Vísbending


Vísbending - 03.03.2006, Síða 4

Vísbending - 03.03.2006, Síða 4
(Framhald af siðu 1) Öðru máli gegnir um gufuaflsvirkj- anir. Minna ber á þeim í landslaginu og þær leggja ekki stór landflæmi undir vatn og ekki þarf að bora í gegnum fjöll. En orkulindin gengur hins vegar til þurrðar og aðeins hluti orkunnar í heita vatninu er nýttur. Þessar virkjanir eru því miklu vafasamari en vatnsaflsvirkjanirfrá sjón- arhóli umhverfísvemdarsinnans. Loks er mjög mikilvægt að hugsa um arðsemi tjármagnsins. Engin ástæða er til þess fyrir ráðamenn að stökkva upp á nef sér í hvert sinn sem talað er um að arðsemi af virkjunarframkvæmdum hér á landi sé óviðunandi. Þvert á móti eiga þeir að fagna sérhverri hvatningu til þess að græða meira. Ekkert náttúmlögmál segir að hér á landi eigi að selja orku á miklu lægra verði en alls staðar ann- ars staðar. Kostimir við landið, stöðugt stjómarfar, nálægð við markaði og vel menntað vinnuafl ættu þvert á móti að halda orkuverðinu uppi. Niðurstaða enn mega ekki gleyma því að ekki er búið að ákveða að reisa álver við Húsavík heldur aðeins að kanna hag- kvæmni þess. Margt getur enn sett strik í þann reikning. Gangi dæmið upp til enda er ekki líklegt að þetta álver breyti efna- hagsástandi í landinu mikið en að sjálf- sögðu hefur það mikil áhrif á Húsavík. (Framhald af síðu 2) gengið út á að sanna. Líklegt er að aðrir þættir vegi þar þyngra á vogarskálun- um, eins og menning, uppeldi, verð og aðgengi. Af þessu leiðir að rökin fyrir banni á áfengisauglýsingum em ef til vill veikari en i fyrstu mætti ætla. Heimildir: Friðrik Eysteinsson: Hafa auglýsingar neikvœð áhrif á börn? Markaðspúls- inn. RÚV, 2002. Nelson, Jon P., og Douglas J. Young: Do Advertising Bans Work? An International Comparison, International Journal of Advertising 20(3), 2001. Birgir Guðmundsson: Birtingar áfeng- istengds efnis í íslenskum prentmiðlum 1996-2005. Lýðheilsustofnun, október 2005. Þóroddur Bjamason: Þjóðarspegillinn. Háskóli Islands, október 2005. European School Survey Project on Alcohol and other Drugs. ESPAD, 2004. (Framhald af siðu 3) Krónubréfin falla í þennan flokk. Við- skipti með þessi bréf geta farið fram án þess að nokkrar krónur skipti um hendur. Viðmiðun krónunnar virkar eins og hver önnur vísitala. Reyndar era allflest alþjóð- leg viðskipti með gjaldmiðla af þessu tagi. Eingöngu er um að ræða færslur á milli reikninga. Seðlar og mynt koma ekki við sögu. Til þess að innstreymi fjármagns eigi sér stað í kjölfar útgáfu krónubréfa þarf erlendi bankinn að tryggja: a) að hann hafi kaupendur að krónu- bréfunum, b) að fyrir hendi sé lántakandi (inn- lendur banki) sem óskar eftir láni að andvirði krónubréfanna, c) að vaxtamunur á innláni og útláni sé fúllnægjandi. Streymi ijármagnsins er sýnt á teikn- ingu 1. Aftur er minnt á að ekkert fjárstreymi á sér stað nema þörf sé fyrir fjármagnið í íslensku hagkerfi. Hugsanlega er innlendi bankinn einungis að breyta skuldbinding- um sínum eða viðskiptavina sinna úr erlendum gjaldeyri í krónur. I því tilviki eru hcildaráhrif íjárstreymisins engin. Innlendi bankinn er einungis að losa sig við gengisáhættu en jafnframt nokkuð ömgglega hærri vexti. Ef fjármagnið er endurlánað til innlendra lántakenda em þeir væntanlega að veðja á fall krónunnar og gjalda fyrir með háum vöxtum. Astæður fyrir viðskiptum erlenda bankans og þess innlenda liggja því ljósar fyrir. I öllum tilvikum er erlendi bankinn að létta af sér gengisáhættu en ástæður innlenda bankans geta verið mismunandi: a) Lánaskipti. Innlendi bankinn skuldar þeim erlenda gjaldeyri sem hann vill létta gengisáhættu af. Því er hentugt að gera lánaskiptasamning við erlenda bankann. b) Endurfjármögnun. Innlendi bankinn er með gjaldeyrislán frá þriðja aðila sem hann vill létta gengisáhættu af. Hann notar lánið til að endurljánnagna eldra lánið. c) Frumlán. Innlendi bankinn er ekki með gjaldeyrislán sem hann vill eða getur létt gengisáhættu af en þarf nýtt lán sem hann vill hafa í krónum. ISBENDING Aðrir sálmar V_____________________;______x ( \ Er gott að Háskólinn verði bestur? Háskólarektorsetti metnaðarfúlltmark- inið fyrir skólann í útskriftarræðu á dögunum. Ræðan var svolítið í þeim stíl sem maður á að venjast nú á dögum á aðal- fúndum fyrirtækja. Forystumenn setja sér mjög metnaðarfull markmið og segja frá þeim opinberlega. Enginn efast um það að eitt æðsta markmið skólastjóra er að skól- inn verði góður. Einhver verður samt að spyrja hvemig gæði skóla eru metin. Það er nefnilegaekki víst að það sem einum fínnst gotthenti öllumjafnvel. Tökumdæmi. Þeir sem ætla að stunda súmóglímu verða að bæta á sig sem allra mestri fitu til þess að geta náð langt í greininni sem í Japan er talin alvömíþrótt. Hér á landi em þeir sem hafa vöxt súmóglímumanna yfirleitt ekki taldir góð fyrinnynd æskunnar. Gæði háskóla eru yfirleitt metin eftir því hve afkastamiklir vísindamenn við þá em. Sá vísindamaður er talinn bestur sem fær flestar greinar birtar í virtum vísindarit- um. Líklega er það ágætur mælikvarði á vísindamenn. En það er alls óvíst að góður vísindamaður sé góður kennari. Sannast sagna er það svo að hjá mörgum góðum vísindamönnum er kennslan ill nauðsyn. Þeir hafa enga löngun eða getu til þess að miðla misáhugalitlum nemendum afþekk- ingu sinni. Auðvitað er það ekki algilt en fúrðu oft fer áhuginn á nemendum þverr- andi eftir því sem vísindaáhuginn eykst. Þess vegna er besta kennslan ekki í þeim skólum þar sem mestu vísindamennirnir eru heldur þar sem kennaramir verða að standa sig vel vegna þess að þeir eru ein- göngu metnir miðað við árangur í kennslu. Þó er undantekning frá þessu. Nemendum í doktorsnámi erþað nauðsyn að vinna verk- efni sitt með vísindamönnum. Þar er hins vegar komið að seinni veikleika þeirrar stefnu að verða í hópi 100 bestu háskóla í heimi. Einn helsti styrkur Islendinga er hve víða þeir hafa lært og sótt sérmenntun sína. Því fleiri semljúkasémámihérheima þeim mun færri njóta þess að kynnast öðru umhverfi. Háskólinn gæti þannig lent í hópi 100 bestu en við sætum uppi með heimalninga sem væru þjóðfélaginu minna virði en ef þeir hefðu farið utan. bj 'Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23, 105 Reykjavík. Sími: 512-7575. Myndsendir: 561-8646. Netfang: visbending@talnakonnun.is. Málfarsráðgjöf: Málvisindastofnun Háskólans. Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök. Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita ,án leyfis útgefanda. 4

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.