Vísbending


Vísbending - 20.08.2004, Page 3

Vísbending - 20.08.2004, Page 3
V ISBENDING var einatt góður og einnig fiskverð á erlendum markaði. Afleiðingin var of- veiði þannig að tekið var forskot á sæl- una og grípa þurfti til skerðingar afla- heimilda. Þetta hefur dregið úr hagvexti eins og þegar sfldin var uppurin á hag- vaxtartímabilinu 1960-1966. Þótt hag- ræðing í sjávarútvegi og öðrum greinum hafi skilað sínu er það ekki nægilega mikið til þess að vega upp á móti fyrri ofveiði. Vaxtarbroddarnir hafa mest- rnegnis verið annars staðar en í sjávar- útvegi sfðustu tvo áratugina. Hlutur atvinnugreina Hvað segja þjóðhagsreikningar um verkaskiptingu eða framlag til landsframleiðslu? I 2. töflu má sjá framlag einstakra atvinnugreina til landsframleiðslunnar einstök ár frá 1990 til 2001. Eins og sjá má fyrir árið 2001 er hlutdeild veiða og vinnslu 12,5% og samtala frumvinnslu og almenns iðnaðar, án byggingar- starfsemi, tæp 25%. Framlag byggingar- starfsemi og veitna er 12,6% en skerfur þjónustugreina, að hinu opinbera með- töldu, er orðinn 62,5%. Tvennt vekur einkum athygli í töflunni. I fyrsta lagi eru ekki stórvægilegar breytingar í hlut- deild einstakra greina frá 1990 til 2001. I öðru lagi er mest aukning á framlagi hins opinbera. Þetta gerist þrátt fyrir einkavæðingu og yfirlýsta stefnu stjórnvalda um aðhald í ríkisrekstrinum. Ein skýring á þessu gæti verið hækkun launa opinberra starfsmanna í sam- keppni við einkaframtakið um vinnu- aflið. Því miðurerekki nýrri tölum til að dreifa en geta má sér þess til að hlutur fjármálastarfsemi hafi aukist hin síðari ár, bæði vegna góðrar afkomu bankanna og útrásar þeirra. Sveiflumar öngum hafa skipst á skin og skúrir í efnahagsmálum okkar. Sveiflur í framleiðslu og tekjum hafa löngum verið hér meiri og snarpari en víðast hvar. Þetta hefur sett sitt mark á lífskjör okkar eins og myndirnar hér að ofan staðfesta. Kvótakerfið, verðfesta og styrkari stjórn ríkisfjármála hafa stuðlað að meiri stöð- ugleika og þar með minni sveiflum í lífskjörum síðasta áratuginn. Greina má búsifjar þjóðarbúsins einstök ár af dældunum í landsframleiðslunni á 1. mynd, sbr. 1975 þegar hagvöxtur var 0,7%, 1983 var hann -2,2%, 1988 var hann -0,1%, 1992 var hann -3,3%, 1995 var hann 0,1% og árið 2002 var hann -0,5%. Reyndar má greina enn meiri sveiflur frá fyrri tíð. Milli 1945 og 1980 mátti greina tíu snarpa afturkippi í efna- hagslífinu, þ.e. einn á þriggja til fjögurra árafresti. Af þessum skolaði sjö að landi að utan í takt við erlendu hagsveifluna, en þrír þeirra voru tilkomnir vegna inn- lends aflabrests. Fjarlægð og viðskipti Lega landsins, á mörkum hins byggi- lega heims, fjarri þungamiðju mark- aða fyrir aðföng og afurðir, ætti að hefta framfarir fremur en örva þær. íslendingar nýta sér hlutfallslega yfirburði í fisk- veiðum og hina alþjóðlegu verkaskipt- ingu í ríkum mæli. Þeir eru því háðir frjálsum utanríkisviðskiptum. Þau eru því tiltölulega mikil en þó minni en ástæða væri til að ætla, miðað við smæð landsins og þörf fyrir viðskipti. Það hefur reyndar verið sýnt fram á að við- skiptamynstur okkar mótast af flutn- ingskostnaði vegna fjarlægðar frá öðrum löndum. Það er þó óhætt að segja að tæknin hafi fært okkur nær helstu mörkuðum okkar með lægri kostnaði við að varðveita gæði framleiðslunnar og við að geyma og flytja vörur og þjón- ustu. Einnig getum við fundið dæmi þess að við höfum nýtt okkur það til framdráttar að vera á milli Norður-Am- eríku og meginlands Evrópu. Mér er ekki örgrannt um að þetta hafi haft meiri áhrif en margan grunar á viðskiptahætti okkar, menntun, rannsóknir, tæknifram- farir og stefnu okkar í Evrópumálum. Að velja það besta að kom fram í samantekt fyrir um 25 árum yfir menntun háskólakennara á Islandi að flestir þeirra höfðu dokt- orspróf frá Bandaríkjunum, en þarnæst frá Islandi og Skotlandi, og svo frá öðrum Norðurlöndum, Bretlandi og Þýskalandi. Skýringin á fjöldanum frá Bandaríkjunum er sú að læknar hafa mikið sótt þangað í framhaldsnám. Að Skotland skyldi vera í öðru til þriðja sæti ásamt íslandi kom á óvart en þetta hefur breyst mikið síðan þá. Ég hef oft orðið þess áskynja að Islendingar, vísinda- menn jafnt sem aðrir, vita yfirleitt meira um það sem er að gerast í B andaríkj unum en Evrópubúar, og eru betur að sér um það nýjasta í Evrópu en Bandaríkja- menn. Þannig voru íslendingar fljótir að temja sér tölvutæknina og upplýs- ingabyltinguna. Viðskiptadeild Háskóla íslands var t.d. sú fyrsta á Norðurlönd- um til þess að gera nám í rafreiknum skyldugrein. Það hefur komið Islending- um til góða og stuðlað að framförum að þeir hafa aflað sér þekkingar og verk- kunnáttu víða að og oft þangað sem ástandið er best. Leikreglumar og útrásin Leikreglur viðskiptalífsins skipta miklu máli fyrir árangur í efnahags- málum. Þær mynda það hvatakerfi sem knýr athafnamenn til dáða, öllum til hagsbóta. Vindar frelsis hafa blásið í heimsviðskiptum síðustu áratugi. Að- ildin að EFTA, samningurinn við Evrópusambandið á sínum tíma og EES- samningurinn hafa forðað okkur frá einangrun og eflt markaðskerfið á íslandi. Það er meira segja farið að flytja inn margar tegundir landbúnaðarafurða sem áður voru stórhættulegar heilsunni. Ríkisafskipti hafa einnig minnkað vegna einkavæðingar og útboða. Fjármálamarkaðir og gengismark- aðir eru virkir án mikilla afskipta hins opinbera. En einna undursamlegust er þó útrás íslenskra fyrirtækja á erlend- an markað sem þau hafa nú óheftan aðgang að. Ég hef stund- um haft á orði að Island væri of lítið fyrir heilabú og athafnaþrá fslendinga. Hagvöxtur á Islandi næstu árin er tryggður með miklum orkuframkvæmdum en til lang- frama kæmi ekki á óvart þótt afrakstur af erlendri starfsemi tæki við af þeim sem tekjulind. Heimild: OECD og Hagstofa íslands. Tafla 2. Hlutur atvinnuvega í landsframleiðslu 1997 til 2001 Hlutföll af vergum þáttatckjum, %. 1990 1997 1998 1 1999' 2000 1 20011 Landbúnaður 2,6 1,8 1,6 1,6 1,5 1,4 Fiskveiðar og fiskvinnsla 14,2 12,3 12,6 11,5 11,3 12,5 Ál og kfsiljárn 0,9 1,3 1,3 1,0 1,2 1,5 Annar iðnaður 10,9 10,0 9,5 9,5 9,4 9,5 Rafmagns-, hita- og vatnsveitur 3,9 3,8 3,4 3,2 3,2 3,3 Hyggingarstarfsemi 8,4 7,8 8,5 8,1 9,4 9,3 Verslun, veitinga- og hótelrekstur 13,7 13,8 14,0 14,4 14,3 13,4 Samgöngur og flutningar 7,9 7,9 8,2 7,9 8,1 7,7 Önnur þjónusta 21,4 22,4 22,0 23,8 22,0 21,9 Starfsemi hins opinbera 16,2 18,9 18,9 19,1 19,5 19,5 Allar atvinnugreinar 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0 Reiknuð bankaþjónusta -4,8 -4,8 -4,8 -6,2 -5,2 -5,6 Samtals 95,2 95,2 95,2 93,8 94,8 94,4 Mismunur uppgjörsaðferða 4,7 0,0 Landsframleiðsla á grunnverði 99,8 95,2 Skattar á framleiðslu og innflutning 25,6 20,7 Styrkir 3,9 2,3 Landsframleiðsla á markaðsvirði 121,5 113,6 111,2 108,4 108,8 110,1 3

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.