Vísbending


Vísbending - 24.09.2004, Síða 2

Vísbending - 24.09.2004, Síða 2
V ISBENDING McKinsey og Bower / rið 1990 hélt ráðgjafarfyrirtækið McKinsey & Co. ráðstefnu þar sem allir æðstu stjórnendur fyrirtækisins voru samankomnir. Einn þeirra hóf umræðu um hvernig fyrirtækið gæti aukið hagsæld sína og bætt við- skiptakerfið. Gamall maður, 87 ára að aldri, bað þá leyfis um að fá orðið þó að hann væri ekki stjórnarmaður hjá Mc- Kinsey. Hann sagði: „Hvernig getur sérfræðingafyrirtæki haft viðskipta- kerfi? Eg held að eigendur þessa fyrir- tækis ættu ekki að vera að tala um hvern- ig þeir eiga að bæta hagsæld fyrirtækis- ins sín á milli. Ég held að eina málefnið sem eigendur þessa fyrirtækis ættu að ræða um sé hvernig þeir geta þjónað viðskiptavinum sínum betur. Ef við þjónum viðskiptavinunum betur verður okkur vel launað. Ef við einblínum á afkomuna höfum við hvorki viðskipta- vini né afkomu." Enginn talaði meira um hagsæld og viðskiptakerfi á þessum fundi. Marvin Bower hafði talað. Bower og Kearney James O. McKinsey stofnaði McKin- sey & Co. árið 1926 í Chicago í B anda- ríkjunum. Stuttu síðar gerðist A. Tom Kearney meðeigandi. Fyrirtækið sér- hæfði sig í reikningshaldi og verkfræði. James O. McKinsey var menntaður end- urskoðandi og kenndi lengi vel bæði við Chicago- og Columbia-háskólann. Hann stýrði McKinsey & Co. þar til árið 1935 þegar hann sameinaði það öðru endurskoðunarfyrirtæki, Scoville, Well- ington, og tók tímabundið við stjórn á Marshall Field til að innleiða breytingar á fyrirtækinu. Tveimur árum síðar lést hann og allt benti til að McKinsey & Co. heyrði einnig sögunni til. Marvin Bower, sem hafði lögfræði- menntun og MBA-menntun frá Harv- ard-háskólanum, varráðinn til McKins- ey árið 1933. Hann vareini starfsmaður- inn með stjórnunarmenntun. Bower komst fljótlega á þá skoðun að stjórn- unarráðgjöf og endurskoðun ættu ekki samleið og fékk McKinsey til að sam- þykkja að skrifstofan í New York, sem Bower fékk að stýra, myndi einbeita sér að stjórnunarráðgjöf. Þegar James O. McKinsey féll frá var fyrirtækinu skipt í tvennt, útibúið í New York, sem fékk nafnið McKinsey & Co., með Bower við stjórnvölinn og Chicago-útibúið, sem fékk nafnið McKinsey, Kearney & Co. Bower fékk svo réttinn yfir McKins- ey-nafninu árið 1946 og Chicago-úti- búið breytti nafni sínu í A. T. Kearney, sem er enn í dag öflugt ráðgjafarfyrir- tæki. McKinsey & Co. fékk nýtt líf undir stjórn Bowers í stjórnunarráðgjöf. Ungliðahreyfmgin McKinsey & Co. sérhæfði sig í stjórnunarráðgjöf undir stjórn Bowers og var frumkvöðull á því sviði. Bower gerði það að reglu að gera ein- ungis samning við stjórnendur fyrir- tækja. Fyrirmyndirnar voru lögfræði- og endurskoðunarfyrirtæki sem byggðu starfsemi sína á nánu samstarfi við um- bjóðendur sína, sem og santkeppnis- hæfni, ábyrgð og sjáifstæði. Jafnvel viðskiptavinirnir voru valdir eftir því hversu virtir þeir voru. Arið 1953 var svo tekin upp enn ein stefnan sem var fengin að láni frá fyrir- myndunum en það var að ráða nýút- skrifaða stúdenta til vinnu, Harvard- stúdenta með MBA-gráðu, og móta þá í stað þess að ráða fólk með reynslu sem hafði þegar mótaðar skoðanir og vinnu- aðferðir. McKinsey og Co. hefur alla tíð síðan verið þekkt fyrir að leita eftir stjörnunemendum til að bæta í raðir stnar. í byrjun níunda áratugarins tóku önnur ráðgjafarfyrirtæki, aðallega Bain, Boston Consulting Group (BCG) og Monitor (sem Michael Porter stofnaði), að yfirbjóða McKinsey og „stela“ bestu nemendunum. Bower sýndi þá hversu góð tengsl hann hafði við yfirstjórn Harvard og setti á fót The Marvin Bower Fellowship Program og tók upp á því að „ráða“ nemendurna áður en þeir útskrif- uðust. Skilaboðin voru skýr. Hugmyndaflug Hugmynd Bowers var að búa til fyrir- tæki sem myndi draga að sér og halda í framúrskarandi fólk, hjálpa því að rækta hæfileika sína og nýta þá til þess að auka orðstír fyrirtækisins. Þá væri engin þörf fyrir að auglýsa starfsem- ina með beinum hætti þar sem orðsporið myndi færa fyrirtækinu aukin viðskipti og svo enn meira af framúrskarandi fólki. í ræðu árið 1954 setti Bower fram fjóra þætti sem honum þóttu einkenna starfs- mannastefnu sérfræðingafyrirtækisins: 1. Það byggir upp sjálfstraust alls staðar að sjá sérfræðinga vinna verk vel. 2. Ef starfsfólk sér fyrirtækið í stöðugum vexti og árangur byggðan á góðum starfsháttum er líklegt að það fái aukið álit á fyrirtækinu, þá er ólíklegra að það íhugi tilboð frá öðrum. 3. Sönn áhersla á atvinnumennsku gefur tóninn fyrir fyrirtækið og skapar gott andrúmsloft á meðal starfsmanna. 4. Það sýnir sjálfstraust fyrirtækisins að vísa frá verkefnum sem ekki er hægt að ná góðu samkomulagi um — og það skapar andrúmsloft sem fólk vill vinna í. Bower rak að mörgu leyti harða starfsmannastefnu þar sem fólki var gert að klæða sig þannig að það drægi ekki athyglina frá því sem það var að gera — að klæða sig eins og viðskiptavinirnir. Hann hikaði ekki við að reka hina hæfi- leikaríkustu starfsmenn ef þeirfóru ekki eftir siðalögmálum fyrirtækisins. Hann vildi samt sjálfstætt þenkjandi starfslið sem gæti tekið ákvarðanir á staðnum og ætti auðvelt með að greina kjarna vand- ans. Starfsmenn áttu að nota vísinda- legar aðferðir til þess að leysa vandamál. Bower lagði þó einnig áherslu á að þeir notuðu hugmyndaflug enda var hann á þeirri skoðun að það væri áræði sem gerði menn að leiðtogum. Á ráðstefnu sem McKinsey-fyrir- tækið hélt árið 1998 sagði Bower, þá 95 ára gamall: „Einstein sagði að hug- myndaflugið væri mikilvægara en þekk- ing. Vandamál dagsins ídagerekki hægt að leysa með þeim hugsunarhætti sem við tileinkuðum okkur þegar við sköp- uðum vandamálin. Þetta er merkileg staðhæfing í ljósi þess að hún er komin frá Einstein. Hugmyndaflug er mikil- vægt ráðgjafanum. Ef hann getur ekki notað hugarflugið er engin hjálp í að greina vandamál. Og ég er hræddur um að við eyðum of miklum tíma í greiningar en of litlum í hugmyndaflug. Við getum í raun ekki mótað hluti án hugmynda- flugs.“ Endalokin tarfsferill Bowers hjá McKinsey & Co. spannar 59 ár, frá 1933 til 1992 þegar hann fór loks á eftirlaun 89 ára gamall. Hann var stjómandi fyrirtækis- ins frá 1935 til 1967. Bower andaðist í janúar á síðasta ári, þá á hundraðasta aldursári. McKinsey & Co. lifir liins vegar áfram fyrir tilstilli Bowers og nálgast áttræðisaldurinn. Engum dylst að það var Marvin Bower sem skapaði og mót- aði McKinsey en ekki James O. McKin- sey. Hann gaf fyrirtækinu alla sína atorku. Hann gerði meira en það, því að árið 1966, þegar talsverður þrýstingur var á hann um að gera McKinsey að hlutafélagi, var sameignarfyrirkomu- laginu haldið en enginn mátti eiga meira en 5%. Sjálfur átti hann rúm 50% sem hann seldi fyrirtækinu til baka á bók- virði í stað raunvirðis sem var margfalt meira. Um þessa ákvörðun sagði hann: „Ég hugsaði ekki um þessa ákvörðun á þeirn forsendum [sem gjöf] vegna þess að ásetningur minn var að búa til fyrir- tæki sem myndi lifa eftir minn dag. Þar sem það var markmið mitt, fannst mér þessi ákvörðun ekki göfuglyndi." 2

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.