamanna væri
algerlega á hendi trúnaðarmanna.
Reyndar var gert ráð fyrir að fulltrúi
stéttarfélags gæti komið að málum ef
ekki næðist samkomulag innan tveggja
mánaða en það má öllum vera ljóst að
náist ekki samkomulag innan tveggja
mánaða ríki ekki það traust milli aðila að
samkomulag náist yfirhöfuð. Hér ber að
hafa í huga að vinnustaðasamningar
eru gerðir undir friðarskyldu almennra
kjarasamninga og því ekki um samning
að ræða nema byggt sé á fullkomnu
trausti aðila og gagnkvæmri von um
ábata. I Ijósi þessa neitaði Lands-
samband iðnverkafólks að skrifa undir
fyrirtækjaþátt kjarasamninga árið 1997.
Onnur félög tóku fyrirtækjaþáttinn inn
í kjarasamninga en lítil sem enginn
áhersla hefur verið lögð á þennan þátt
hjá atvinnurekendum eða stéttar-
félögum að Verzlunarmannafélagi
Reykjavíkur undanskildu.
Nú í nýgerðum kjarasamningum
VMSÍ/Li voru ákvæði um fyrirtækjaþátt
kjarasamninga tekin upp aftur en gerð
sú grundvallarbreyting að þegar sest er
að samningaborði um vinnustaðasamn-
ing geta launamenn strax frá upphafi
kallað til fulltrúa stéttarfélags. Einnig
eru kominn inn í kjarasamninga víðtæk-
ari ákvæði um upplýsingamiðlun fyrir-
tækis til trúnaðarmanna sem er forsenda
þess að aðilar setjist við samningaborð
á sömu forsendum. Hvort þessi breyting
á ákvæðum um fyrirtækj aþátt kjarasamn-
inga verður til þess að vinnustaða-
samningar verði teknir upp í auknum
mæli skal ósagt látið en a.m.k. eru
gjörbreyttar forsendur fyrir launafólk
og stéttarfélög þeirra til að skoða málin
gaumgæfilega og nýta það lag sem býðst
með breyttu umhverfi.
Jafnræðisgrundvöllur
/
Iljósi breyttrar afstöðu samtaka
atvinnurekenda til hlutverks stéttar-
félaga í vinnustaðasamningum er nokk-
uð víst að starfsemi stéttarfélaga getur
þróast með þeim eðlilega hætti að koma
í vaxandi mæli að samningum um kaup
og kjör félagsmanna m.t.t. afkomu við-
komandi fyrirtækja eða starfsgreina.
Með nýjum starfsaðferðum er líklegra
að traust geti myndast á milli eigenda
(stjórnenda) og starfsmanna fyrirtækis
og að launamenn geti, í krafti samtaka-
máttarins, mætt til samningaviðræðna á
jafnræðisgrundvelli. Þannig hafa e.t.v.
skapast þær aðstæður á íslenskum
vinnumarkaði að hægt verði að þróa
kjaramálaumræðu úr skotgröfum meðal-
talsútreikninga til hagsbóta fyrir launa-
fólk og atvinnulífið almennt en með
heildarhyggju og samtakamáttinn að
leiðarljósi.
Vísbendingin
Ritstjórn Vísbendingar hefur jafnan
lagt metnað sinn við að hlusta á og
taka mið af áskrifendum blaðsins til að
það geti orðið sem áhugaverðast. Við
hvetjum þig til að senda okkur línu um
hvað þú myndir vilja sjá fjallað um.
Einnig gætir þú sent okkur vísbendingu
um hvaða gestapennar þú teldir að gætu
skrifað athygliverðar greinar. Með því
að fá álit þitt er líklegra en ella að við
geturn gert Vísbendingu að góðum
ráðgjafa og viskubrunni. Netfangið er:
visbending@talnakonnun.is.
Töffarinn
s
Aður fyrr var orðheldni talin aðals-
merki sérhvers heiðursmanns.
Menn töldu það prinsippmál að orð
þeirra stæðu hvort sem þau væru sett á
pappír eða ekki. Þessir sömu menn gátu
reiðst þegar farið var að krefja þá um
tryggingar fyrir því að þeir stæðu í
skilum eða efndu orð sín á annan hátt.
Orðspor þeirra var meira virði en nokkur
trygging. Þess vegna reyndu þeir jafnan
að gæta þess að á sitt mannorð sitt félli
enginn blettur, því að það var þeirra
veð. Handsalaður samningur var kom-
inn á, þótt ekki væri eytt í hann bleki.
Nýir tímar hafa orðið til þess að í viðskipt-
um þarf nú að hafa meiri formfestu þannig
að menn þurfa að ganga frá pappírum
og tryggingum með formlegri hætti en
áður, bæði vegna þess að það persónu-
lega samband sem áður tíðkaðist er ekki
alltaf til staðar í stórum fyrirtækjum í
stórum heimi, en líka vegna hins að nú
tíðkast aðrir siðir í viðskiptum. I stað
hins heiðarlega viðskiptafrömuðar er
kominn nýr stjórnandi fram á sjónar-
sviðið, töffarinn. Um skeið ríkti sú
kenning í viðskiptum að fyrirtæki ættu
að vera grönn og grimm (e: lean and
mean) og á þeim tíma varð töffarinn
holdgervingur stefnunnar. Hann ein-
setti sér að rekast hvergi á veggi án
þess að sprengja þá í loft upp. Vinnu-
aðferðimar voru hörkulegur stjórnunar-
stíll við undirmenn, undirlægja við
yfirmenn og fláræði við viðskiptamenn.
Hinn mikli hugsuður Groucho Marx
sagði einhvern tíma að munnlegir
samningar væru ekki pappírsins virði.
Hinn nýi stjórnunarstíll tekur þessa
hugsun skrefi lengra: Nú eru skriflegir
samningar ekki pappírsins virði lengur.
A samningsstiginu eru málin flækt með
því að setja inn flóknar klásúlur eða
merkingarlitla fyrirvara, sem virðast ekki
hafa mikið að segja, en hafa þann tilgang
einan að síðar meir verði hægt að nota
þær til samningsriftunar, ef á þyrfti að
halda. Með þessu mót lýkur samninga-
ferlinu alls ekki við samningaborðið
heldur er hægt að hefja það aftur þegar
hentar. Alvöru töffari þarf hins vegar
ekkert svona aðferðir, hann riftir einfald-
lega samningum þegar honum sýnist
og segir svo: Stefndu mér ef þú þorir!
V______________________________________.
(^RtetjómTEyþórlvarJónssonritstjóriog'
ábyrgðarmaður, Benedikt Jóhannesson.
Útgefandi: Talnakönnun hf., Borgartúni 23,
105 Reykjavík.
Sími: 561-7575. Myndsendir: 561-8646.
Netfang:visbending@talnakonnun.is.
Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Há-
skólans.
Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án
leyfis útgefanda.
4