Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1947, Blaðsíða 10

Frjáls verslun - 01.09.1947, Blaðsíða 10
Úr m.yndasafni V.R. XII. Carl Hemming Sveins. eignalausan vinnulýð, sem þeim er ómissandi. Þessi vinnulýður er andstæðan, og baráttan milli þess, sem er ríkjandi, og þess, sem er andstætt því, leiðir af sér sam- runa eða stéttalaust þjóðfélag." Þarna var Hegel, eins og Marx notfærði sér hann: 1) Ríkjandi stétt, 2) andstæð stétt, 3) bar- átta þessara stétt og 4) stéttlaust þjóðfélag. I Kommúnistaávarp- Engels. inn minnist Marx ekkert á síðari kenningar sín- ar um gildi vinnu og vöru, sem seinns verður getið um, en byggir valdatöku vinnufólksinsein- göngu á sögulegri nauðsyn þess. Marx er þá enn ekki farinn inn á þær hagsfræðilegu leiðir, sem hann síðar fór. Bókadálkur Nokkrar leiðbeiningar um bókaval Eins og sésl á auglýsingum blaðanna hafa bækurn- ar streymt út nú fvrir jólin, líkt og venjulega. Það mun ekki vera í nokkru landi nema íslandi. sem bœkur cru jafn almennar gjafir. Þetta er menningar- vottur, sem er arfur alda gamallar ástar þjóðarinnar á sögum, Ijóðum og hverskyns fróðleik. „Frjáls Verzl- un“ vill að vanda benda lesendum sínum á nokkrar úrvalsbækur til gjafa. Umsagnirnar geta aðeins orðið stuttar, en þær eru í einlægni ritaðar, og getur hver lesandi treyst því, að sú bók, sem „Frjáls Verzlun4' mælir með, er fyllilega til sóma gefandanum og ekki síður höfundinum. „FAXI“, eftir dr. Brodda Jóhannesson, (Nor'öri). Þelta er bókin um hestinn, sem löngum hefur verið kallaður þarfasti þjónninn. Höfundur rekur heimildir um hestinn og það, eem hann áhrærir, allt aftan úr Fandnámu og Fddu til síðustu rita. í fljótu bragði gæti sýnzt svo sem þelta væri einskonar fræðirit. þurrt til lestrar og aðsins fyrir nokkra útvalda. En það er öðru nær. Bókin er svo lifandi, að hún líkist öldum góðhesti. Hún er krydduð sögum og sögnum, fornum og nýjum. Og svo eru rnvndir Halldórs Péturssonar margar með snilldarbragði. Ég býst við að flestum verði minnisstæð litmyndin í miðri bókinni af hestaat- inu í Njálu, eða myndin af Gunnari á Hh'ðarenda. þegar hann stöðvar hest sinn á Gunnarshólma. „Faxi“ er prentaður í Prentverki Odds Björnssonar á Akureyri. Það virðist svo sem reynsla seinni ára sýni, að hver sá, er fær sér bók, sem þar er prentuð, fái í hendurnar fallega bók, vel prentaða og vel bundna. Því miður er ekki hægt að rita hér lengra mál um „Faxa“, en það skal að endingu sagt, að „Faxi“ er tvímælalaust fallegasta bók, sem komið hefur hér út á þessu ári, og þarf jafnvel að leita nokkuð langt aftur til að finna aðra slíka. ★ BESSASTAÐIR. Þœttir úr sögu höfuSbóls. Eftir Vilhj. Þ. Gíslason (NorSn). Þetta er snyrtileg bók að lrágangi, full af myndum. Það þarf ekki að kynna höfundinn, hann er vel þekktur, fróðleikur hans og frá- sagnargáfa. Bessastaðir voru lengstum í liuga Islend- inga tákn erlendrar kúgunar og margs konar þrauta. Nú eru Bessastaðir tákn frelsis og framfara. Það má segja að íslendingar hafi hefnl sín á Bessastöðum með því að gera þetta gamla kúgunarbæli að bústað fyrsta forseta íslenzka lyðveldisins. Hver staður á sína sögu, Bessastaðir ef til vill fjölþættari sögu en nokkurt annað byggt ból á landinu. Þetta er snyrtileg og eiguleg bók. E. Á. 162 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.