Frjáls verslun - 01.12.1981, Síða 60
[p Rí n
Heimsveldið
Blaðamaður Dagens In-
dustri hitti að máli tísku-
kónginn Pieree Cardin í
mýflugumynd og hafði
við hann viðtal og segir
hér frá tilvonandi veldi
Cardins í matvörudreif-
ingu. Tískukóngurinn
selur enga venjulega
matvöru . . .
í augum margra, jafnvel í
Frakklandi, er Pierre Cardin
ekki annað en vörumerki.
Mjög fínt vörumerki reyndar,
tákn um tísku, munað og
glæsiieik. Ef til vill er hann Ifka
goðsögn. Það fékk ég nú
reyndar á tilfinninguna, þegar
ég hringdi í biaða- og fjöl-
miðladeild hans og fékk þetta
svar: „Því miður, við vitum ekki
hvar í heiminum Pierre Cardin
er. Við erum búnir að skrifa
niður umsókn yðar um viðtal.
Gætuð þér hringt eftir þrjá
mánuði?"
En Pierre Cardin er til, ég hitti
hann sjálfur einu sinni, svo mikið
er víst. Það gerðist þegar ég beið í
biðstofunni og beið þess að fá af-
hentar tilbúnar upplýsingar blaða-
fulltrúanna. Skyndilega stóð hann
þarna Ijóslifandi.
,,Ég þekki yður ekki, bíðið þér
eftir einhverjum sérstökum",
sagði hann svona hálft í hvoru við
mína aumu persónu, og blaða-
deildinni til mikillar gremju notaði
ég tækifærið og sagði: ,,Já, ég bíð
eftir yöurr Hafið þér tvær mínútur
aflögu?" Vel vitandi um að lengri
ræða yrði túlkuð sem móðgun af
minni hálfu, beið ég nú átekta
þessa þekkta Frakka, sem mér
skilst að sé allt að því eins frægur i
Bandaríkjunum og hershöfðingj-
arnir De Gaulle og Lafayette.
Pierre Cardin er engin goðsögn.
Hann er sprelllifandi og dreymir
enn stóra drauma. Hann hóf að
læra dömuklæðskeraiðn hjá
Paquin og Christian Dior 1945. í
dag er hann ekki einungis mesti
tískuhönnuður heimsins, heldur
og á við heilt heimsveldi í efna-
hagslegum skilningi. Cardin hefur
selt fleiri framleiðsluleyfi en nokk-
ur annar iðnjöfur, 490 á móti t.d.
60 leyfum Diors. Meðal annars
seldi hann Kínverjum leyfi árið
1978 þegar hann kom þangaö í
fyrsta sinn.
,,Ef ég sel hverjum Kínverja einn
hnapp, — þá eru það þó alltént
900 milljónir hnappa", sagði
Cardin um þann samning.
Risaveldi Pierre Cardin er fyrst
og fremst ,,la haute couture", þ.e.
skopun fatatískunnar. Og það er
ekki bara að Cardin hanni og
framleiði kjóla og kvenfatnað.
Cardin-merkið er núorðið að finna
á hálsbindum, vasaklútum og
töskum. Það merki má líka finna í
leikhúsunum, á húsgögnum, sæl-
kerafæði og jafnvel innan flug-
vélaiðnaðarins. Upp á síökastið
eru það aðallega sælkerarnir sem
Cardin hefur hugsað um. i sam-
vinnu við hið fræga matsöluhús
Maxims í Paris hefur Pierre Cardin
unnið að sölu á úrvals munaðar-
matvöru eins og kavíar, gæsalifr-
arkæfu, kampavíni, laxi og ýmsu
öðru í þeim dúr, sem bera vöru-
merkið Maxim's-Cardin. Það er
von Cardins með þessu að verða
mesti kaupmaður veraldar með
munaðar-matvörur fyrir sælker-
ana. I þessu skyni hefur hann varið
200 milljónum franka, eða sem
svarar260 milljónum nýkróna.
60