Vísbending - 08.04.2005, Side 4
(Framhald af síðu 3)
muninn með jöfnunarsætum, að hluta
eða til fulls eftir atvikum. Mun-
urinn á reglunum tveim getur reynzt
mikill, þegar fá sæti koma til úthlutunar i
hverju kj ördæmi, og einmitt þannig hátt-
ar til hér heima. Frjálslyndi flokkurinn
hefði t.d. fengið mann kjörinn í öllum
kjördæmum 2003 skv. reglu Sainte-
Lagues, svo að þingstyrkur hans hefði þá
reyndar orðið talsvert umfram kjörfylgi.
Meiri hluti núverandi ríkisstjórnar á
Alþingi væri þá 32 þingsæti gegn 31,
og sú niðurstaða væri í nánara samræmi
við atkvæðamagn beggja fylkinga en
núverandi þingstyrkur þeirra, 34 sæti
gegn 29. Óvíst má telja, hvort núverandi
ríkisstjóm hefði verið mynduð við þær
aðstæður. Munurinn á reglunum tveim
yrði trúlega hverfandi í reynd, ef iandið
allt væri eitt stórt kjördæmi.
I reynd er regla Sainte-Lagués yfirleitt
sveigð að hagsmunum stórra flokka með
því að nota deilitalnaröðina 1, 4, 3, 5, 7
o.s.frv. í stað 1,3,5,7 o.s.frv. Þetta ergert
til þess eins að til að draga úr möguleikum
lítilla flokka. Hefði regla Sainte-Lagués
með þessari breytingu verið notuð hér
heima 2003, hefði úthlutun þingsæta
orðið hin sama og hún varð skv. reglu
d’Hondts. Eðlilegra er þó að nota reglu
Sainte-Lagués óbreytta, séu menn á ann-
að borð hlynntir jöfnum atkvæðisrétti,
því að með óbreyttri reglu Sainte-Lagués
verður úthlutun sæta í fyllstu samræmi
við skiptingu atkvæða í hlutfallskosning-
um. Það er einmitt höfuðkostur hennar
umfram reglu d’Hondts (sjá t.d. Arend
Lijphart, Electoral Systems and Party
Systems: A Study ofTwenty-Seven Demo-
cracies, 1945-1990, Oxford University
Press, 1994).
Nú geta menn e.t.v. sagt sem svo, að
núverandi skipan skv. reglu d’Hondts
dragi úr líkunum á eiginlegri pattstöðu á
Alþingi með því að skerpa muninn milli
fylkinga við úthlutun þingsæta. En þá
þurfa menn einnig að huga að því, að
íylkingar og fylgi flokka kynnu að skip-
ast öðruvísi til langs tíma litið, ef reglu
Sainte-Lagues væri fylgt frekar en reglu
d’Hondts.
Kosningarnar 1971-1999
Iljósi niðurstöðunnar fyrir 2003 í töflu
1 er vert að reikna úthlutun þingsæta
eftir reglunum tveim aftur í tímann til að
fá sem gleggsta mynd af allri slagsíðunni
-af völdum kjördæmaskipanarinnar ann-
ars vegar og úthlutunarreglunnar hins
vegar-á skipan Alþingis gegnum tíðina.
N iðurstöðumar eru dregnar saman í töfl u
2. Þar sést, að regla d’ Hondts hefur jafnan
sveigt úthlutun þingsæta í þágu Fram-
sóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins.
Að öllu öðru jöfnu hafa þessir tveir
flokkaraðjafnaði fengið 1,2 þingsætum
meira í sinn hlut í hverjum kosningum
síðan 1970 en þeir hefðu fengið skv. reglu
Sainte-Lagués, og aðrir flokkar hafa þá
haft minni þingstyrk sem því nemur. Þrír
ljórðu hlutar bjögunarinnar eru Fram-
sóknarflokknum í vil og afgangurinn
Sjálfstæðisflokknum. Tölurnar benda
til þess, að Alþýðubandalagið og ýmis
ný framboð jafnaðarmanna og annarra
hafi einkum goldið þessarar bjögunar
ogeinnig Alþýðuflokkurinn nema í kosn-
ingunum 1978. Ekki verður þó séð, að
nokkur stjómamiyndun á tímabilinu hefði
verið ókleif, hefði reglu Sainte-Lagués
verið fylgt, en um það er þó ekkert hægt
að fullyrða, því að bjögun kosningareglna
hleður utan á sig með tímanum: það er
ómögulegt að vita, hvaða áhrif önnur
styrkleikahlutföll á Alþingi - hlutföll í
nánara samhengi við kjörfýlgi flokkanna
skv. reglu Sainte-Lagués - hefðu haft á
kjörfýlgið til langs tíma litið.
Að endingu
Slagsíðan á skipan Alþingis íýrr og
nú stafarekki eingöngu afkjördæma-
skipan, sem mismunar kjósendum eftir
búsetu, heldur einnig af hinu, að þing-
sætum er úthlutað eftir reglu, sem hyglar
stórum flokkum á kostnað minni flokka.
Þeir, sem hafa hagnazt mest á ríkjandi
skipan, eru þeir flokkar, sem mestu hafa
ráðið um lögfestingu þessarar úth I utunar-
reglu frekar en hinnar, sem einnig hlaut að
koma til álita og hefur enda verið notuð
t.d. í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Af
þessum sökum verður það enn brýnna
en ella að leita leiða til að girða fyrir
svo augljósan hagsmunaárekstur og fela
öðrum en Alþingi að setja landinu rétt-
lát kosningalög, t.d. sérstöku stjórnlaga-
þingi, enda þarf hvort eð er að kalla það
saman til að endurskoða stjórnarskrá
lýðveldisins, þar eð Alþingi er með líku
lagi vanhæft til þess verks.
Höfundurinn þakkar Indriöa Indriðasyni lcktor í stjómmála-
fræði góð ráð og Hákoni Skjenstad stærðfræðinema aðstoð
við útreikninga.
[ Vísbendingin )
Söluferli Landssímans hefúr loksins
verið ákveðið. Uppgjöf virðist ríkja
gagnvart dreifðri eignaraðild enda þolir
ríkisstjómin ekki annað eins klúður og í
sölunni árið 2001. Það er lítil bragarbót
að skipa nýjum eigendum að setja 30% á
markaðárið2007! Þessi niðurstaðastjómar-
flokkanna einkennist af málamiðlunum.
Furðulegast er þó þessi eigendaregla að
enginn einn megi eiga meira en 45% sem
krefstaða.m.k.þríraðilarverðaaðstandaað
tilboðinu. En það gelurhentað einhverjum
vvæntum tilboðsgjöfum vel.^
ISBENDING
Aðrir sálmar
_________________________________v
Hver ræður sér?
óhannes Páll páfi heillaði fólk með
vingjarnlegri og hrífandi framkomu.
Margir virðast minnast heimsóknar hans
hingað til lands sem eins af hátindum í
lífi sinu. Forsætisráðherra íslands ætlar
að vera við útför páfa þó að þjóðin hafi
látið af pápísku fýrir rúmum 450 árum. í
Rómaborg er páfinn eitt af umræðuefnum
gestkomandi. Heimsókn hans til Islands
varmérenn í fersku minni árið 1993 þegar
ég kom þangað. Það kom mér þess vegna
á óvart hve lítið viðmælendum mínum
virtist um hann gefið. lhaldssöm afstaða
hans í ýmsurn málum sem snerta einka-
hagi var menntuðum ítölum lítt að skapi.
Hann var á móti getnaðarvörnum, hjóna-
skilnuðum, giftingum presta og fleiru því
sem við sem ekki erum á yfirráðasvæði
kaþólsku kirkjunnarteljum að komi hvorki
ríki né kirkju við. Með andstöðu sinni við
getnaðarvarnir stuðlar kirkjan að fátækt
í þeim ríkjum þar sem boðskapurinn er
tekinn alvarlega og dregur úr virðingu
manna iýrir kirkjunni þar sem menn fara
sínu fram. Nýlega kom upp deila um það
hvort taka mætti næringu af sjúklingi í
Bandaríkjunum sem hafði fengið varan-
legan heilaskaða og misst alla hreyfigetu
fyrir fimmtán árum. Þrátt fýrir að læknar
hefðu lýst því yfir við réttarhöld að engin
von væri um bata og að skynjun sjúkl-
ingsins væri engin gripu stjómmálamenn
með Bush-bræðuma í broddi fýlkingar inn
í og vildu skipa sjúkrahúsinu að gefa sjúkl-
ingnum næringu. Það haföi einnig komið
fram við réttarhöld að sjúklingurinn hafði
sjálfúr óskað eftir að vera ekki haldið á lífi
efhann lenti í slíku ástandi. Páfinn lýsti því
yfir að með þv í að taka næringuna úr sam-
bandi væri verið að grípa inn í vilja guðs.
Það skaut því skökku við að páfinn vildi
alls ekki leggjast á sjúkrahús þegar hann
lá sjálfurdauðveikurskömmu síðar, heldur
sagðist vera tilbúinn að deyja. Mamma fór
stundummeð latnesktmáltæki, Quodlicet
Jovi, non licet bovi, en það útleggst: Það
sem leyfist Jupíter leyfist ekki nautunum.
íslenskt orðtak segir næstum: Sitt er hvað
Jóhannes og Jóhannes páfi. Eða eins og
sagt varheima: Þaðsem leyfistJóum levfist
ei bófum. - bj
L.__________1______________________J
íRitstjóri og ábyrgðarmaður:
Eyþór ívar Jónsson.
Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23, 105
Reykjavík.
Sími: 512-7575. Myndsendir: 561-8646.
Netfang: visbending@talnakonnun.is.
Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Há-
skólans.
Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án
leyfis útgefanda.
4