Vísbending


Vísbending - 23.06.2000, Side 2

Vísbending - 23.06.2000, Side 2
ISBENDING Rafræn viðskipti og efnahagslífið tÞórður Friðjónsson v I haafriuðinaur J! ^ ^ Fyrir tíu árum hafði Intemetið innan við þrjár milljónir notenda í heiminum og rafræn viðskipti (e. e-commerce) voru ekki til. Nú em notendur Netsins yfir 250 milljónir og fjórðungur þeirra á einhver viðskipti á því. Aætlað er að rafræn viðskipti hafi numið 110 milljörðum dollara árið 1999. Það samsvarar 8.250 milljörðum ís- lenskra króna eða ríflega tífaldri lands- framleiðslunni. Ef rafræn viðskipti aukast í takt við það sem þau hafa gert á undanfömum ámm má ætla að þau muni svara til 5% allra viðskipta í heiminum eftir fjögur til fimm ár. Þetta á bæði við um svonefnd B2B- og B2C-viðskipti, það er viðskipti milli fyrirtækja (e. businesses to businesses) og viðskipti milli fyrirtækja og neytenda (e. businesses to con- sumers). Að baki hinum vaxandi vin- sældum liggur einfaldlega að Netið býður upp á hagkvæmari leiðir fyrir kaupendur og seljendur til að stunda viðskipti sín en áður hafa þekkst. Efnahagsáhrif Erfitt er að sjá fyrir í einstökum atriðum hver verða áhrif þessarar þróunar á efnahagslífið en þó er þegar ljóst að þau verða afar víðtæk. í því sambandi nægir hér að nefna nokkur atriði. Framleiðni og hagvöxtur eykst, a.m.k. um tíma, vegna skil virkari stjómunar á framleiðslu og ráðstöfun hennar. Þetta stafar m. a. af því að viðskiptakostnaður minnkar og samkeppni eykst vegna greinarbetri upplýsinga og greiðari leiða til að stofna til viðskipta. Þá eru ótalin áhrifin á velferðarkerfið en Netið gefur kost á margvíslegu hagræði í samskiptum milli stjórnvalda, kerfisins og einstaklinga. Á einföldu máli þýðir þetta að Netið getur stuðlað að batnandi lífskjömm og betra þjóðfélagi ef rétt er að málum staðið. Enginn vafi er á því að þær þjóðir sem standa framarlega á þessu sviði hafa á ýmsan hátt notið þess. Til marks um það má nefna B andaríkin en þar hefur Netið mesta útbreiðslu. Hagvöxtur og stöðugleiki hafa verið meiri þar og staðið yfir í lengri tíma en áður em dæmi um. Ein af skýringunum er „nýja hagkerfið", það er upplýsinga- og tæknibyltingin. Norðurlöndin era annað dæmi um þjóðir sem hafa náð langt í þessum efnum. Topp tíu Hér á eftir fer listi yfir þær tíu þjóðir sem hafa flestar tengingar við Internetið (september 1999, heimild OECD). Mælieiningin er fjöldi tenginga á hverja þúsund íbúa. Bandaríkin em í efsta sæti með 160 tengingar. I kjölfarið fylgja Finnar með 123 tengingar og í þriðja sæti eru íslendingar með 97 tengingar. Þar á eftir koma Noregur, Kanada og Svíþjóð. Athyglisvert er að Norðurlöndin em öll á þessum lista og reyndar væri fróðlegt að velta fyrir sér af hverju það em einmitt þessar þjóðir sem standa upp úr í notkun Netsins þó ekki verði farið út í þá sálma hér. c Tafla 1. Topp tíu á Netinu D Bandaríkin 160 Finnland 123 l’sland 97 Norequr 88 Kanada 76 Svíþjóð 69 Nvia-Sjáland 63 Danmörk 60 Ástralía 55 Holland 52 Fjöldi tenginga segir auðvitað ekki alla söguna um umfang rafrænna viðskipta þótt hann gefi nokkrar vís- bendingar. Það virðist sem svo að þegar innri gerð Netsins og umhverfis þess er komin á það stig að geta borið uppi nokkum veginn ömgg viðskipti þá lifnar fljótt yfir þeim. Erfitt er hins vegar að henda nákvæmlega reiður á umfangi rafrænna viðskipta. Margar athuganir liggj a þó fy rir en þeim ber ekki vel saman, enda em aðferðafræði og skilgreiningar oft mismunandi. Eins og fram kom hér á undan er heildarumfangið talið vera um 110 milljarðar dollara og er enn lang- stærstur hluti þeirra í Bandaríkjunum. Hverjir nota Netið? Rafræn viðskipti milli fyrirtækja hafa aukist einkar hratt undanfarin ár en einnig hafa neytendur fært sér Netið í nyt í æ ríkari mæli. Reynslan sýnir að ungt og vel menntað fólk hefur gjaman rutt brautina en síðan hefur notkunin breiðst út til annarra hópa. Þegar litið er til Bandaríkjanna er samband notkunar og tekna mjög áberandi. Þótt rafræn viðskipti séu hvergi orðinn stór hluti af heildarviðskiptum em þau þegar orðin veigamikill þáttur viðskipta á ákveðnum sviðum. Þetta á t.d. við um hlutabréf, tölvur og hug- búnað í þær, bækur, hljómdiska og myndbönd. Við bætist að sjálfsögðu ýmiss konar upplýsinga-, ráðgjafar- og afþreyingarþjónusta. Athuganir sýna að u.þ.b. helmingur þeirra sem aðgang hafa að netinu í Bandaríkjunum nota það til þess að eiga viðskipti á því (Boston Consulting Group 1999). Það hlutfall er mun lægra annars staðar. Á fyrirtækjasviðinu, B2B, em greinar í framleiðslu hvers konar farartækja og hátæknivöru og í efnaiðnaði lengst komnar. Ekki liggja fyrir haldgóðar upplýs- ingar um umfang rafrænna viðskipta á íslandi. Almennt er þó talið að þau séu enn lítil þótt víða sé kominn vísir að þeim. Ekki er ólíklegt að vöxturinn á þessu sviði verði mjög ör á næstu ámm því innviðir, þekking og aðgangur að Netinu er hér með því besta sem gerist í heiminum. Brýnt er að við verðum áfram í fremstu röð á þessu sviði. I því skyni þarf að leggja sérstaka rækt við þróun löggjafar og regluverks um þetta efni, við menntun og jafnframt að tryggja nægilega öran vöxt í flutningsgetu Netsins. Þannig leggjum við grunn að sem hagstæðustum áhrifum á íslenskt efnahagslíf. ' _ ^ Verslun á Netinu Mikil aukning hefur verið í verslun á Netinu á síðustu þremur ámm. Á síðasta ári nam smásöluverslun á Net- inug á milli fyrirtækja og neytenda í Bandaríkjunum um 33,1 milljarði Banda- ríkjadala skv. shop.org. Það samsvarar 1,4% af heildarsmásöluverslun í Banda- ríkjunum. Áætlað er vöxtur þessa versl- unarmáta verði mikill á þessu ári, um 85%, og að verslunin fari yfiról milljarð B andarfkj adala. B andaríkj amarkaður hefur tekið mest við sér í þessum efnum en Evrópa virðist vera að lifna því að þótt vöxtur smásöluverslunar í Banda- rfkjunum ykist um 145% á árinu 1999, jókst hún um 200% í Evrópu. Engu að síður er smásöluverslun í Evrópu á Netinu einungis 8,9 milljarðar Banda- ríkjadala. Það samsvarar0,2% afheildar- smásöluverslun í Evrópu. Það er athyglivert að Svíþjóð stendur öðmm Evrópuþjóðum mun framar í verslun á Netinu og er næst á eftir Bandaríkjunum í þessum efnum. Spáð er að vöxtur þessa verslunarmáta verði áfram hraður í Evrópu og að smásöluverslun á Netinu muni þrettánfaldast á næstu tveimur árum og verði u.þ.b. 44,6 milljarðar Bandaríkjadala árið 2002. 2

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.