Vísbending


Vísbending - 07.01.2005, Síða 1

Vísbending - 07.01.2005, Síða 1
V V i k u ISBENDING rit um viðskipti og efnahagsmál 7. janúar 2005 1. tölublað 23. árgangur Spáð í árið 2005 HinnmiklispámaðurNostradamus spáði því að andkristur myndi ná vöídum í hinum vestræna heirni um þetta leyti, samkvæmt túlkun sumra fræðimanna á skrifum hans, en spádómana skrifaði hann á líkingarmáli svo að kirkjan léti hann í friði. Einn ágæt- ur demókrati var fljótur að átta sig á að George W. Bush væri andkristur holdi klæddur, bæði útlit og atgervi benti til þess. Kirkjunnarmenn voru líkaófeimnir við að kalla mótframbjóðandann John Kerry djöfulinn sjálfan í kosningabarátt- unni - og þarf þá ekki frekari vitnanna við. Þó að hægt sé að finna ýmislegt í spádómum Nostradamusar sem passar við atburði sem síðar gerðust er þó fleira í þeim sem á sér litla sem enga samsvörun í mannkynssögunni. Enjafnvel þó að hinn mikli spámaðurhafi verið mjög mistækur í dómum sínum eru spámenn enn vinsælir og hafa sennilega aldrei verið fleiri en nú, flestir þeirra kalla sig verðbréfasala og ijárfesta eða hagfræðinga. Ekki eru allir þessir spámenn jafn spámannlega vaxnir en sennilegahefurhljómsveitin Nýdönsk þó hitt naglann á höfuðið þegar hún söng: „Nostradamus var ekkert merkilegri en ég, ég get spáð í framtíðina alveg eins og hann“. Það er einmitt ætlunin hér. Vísindaleg spámennska Spámennska er vísindagrein innan viðskipta- og hagfræðinnar þar sem aðfallsgreiningu er beitt til að spá fýrir um hvert sú braut liggur sem ekið er eftir. Þetta ferli ernauðsynlegt í allri áætlunar- gerð þó að flestir séu fyrir margt löngu hættir að reyna að áætla eða spá langt fram í tímann. Spár um þróun eru góður kostur á meðan þær taka tillit til óvissu og gera grein fyrir líkindum. Akkile- sarhæll flestra spádóma eru þó óvæntir atburðir sem er illmögulegt að spá fyrir um. Atburðir eins og hryðjuverkin 11. september 2001 og jarðskjálftinn í Ind- landshafi 2004. Slíkir atburðir geta gjör- breytt spám um þróun efnahagsstærða og hlutabréfaverðs. Vandamálið er að óvæntir og miklir atburðir gerast á ári hverju, og stundum oft á ári, og erfitt er að taka tillit til þeirra í aðfallsgreiningu. Peter Drucker sagði eitt sinn að það væri tímasóun að reyna að spá fyrir um óvænta atburði en hins vegar væri hægt að spá fýrir um áhrif atburða sem þegar hefðu gerst, eins og t.d. áhrif þess að hlutfall eldri borgara í Evrópu mun hækka og hlutfall þeirra sem tala eingöngu spænsku í Bandaríkjunum. Aætlanir stjómvalda og fyrirtækja em einnig hjálplegar við að velta því fyrir sér hvað gerist á næsta ári en spáin snýst þá aðallega um hvort hlutunum verður komið í framkvæmd eða ekki. Þessi hugmyndafræði verður útgangspunktur í þeim spádómum sem hér fara á eftir og er þeim skipt í þrennt. I fyrsta lagi em það spádómar um þróun þar sem stuðst er við spálíkön stofnana, í öðm lagi spádómar um þróun atburða sem þegar hafa gerst og í þriðja lagi spádómar um óvænta atburði byggðir á óljósum vísbendingum og „innsæi“. Gengið erút frá aðstæðum hér á landi og er leikurinn til gamans gerður. Þróun efnahagsstærða Hagvöxtur - Flest bendir til þess að hagvöxtur verði mikill á árinu og eru hagvaxtarspár þeirra sem rýna í spálíkönin um og yfir 5%, sem er að öllum líkindum ekki fjarri lagi. Vextir-Vísbending spáði því réttilega á síðasta ári að timi hækkandi vaxta væri kominn (17. tbl. 2004). Seðlabankinn hækkaði stýrivexti hressilega í lok síðasta árs með þeim afleiðingum að bankamenn urðu andvaka við að breyta spám sínum. Flest bendir til þess að vextir muni áfram hækka á árinu ef eitthvað er að marka viðvaranir Seðlabankans. Verðbólga - Verðbólgudraugurinn hefur læðst um og komið mönnum á óvart, samanber snarpa vaxtahækkun Seðla- bankans í lok siðasta árs. Ætla má að vaxtahækkanir Seðlabankans nægi til að halda aftur af honum og hann muni hægja á sér eða öllu heldur bíða átekta þar til á næsta ári að honum skýtur upp á ný. Hann mun stríða okkur meira en flestir ætla. Gengið - Krónan hefur verið ógnarsterk á árinu og hækkað. Hún mun áfram verða sterk en allar líkur eru á að gengið fari smám saman lækkandi á árinu. Skellur krónunnar, sem gerir það að verkum að evru-umræðan vaknar upp aftur, verður þó sennilega ekki fyrr en eftir tvö ár. Fiskurinn - Líkur er á að sjávaraflinn muni aukast á árinu og á næstu árum. Óljóst er hve áhrif jarðskjálftanna í Ind- landshafi verða rnikil en líklegt er að fiskverð hækki á árinu fyrir vikið. Ahrif aukins eldis í Kína fara þó fljótlega að segja til sín á komandi árum. Alið - Alverð mun að öllum líkindum haldast hátt á árinu en það hefur verið hærra að undanfömu en um langt skeið, 1800 til 1850 $/tonn. Hátt álverð mun ýta undir áætlanir um stækkun álvera en frekari stóriðjuframkvæmdirgætu hafist í lok áratugarins. Húsnœðisverð - Fallið á húsnæðis- markaðinum lætur enn bíða eftir sér en lágir vextir og enn frekari vaxtanýjungar munu halda áfram að kynda undir mark- aðinum. Hlutfallslega lægri byggingar- kostnaður mun þó þrýsta á verðlækkun. Markaðurinn mun sennilega halda jafn- vægi - sem er lognið fyrir storminn. Hlutabréfaverð - Hækkun hlutabréfa- verðs hefur óvíða verið meiri en hér á landi, um 150% frá byrjun árs 2003. Kynt hefur verið undir hlutabréfaverðinu með útrás en afkoma fyrirtækja hefur einnig verið afbragðsgóð. Engu að síður hefur bóla myndast og fyrirtæki þurfa því að draga fleiri kanínur upp úr hattinum á þessu ári ef viðhalda á háu verðmati. Það mun að öllum líkindum ekki takast svo að hlutabréfaverð lækkar á árinu. Atburðir sem hafa gerst Ellin - Þjóðin er að eldast, þó hægar en í Evrópu og áhyggjur af lífeyriskerfinu eru ekki miklar hér á landi. Skortur á (Framhald á síðu 4) 1 Visbending spáir í árið 2005. Flestbendirtilþess að árið verði á heildina litið mjög hagstætt. 2 Nýsköpun mun í auknum mæli verða mikilvægur þáttur í íslensku viðskipta- og efnahagslífi. 3 Þórður Friðjónsson hag- fræðingur skoðar efnahags- horfur á Islandi og spáir í lendingu hagkerfisins. 4 Framhald af grein á foA síðu þar sem Vísbending ferí spámannsstellingarán þess að spá heimsendi.

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.