Vísbending - 25.08.2006, Blaðsíða 3
ISBENDING
Heiðarleiki kemst ekki á blað í þess-
ari yfirlýsingu, væntanlega vegna þess
að stjómendurteljahannsjálfgefinn.En
erhann sjálfsagðari en að viðskiptavinir
vilji breytingar til batnaðar? Margir hafa
reyndar sagt að þeir hafi lært mikið á því
að vinna að stefnumótunarvinnu. Þann-
ig sjái þeir fyrirtækið í víðara samhengi
og hugsa um stöðu þess í tengslum við
aðra. Menn svara spurningum sem þeir
hafa kannski aldrei velt fyrir sér. Hvaða
markaði þjónum við? Þjónum við fyrir-
tækjum eða einstaklingum? Getum við
þjónað öllum fyrirtækjum?
Hver á að sjá stefnuna?
Vegna þess sem áður er sagt er kannski
ekki ástæða til þess að stefnunni
sé hampað mikið út fyrir fyrirtækið.
Stefnumótunin er fyrst og fremst æfíng
fyrir starfsmennina. Þeir kynnast betur
innbyrðis og kynnast fyrirtækinu betur.
Stefnan þarf ekki að vera neitt leyndar-
mál en engu að síður á hún kannski ekki
erindi við allan almenning.
Stöku sinnum þegar fyrirtækjum
verður eitthvað á er stefnan dregin fram
afþeim sem hafa hom í síðu þeirra. Blaða-
menn sýna fram á það að fyrirtæki sem
ætlar að vera ábyrgt og staðfast hegðar
sér alls ekki þannig. En ekki fara allir
eftir öllum boðorðunum þó að menn viti
að það er hverjum manni hollt.
Æfing öðru fremur
Best er að líta á þá vinnu sem fer
til stefnumótunarsemæfingu. Fyrir-
tækin gera sér grein fyrir því að hvaða
sviði þau viija einbeita sér. Hverjar em
vörurnar, hverjir em viðskiptavinirnir,
hvers konar fólk þarf til þess að vinna vinn-
una? Til stíflugerðar á Kárahnjúkum þarf
öðmvísi fólk en í banka eða á dagblað.
Það er kannski augljóst, en öll fyrirtækin
verða að ákveða á hvaða sviði þau vilja
vera góð og hvers konar starfsmenn þarf
til þess. Það er býsna algengt að fyrirtæki
sem eru að vaxa viti ekki hvemig þau eiga
að vera. Þau grípa til ýmissa aðferða til
þess að stækka og em þá fljótt komin út
fyrir sitt sérs við. Slíkum fyrirtækj um væri
hollt að hafa stefnu. Sem alþekkt dæmi
má nefna Sambandið, en fleiri íslensk
dæmi eru vel þekkt. Það er mjög erfitt
að einbeita sér að mörgum fyrirtækjum
í ólíkum rekstri samtímis.
Stefna flýtir fyrir stjórnendum þvi að
þá eru menn fljótari að taka ákvörðun en
ella þegar nýir kostir bjóðast. Þess vegna
er þeim tíma sem varið er í stefnumörkun
ekki kastað á glæ en afurðin, stefnan
sjálf, ætti svo að fara beint ofan í skúffu
hjá þeim sem að henni hafa unnið. Sá
stjórnandi sem ekki hefur sveigjanlega
stefnu getur ekki tekist á við vandamál
þegar þau koma upp.
r
Stefna
Virðisaukandi viðskipti
Við viljurn að þeir sem vilja breytingar til batnaðar velji okkur.
Við viljum bjóða upp á bestu lausnir á öllum þáttum tækni, ferlis
og skipulagningar.
Við viljum nota innsæi okkar, staðfestu og ábyrgðartilfinningu
sem grunn að virðisauka.
Verkefni
Viðskiptavinir og markaðir
• Við viljurn vera áreiðanlegur og traustur viðskiptafélagi sem
hjálpar viðskiptavininum að ná markmiðum sínurn.
• Við viljum vera það fyrirtæki sem býður upp á heildarlausnir
fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og vera ieinnig virtur þjónustuaðili
fyrir 300 stærstu fyrirtækin.
• Við viljum vera markaðsleiðandi í ákveðnum greinum.
Starfsmenn og stjórnendur
• Við viljum ráða og halda vel menntuðu, staðföstu og ábyrgu
starfsfólki sem hefúr mikla aðlögunarhæfileika.
• Við viljum tryggja áframhaldandi tengsl milli virðisauka og launa.
• Framkvæmdastjórar okkar verða að geta tryggt jafnvægi milli
starfsmannastjórnunar, viðskipta og skipulagningar.
Ferli og skipulagning
• Við viljum tryggja að allir ferlar séu virðisaukandi.
• Við viljum skipuleggja fyrirtæki okkar með besta hætti þannig að
við séum stöðugt að taka ákvarðanir í þágu viðskiptavinanna.
Fjármál
• Við viljum þróa þau svið sem gefa mest af sér til þess að
hagnaður fýrirtækisins til langs eða skannns tíma verði sem mestur.
• Við viljum að fjárhagsstaða okkar sé jafnan nægilega góð til þess
að tryggja fjárhagslegt frelsi til framkvæmda.
Vörur og þjónusta
Við viljum bjóða upp á úrval af
og þjónustu sem styður þarfir
viðskiptavina en er ekki of
sérhæfð.
Við viljum að viðskiptavinir
fái þjónustu og vörur hratt
og vel.
Við viljum safna upplýs-
ingum og reynslu þannig
að við bjóðum upp á bestu
fáanlegu vörur og þjónustu.
J
3