Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1965, Side 12

Frjáls verslun - 01.07.1965, Side 12
Bylting í bókagerð Tilkoma bóka í fjölútgáfu er e. t. v. mikilvægasta menningar])róunin á síðari helmingi 20. aldarinnar. Enda J)ótt fólk um allan heim sé nú loks tekið að sýna Jiessu atriði áhuga, hefur enginn enn raunveru- lega gert sér fulla grein fyrir ])ýðingu J)essa, né skil- ið að fullu hvað er að gerast í þessum efnum. í enskumælandi löndum er slíkum bókum t. d. gefið rangnefnið „pappabandið“ (paperbaek), enda J)ótt ýmsar pappabundnar bækur séu dýrar og gefnar út Kúskur í Central Park, New York, drepur tímann með því að lesa fjölútqáíubók. í litlum upplögum. Annars staðar, t. d. í flestum Evrópulöndum, er þessi gerð bóka nefnd enn fjar- stæðara nafni, „vasabók", eða það sem er enn fárán- legra „vasastærðarbókin“. IJað væri jafn gáfulegt að tala um „ódýrar bækur eða „stórupplagsbækur“. Fjölútgáfubók (mass circulatiou book) er ekki hægt að skilgreina eftir einhverju sérstöku, tilteknu útliti, né lieldur eftir upplagsstærð eða smásölu- verði. Það er auðvelt að finna dæmi allra })essara einkenna í bókum, sem gefnar voru út fyrir meira en öld, en hinsvegar er fjölútgáfubókin undra- verk, sem spannar heiminn allan, og ekki er hægt að aðskilja samsetningarþætti hennar. Hér er um að ræða nýja tegund í útgáfustarfsemi, sem fyrst fór að taka á sig mynd með útkomu Penguin-bóka- flokksins í Englandi 1935. Hin augljósu einkenni fjölútgáfubóka (sem stund- um cru ranglega talin grundvallareinkenni) sam- einast öll um að gera henni kleift að gegna hlut- verki sínu, en það hlutverk er nánast að brevta aðferðum þeim, sem notaðar eru til að dreifa bók- um, með því að beita nýjum framleiðsluaðferðum, sem ná til þeirra akra, sem enn eru óplægðir meðal bókalesenda, })jóðfélagshópa eða stétta. Það, sem hér er um að ræða, er ekki að bókin hafi aðlagað sig nýjum aðstæðum, heldur er þetta hrein stökkbreyting. Fjölútgáfubókin er eins frábrugðin hinni klassísku bók og prentuð bók var handritinu, og handritið leirtöflunni. Þessi stökkbreyting mun raunar breyta innihaldi bóka Jregar fram í sækir, alveg á sama hátt og hún er J)egar tekin að brevta viðræðum höfundar við lesendur, en í J)eim felast hinar raunverulegu bókmenntir. Með öðrum orðum stendur öll hin ritaða mennt, eins og við höfum þekkt hana í tvær eða þrjár aldir, nú beinlínis andspænis ógnun af hálfu fjölútgáfubók- arinnar, og hinar menntuðu stéttir okkar tíma hafa á röngu að standa ef þær hafa áhyggjur af þessari þróun, með þeim rökum að hér sé um ringulreið að ræða, sem endurspegli nirfilslega hollustu við verð- 12 FRJÁL8 VBRZLTTN

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.