Vísbending - 07.10.2005, Qupperneq 1
V
Viku
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
7. október 2005
40. tölublað
23. árgangur
Skuldir hins opinbera
Góðu fréttirnar í nýju fjárlaga-
frumvarpi ríkisstjómarinnar eru
að ætlunin er að halda áfram að
greiða niður skuldir. Þetta er mikilvægt
verkefni í blússandi hagvexti og þegar
ríkið hefur verið að selja eignir í stórum
stíl. Samkvæmt íjárlagafrumvarpinu
verða greiddar niður skuldir fyrir 57,7
milljarða króna á þessu ári og 6,6 millj-
arða á því næsta. Þetta þýðir að hreinar
skuldir hins opinbera verða komnarniður
í 12,2% árið 2006 (skuldir ríkisins niður
í 7%). Þetta er ekki lítið þegar haft er í
huga að skuldir hins opinbera vom um
41% af landsframleiðslu árið 1995.
Samanburður
r
Ifréttatilkynningu frá fjánnálaráðuneyt-
inu sem birt var með ijárlagafrumvarp-
inu eru settar fram áhugaverðar tölur þar
sem skuldastaða hins opinbera á íslandi er
borin saman við meðaltal í OECD-ríkju-
num. Þar má sjá hlutfall skulda hins opin-
bera frá 1998 í samanburði við meðaltal
OECD-ríkjanna. Samanburður frá árinu
1987 gefur þó enn áhugaverðari mynd
af stöðunni (sjá mynd 1). Þar sést ekki
einungis að hlutfall skulda hins opinbera
(aðallega ríkisins þar sem sveitarfélögin
hafa haldið áfram að safna skuldum) hefúr
farið lækkandi síðustu ár, á sama tíma
og hlutfall skulda í öðmm OECD-ríkjum
hefúr hækkað, heldur sést þar einnig að
sku Idasöfnunin hér var mjög hröð á níunda
áratuginum frarn á miðjan tíunda áratug-
inn. Arið 1987 var hlutfall skulda hins
opinbera af landsframleiðslu einungis
8,2% en þá var það 36,7% að meðaltali í
ríkjum OECD. Þegar komið var fram til
ársins 1994varhlutfalliðhinsvegarkomið
upp í 3 8,7% hér á landi á sama tí rna og það
var41,6% í ríkjum OECDog varmunurinn
því einungis þrjú prósentustig. Myndin
sýnir hins vegar einnig að frá 1996 hefur
þetta hlutfall farið hratt lækkandi á Islandi
og á sama tíma lækkaði það einnig fram
til ársins 2000 í öðmm OECD-ríkjum en
hefur síðan farið ört hækkandi. Munurinn
íprósentustigumámilli íslandsogOECD
Mynd 1. Þróun skulda him opinbera
sem % af VLF1987-2006
íMynd 2. Áœtlaðar skuldir Itins opin-
bera sem % af VLF 2006
Mynd 3. Raunvirði skulda hins opitt-
hera á íslandi (í millj. króna)
í þessurn samanburði nær þó fyrst nú í ár
sama mun og var árið 1987.
Nánari athugun á einstökum ríkjum
OECD gefur einnig áhugaverða mynd. Þar
kemur fram að það eru sjö ríki sem skulda
minna en hið opinbera á Islandi (sjá mynd
2). Danmörk og Ástralía munu næstum
útrýma skuldum hins opinbera á næsta ári
og í Svíþjóð og Finnlandi er hið opinbera
frekar lánardrottnar en skuldunautar. Það
er svo í Noregi þar sem hið opinbera sten-
dur best að vígi. Hið opinbera á Italíu og
í Belgíu skuldar hins vegar hlutfallslega
mest, á Ítalíu er hlutfallið 98% af VLF og
í Belgíu um 90% miðað við áætlun ársins
2005. í Belgíuhefurþettahlutfallþóverið
að lækka á síðustu ámm en það var komið
í 128% árið 1993. í reynd hefur hið opin-
bera bætt stöðu sína í níu öðrum löndum
hvað varðar skuldahlutfalliðjafnmikið eða
meira en hið opinbera á íslandi ef miðað
er við hæsta hlutfall á árinu 1987. Önnur
ríki á Norðurlöndum hafa staðið sig enn
betur en Island (Danmörk hefur lækkað
skuldahlutfall sitt jafnmikið og ísland),
þegar áætlaðar niðurgreiðslur til 2006 eru
reiknaðar með, og hið opinbera í Noregi
allra landa best en þar hjálpar oliuauðurinn
verulega. ÍÞýskalandi,Frakklandi ogJap-
an hefur skuldahlutfall hins opinbera aftur
á móti aukist ört á síðastliðnum ámm, sem
endurspeglar efnahagsástandið í þessum
löndum.
Skuldleysi?
Það hjálpar Islendingum í þessum
samanburði að hagvöxtur hefur
verið meiri hér á landi síðustu árin en í
öðrum OECD-löndum. Mynd þrjú sýnir
að það er fyrst á þessu ári sem raunvirði
hreinna skuldahins opinbera fer lækkandi
ef niðurgreiðsluáætlunin gengur eftir. Þá
er hætt er við að hinu opinbera takist ekki
að greiða niður skuldir sínar að fullu og
að hlutfall þeirra fari á ný hækkandi á
komandi árum þegar dregur úr hagvexti
vegna minnkandi þenslu í hagkerfinu og
hið opinbera eykur framkvæmdir til að
koma í veg fyrir alvarlega skelli.
7j Skuldirhinsopinberahafa Bylgja hneykslisntála í ÞorvaldurGylfasonprófess- a undanfömumámmáíslandr'
I verið að lækka hratt sem ) bandarísku viðskiptalífi í -4 or fjallar um ójöfiiuð á ís- /I og er nú orðinn mun hærri
X hlutfall afVLF á síðast- byrjun21.aldarinnarþarfn- landi.HannbendiráaðGini- I en hann er annars staðar á
liðnum árum ast skvrinear. stnðnllinnhefiirhækkaðörtá Nnrðnrlönrlnm