Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1947, Page 13

Frjáls verslun - 01.09.1947, Page 13
Merkisdagar kaupsýslumanna í Lóni, á Djúpavogi og lengst á Fáskrúðsfirði. Nokkru eftir aldamótin fluttist Bjarni til Eskifjarðar, bjó þar til ársins 1924 og stundaði útgerð. Árið 1924 flutti hann búferlum til Reykjavíkur, var um 6 ára skeið gjaldkeri hjá „Bræðurnir Ormsson“, en tók síðan að sér skrifstofustjórastöðu hjá miðstjórn Sjálf- stæðisflokksins, og því starfi gegnir hann enn í dag, þrátt fyrir aldurinn. Bjarni Sigurðsson hefur gegnl mörgum umfangs- rniklum og vandasömum störfum um dagana, auk þess, sem að framan er getið. í heimbyggðum sínum á Austurlandi var hann valinn til forustu í félags- og sveitamálum, var t. d. hreppstjóri, oddviti, sýslu- nefndarmaður og safnaðarfulltrúi um tugi ára, átti lengi sæti í yfirkjörstjórn og var nokkrum. sinnum settur sýslumaður í forföllum. Má af þessu marka, hverjum trúnaði Bjarni hefur sætt af sveitungum sín- um, enda er hann gæddur frábærri atorku, áhuga og festu um allt það, er hann tekur sér fyrir hendur, samfara skarpskyggni og öðrum mannkostum. Eggert Kristjánsson, stórkaupm., átti fimmt- ugsafmæli 6. okt. s.l. Eggert hefur rekið heildverzlun hér í ba? um 25 ára skeið og á því einnig starfsmæli um þessar mundir. Hann hefur verið mik- ill atkvæðamaður í kaupsýslustétt landsins og verður væntanlega lengi enn, því að starfsþrek hans er i fullu fjöri og áhugi hans glaðvakandi. Síðan 1935 hefur liann verið form. Félags ísl. stórkaupmanna og um mörg ár átt sæti í stjórn Verzlunarráðs íslands og verið varaformaður þess að undanförnu. Þar að auki hefur hann gegnt erindrekstri fyrir ríkisins hönd á erlendum vettvangi, og hvarvetna reynzt hinn nýt- asti maður í afskiptum sínum af viðskiptamálum. Eggert Kristjánsson er harðduglegur maður, sem lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Hann er skel- eggur og beinskeyttur málafylgjumaður, og mælskur vel. í þágu kaupsýslustéttar landsins vinnur liann nhkið og gott starf, og fyrirtæki sínu er hann ötull og hagsýnn stjórnandi, enda er það fyrir löngu í stærstu og góðkunnustu verzlunarfyrirtækja landsins. „Frjáls Verzlun“ árnar Eggert til hamingju með bæði. afmælin. Jón Gíslason, verzlunarma'öur í Reykjavík, átti 80 ára afmæli 10. ág. s.l. og hafði þá jafnframt unn- ið um 35 ára skeið hjá sama fvrir- tækinu, heild- verzlun Garðars Gíslasonar. Lét hann þá af störf- um. J ón er Árnes- ingur að ætt og stundaði sjóinn fram eftir ævi, ívar m. a. bátsfor- maður á Stokksevri um skeið. Til Reykjavíkur flutt- ist hann skömmu eftir aldamótin og gegndi ýmissi vinnu lil sjós og lands, unz bann réðist sem birgða- stjóri til Garðars Gíslasonav. Jón er prúðmenni mesta, trúr og dyggur í orðum og gerðum. Hann hefur rækt öll sín störf með sæmd og prýði og notið hollustu allra kunnugra. Hann getur lilið með ánægju yfir farinn veg — og yfir þann veg líta líka aðrir með velþóknun og þakklæti. Bjarni SigurSs- son, skrifstofu- stjóri Varðarfé- lagsins -varð átl- ræður 1. ágúst s.l. IJann er fæddur að Þykkvabæjar- klaustri í Álfta- veri, sonur hjón- anna Sigurðar Nikulássonar, bónda þar. og Rannveigar Bjarnadóttur. Þar ólst hann upp til 15 ára aldurs, fór þá einn vetur til sjóróðra suður í Garð, en var síðan komið fyrir til vinnu og náms hjá sr. Jóni Jónsyni í Bjarnarnesi, um eins árs skeið. Að því búnu gekk hann á búnaðarskólann á Eiðum og útskrifaðist þaðan með J. einkunn vorið 1887. Síðan gerðist liann barnakennari á ýmsum stöðum: FRJÁLS VERZLUN 165

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.