Vísbending


Vísbending - 07.01.2005, Síða 4

Vísbending - 07.01.2005, Síða 4
(Framhald afsíðu 1) vinnuafli, skuldasöfnun og auðhyggja munu þó gera það að verkum að fólk fer seinna á eftirlaun en það ætlaði sér. Útlendingar - Fjöldi útlendinga á Is- landi er kominn í 3,5% og mun aukast með tilheyrandi vandamálum. Kröfur um íslenskukunnáttu aukast og ákveðn- ar vinnustéttir verða nær eingöngu skip- aðar útlendingum. Þetta gæti orðið árið sem íslendingar uppgötva að þeir eru rasistar. Kauphöllin - Fyrirtækjum hefúr verið að fækka í höllinni á undanfomum ámm og samþjöppun eignarhalds mun senni- lega leiða til þess að þeim heldur áfram að fækka enn um sinn. Vonir standa þó til að einkavæddur Landssíminn komi sterkur inn. A uömenn - Skapast hefúr stétt auðmanna sem leyfir sér hluti sem Islendingar hafa ekki leyft sér áður, eins og stórbýli bæði í erlendum stórborgum og á Islandi. Æ fleiri þeirra munu hafa aðsetur í útlönd- um en láta til sín taka á Islandi enda er frægðina þar að finna. Ríkidæmið mun verða meira áberandi en oft áður. Almenn- ingur og fyrirtæki munu reyna að halda í skottið á auðmönnunum með aukinni skuldasöfnun. Dómarnir- Skattrannsóknirog rannsókn- irá samráði munu áfram hneyksla þjóðina en skammirnar verða aðallega í dómi göt- unnar. Misindismennirnir munu sleppa í krafti fyrninga og máttleysis íslenska stofnanakerfisins rétt eins og hinir ólög- legu innherjar um árið - sem var svo fagnað eins og hetjum þegar þeir dúkkuðu á ný upp í íslensku viðskiptaumhverfi. Frelsið - Alþingi mun setja lög sem þrengja að eignarhaldi og starfsemi fyr- irtækja. Margir viðskiptakóngar munu bregðast ókvæða við og beita öllum ráðum til að klekkja á stjómvöldum. Þeirri orrustu munu þeir þó tapa. Fjárfestingar - Islendingar munu halda áfram að fjárfesta í útlöndum, veðja á að misgengi krónu og dollara muni breytast á komandi ámm. Kb-banki mun áfram leiða útrás bankanna en aðrir bankar munu þó sennilega reynast stórtækari á árinu þar sem spennan hefur safnast upp. Nýjar útrásarhetjur munu koma fram. Vandamálið er hins vegar að ávinn- ingurinn afþessum verslunarferðum mun láta á sér standa og reynir þá á trú og þolinmæði fjárfesta. Bankakerfið - Miklar breytingar hafa átt sér stað í bankakerfinu á síðustu árum. Umskiptin munu halda áfram og samþjöppunin aukast. Sparisjóðakerfið verður í brennidepli og enn ein atlagan verður gerð að Islandsbanka. Einkavœðing - Forsætisráðherra hefur lýst því yfir að nú verði Landssíminn loks seldur á markaðstorginu. Líklegast verður það þó ekki fyrr en síðla árs og ISBENDING Aðrir sálmar verður mjög umdeild sala. Margir munu berjast um góssið en áhersla verður lögð á að fá erlenda fjárfesta. Ovæntir atburðir Spilaborgin - Það mun hrikta í „stoðum“ einnar spilaborgarinnar þegar kemur fram að rekstur sumra þeirra fyrirtækja sem hafa skreytta framhlið er ekki allur þar sem hann er séður. Spilaborgin mun þó standa eftir talsverða endurskipulagn- ingu. í kjölfarið verða sett íög um pýramídaeignarhald fyrirtækja. Erlendirfiárfestar- Erlend fjárfesting á Islandi hefur að miklu leyti verið fólgin í Islendingum í dulargervi, þ.e. fjárfest- ingarsjóðum skráðum erlendis en í eigu Islendinga, en útrás Islendinga, aukinn ferðamannastraumurog skattaumhverfið munu verða til þess að draga að stóra erlenda fjárfesta. Að minnsta kosti eitt „íslenskt“ fyrirtæki verður keypt upp af útlendingum. Einkavœðingaráform - Aukin umræða verðurum einkavæðingu í orkugeiranum, heilbrigðiskerfinu og menntakerfínu. Ungir og róttækir menn í stjórnmálum krefjast þess að meira verði gert úr þess- um áformum og orðin tóm verði ekki látin tala. Utanríkisþjónustan - Nýjum utanrík- isráðherra ofbýður ofþenslan í utanrík- isþjónustunni. Hann boðar róttæka end- urskipulagningu, leggur niður þátt utan- ríkisráðuneytisins í viðskiptaþjónustu og fer fram á að kirkjugarðsgjöldin verði tekin af Útflutningsráði. Hann fækkar sendiráðum, segir þau arfleifð úrelts hugsunarháttar. Ekki verður óskað eftir forsetanum í fleiri viðskiptahvataferðir. Góðar eru gjafir Fyrir jólin senda margir vinum sínum gjafir og hlýjar kveðjur. Enginn skyldi lasta þann vinarhug sem oftast fylgir. Um jól og áramót nota menn tækifærið til þess að ritja upp kynni sem menn hafa ekki gefið sér nægilegan tímatil þess að rækta á árinu. En margir gefa líka gjafir til fólks sem þeirhafa aldrei þekkt mikið. Stjóm- málamenn, embættismenn og stjómendur fyrirtækja fá til dæmis gjafir frá ýmsum sem em ekki persónulegir vinir þeirra en eiga við þá einhvers konar samskipti. I Bandaríkjunum er ekki bannað að taka við slíkum gjöfum en embættismenn em skyldaðir til þess að halda um þær skrá og gefa upp verðmæti þeirra, en það verður að vera innan ákveðinna marka. Athyglisvert væri að sjá slíka skrá fyrir íslenska stjórnmála- og embættismenn. Jafnframt væri eðlilegtað fýrirtæki skyld- uðu starfsmenn til þess að gera slíka lista og afhenda stjórn. Gengið hafa sögur af útibússtjórum sem hafa skottið eða bíl- skúrinn opinn. Sömuleiðis hefur stórum hópum verið boðið á íþróttaviðburði og aðrar hátíðir erlendis. Ekki hefur hvílt leynd yfir slíkum ferðalögum (ólíkt bíl- skúrsgjöfunum) enda vandasamt vegna þess fjölda sem viðstaddur er. En menn eiga ekki að setja reglur vegna þess að sérstök tilefni hafi komið upp heldur fremur til þess að koma í veg fyrir tor- tryggni. Undirritaður fékk til dæmis tvær rauðvínsflöskur, eina koníak, konfekt- kassa, matarkörfu og tappatogara. And- legt fóður? Nei, það datt engum í hug. Enginn heimsendir Nostradamusvarheimsendaspámaður. Þó að hræðslan við heimsendi hafi minnkað verulega eftir að aldamótin gengu um garðþá var jarðskjálftinn í Ind- landshafi og hin gríðarlega eyðilegging sem fylgdi honum vatn á myllu heims- endaspámanna. Ekki verður heimsenda spáð á næsta ári - enda lítið gaman að hafa rétt fyrir sér í þeim efnum og fáir til þess að dást að spádómsgáfunni ef spáin rætist. Rétt er þó að hafa í huga að Is- land er veikburða gagnvart skapbrestum móður náttúru og eldgos og jarðskjálftar gætu gert allar stofnanaspár úreltar á einu augnabliki. Islendingar hafa hins vegar fyrir margt löngu lært að áhyggjur af duttlungum náttúrunnareru til einskis og kj ósa að bregðast við hamförunum þegar þær verða. Nýir Skaftáreldar gætu sett margt úr skorðum, hulið landið svörtu skýi til margra ára og gert sum svæði landsins óbyggileg - en það væri enginn heimsendir. Stemming Ríkisstjórnin ákvað á fundi skömmu fyrirjól að kaupa alla sálma sembirst hafa í Vísbendingu. Kaupin eru m.a. gerð í tilefni af því að Halldór Ásgrímsson hefúr nú verið forsætisráðherra í 100 daga og auk þess eru sálmarnir skemmtilegur aldarspegill, en um þessarmundir vill svo til að um níu ár eru síðan þeir birtust fýrst. Kaupverð er trúnaðarmál og jafnframt varákveðið að efni sálmanna skyldi vera trúnaðarmál líka eftir að greiðsla verður innt af hendi og er það talinn mesti ávinn- ingurinn af kaupunum. - bj V ''Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Eyþór ívar Jónsson. Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23, 105 Reykjavík. Sími: 512-7575. Myndsendir: 561-8646. Netfang: visbending@talnakonnun.is. Málfarsráógjöf: Málvísindastofnun Há- skólans. Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök. Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án Heyfis útgefanda. 4

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.