Frjáls verslun - 01.10.1946, Blaðsíða 45
eru 10, og að þeim meðtöldum eru nú samtals 1528
fullgildir félagsmenn í V. R.
Launa- og kjaramálið er óefað veigamesta málið,
sem félagið hefur haft til úrlausnar á árinu. Hinn 18.
jan. s.l. voru í fyrsta sinn undirrritaðir heildarsamn-
ingar um kaup og kjör verzlunarfólks, og lá mikil
vinna að baki því bráutryðjendastarfi. Launakjara-
nefnd félagsins hefur verið starfandi að launamálun-
um allt árið. Hún hefur leyst hlutverk sitt af hendi
með mestu prýði og komið fram með sanngirni og
trúmennsku. Vil ég hér með færa henni þakkir stjórn-
arinnar og félagsmanna fyrir vel unnin störf. I nefnd-
inni eiga sæti: Adolf Björnsson form., Baldur Pálma-
son, Björgúlfur Sigurðsson, Carl Hemming Sveins og
Gyða Halldórsdóttir. Launasamningurinn er öllum fé-
lagsmönnum kunnur, og því ekki ástæða að skýra frá
honum sérstaklega. Hann hefur almennt reynzt vel,
og var honum ekki sagt upp nú í haust, svo að hann
framlengist sjálfkrafa til áramóla 1947—48. Hins
vegar var í haust samið sérstaklega um lokunartíma
sölubúða og skrifstofa og það samkomulag síðan fellt
inn í launasamninginn. Samninganefndir kaupsýslu-
manna liafa og komið afar vel fram, og vil ég hérmeð
þakka þeim skilning þeirra og samvinnulipurð. Kaup-
sýslumannanefndirnar voru þannig skipaðar: Bergur
G. Gíslason form., Gunnar Hall, Isleifur Högnason,
Páll Sæmundsson, Sigurliði Kristjánsson og Sveinn
Helgason; — við lokunarlímasamningana: Bergur G.
Gíslason form., Árni Árnason, Björgvin IL Jónsson,
Eyjólfur Kristjánsson, Gunnar Pétursson, Kristjón
Kristjónsson, Lúðvík Bjarnason, Óskar Norðmann og
PáB Jóhannesson. Auk þess var Helgi Bergsson þeim
til aðstoðar í bæði skiptin. — Þá má og láta þess get-
ið, í sambandi við launamálið, að gerðardómur í
launamálum verzlunarfólks hefur fellt úrskurð í 2
ágreiningsmálum. Við samningana nú í haust komu
samninganefndirnar sér saman um að framvegis verði
starfandi allt árið nefndir frá báðum aðiljum, sem
laki til meðferðar ágreiningsmál út af kaupi og kjör-
um. áður en þau eru lögð fyrir gerðardóm, og hafi
með höndum endurskoðun launasamningsins.
Snemma á árinu var tekið að svipast um eftir rit-
stjóra að blaði félagsins, „Frjáls Verzlun“, þar eð
það hafði þá verið ritstjórnarlaust og útgáfan legið
niðri um alllangan tíma, utan þess sem ritnefndin sá
um útgáfu eins tölublaðs. Komu því ekki út nema 5
hefti á árinu 1945. Stjórn og ritnefnd félagsins kom
sér þá saman um að ráða Baldur Pálmason til starfsins
um eins árs skeið, en hann var annar maður af tveim-
ur, sem völ var á. Vegna fyrri atvinu sinnar, gat hann
þó ekki byrjað starf sitt við blaðið fyrr en í maí,
og hefur hann síðan séð um útgáfu 5 tölublaða. 6.—7.
tölublað er nú full])rentað og verður sent út til áskrif-
enda eftir 2—3 daga, og í undirbúningi er þrefalt
liefti, sem reynt verður að koma út fyrir jól, ef þess
er nokkur kostur, en í síðasta lagi um áramót. Sam-
tals verður því árgangurinn í ár 10 tölublöð, og má
það teljast allmikil framför frá því sem verið hefur
síðustu árin, auk þess sem lesmál hvers heftis hefur
verið stækkað talsvert að blaðsíðutali. Að ekki hefur
þó náðst enn betri árangur má kenna því, að mjög
erfiðlega gekk um prentun framan af ári, og fór svo,
að ekki var annars kostur en skipta um prentsmiðju,
en það hafði líka tafir í för með sér, sem vonlegt var.
1 öðru lagi, og ekki síður, hafa verzlunar- og kaup-
sýslumenn reynzt næstum ófáanlegir til að skrifa um
hagsmunamál stéttarinnar í blaðið, og er af þeim
undirtektum helzt að sjá svo, sem þeim liggi blaðið
í létlu rúmi og jafnframt hagsmunir sínir og mál-
staður stéttarinnar. Ef úr rætist í þessu efni, er ekki
að efa, að hægt muni að halda útgáfunni í góðu horfi.
Þótt tap hafi orðið nokkurt á útgáfu blaðsins í ár,
er það ekki í fyrsta skiptið, sem það hefur komið fyr-
ir, né hið mesta, sem orðið hefur. Tapið er heldur
ekki óskiljanlegt, með tilliti til þeirrar niðurníðslu,
sem útgáfan var komin í. Ekkert hafði verið gert,
til þess að afla blaðinu nýrra áskrifenda, svo að þeim
fór fremur fækkandi en liitt, en nú í ár hefur verið
reynt að útbreiða það, eins og kostur hefur verið,
og liefur sú tilraun borið þann árangur, að á annað
hundrað nýir áskrifendur hafa bætzt í hópinn, sem
telur nú um 1450 manns. Er það raunar óhæfilega
lág tala, miðað við fjölmenni verzlunarstéttarinnar
um allt land, en væntanlega raknar betur úr því atriði,
þegar útgáfan kemst á eðlilegan rekspöl oð nýju.
— Ég lief gerzt nokkuð langorður um blaðmálið,
vegna þess að í því máli hafa orðið allmiklar fyrir-
komulagsbreyingar, í tíð fráfarandi stjórnar.
Þá kem ég að öðru máli, sem hefur tekið miklum
stakkaskiptum á s.l. ári, sem sé félagsheimilið. Eins
og flestir félagsmenn munu vita, var rekstur þess all-
mjög kominn út um þúfur í byrjun starfsársins og
liafði svo verið þá að undanförnu, svo að einsætt var,
að gera þurfti þar á einhverjar breytingar til bóta.
Var hvorttveggja, að reksturinn stóð naumast undir
sér, og ekki síður liitt, að á heimilinu var höfð um
hönd allskonar óregla, svo að til stórrar skammar
var. Á áliðnum s.l. vetri komst stjórn og veitinganefnd
í samband við Steingrím Karlsson veitingamann og
systur bans, Ingibjörgu, og höfðu þau hug á að taka
að sér rekstur félagsheimilisins á eigin reikning, sem
leigutakar, en þó undir umsjón veitinganefndar og
með tilliti til áframhaldandi reksturs félagsheimilis.
Eftir vandlega yfirvegun stjórnar, veitinganefndar og
húsnefndar, og með samþykki þessara aðila, var geng-
ið til samninga um leigu heimilisins til 14. maí n.k.,
og tóku fyrrnefnd systkin við rekstri þess, seint í júní
s.l. Með þessu ávannst margt. Reksturinn var tryggð-
ur fjárhagslega, umgengni heimilisins tók gagngerð-
um breytingum, fæðissala handa félagsmönnum komst
á, sem lengi hafði verið áhugamál þeirra, o. s. frv.
Það var aðeins eitt, sem félagið þurfti að láta koma
FRJÁLS VERZLUN
205