Frjáls verslun - 01.12.1981, Side 63
100 stærstu fyrirtaekin á ísiandi
frjá/s
verz/un
Gagnstætt því sem einhver
kynni aö halda fram, þá hafa langir
textar í auglýsingum ekki þau áhrif
að flett sé framhjá auglýsingunni.
Sé textinn rétt gerður og settur
uþp á ákveðinn hátt þá er hann
undantekningarlaust lesinn af
þeim sem hann höföar til. Þetta
atriði gildir framar öðru fyrir tímarit
sem eru sérhæfð á ákveðnu sviði
atvinnulífs eða þjóðlífsins, — aug-
lýsingarnar eru undantekningar-
laust lesmál í augum þeirra sem
byggja stjórnun og ákvarðanatöku
á uþþlýsingaöflun. Það hefur sýnt
sig á áberandi hátt t.d. í sambandi
við sölu á nýjum bílum, að þær
auglýsingar sem mestum árangri
skila eru þær sem innihalda grein-
argóðar uþþlýsingar um eigin-
leika, búnað og tæknilega út-
færslu bílsins. Slagorð og glans-
myndir duga ekki lengur. Ástæðan
er sú að bíll er meiri háttar fjár-
festing nú á dögum og fólk vandar
valið meira og lætur tilfinningaleg
áhrif koma á eftir raunhæfum
upplýsingum þegar það leggur
mat á hagkvæmni bílakaupa.
Ný og aukin þjónusta við
auglýsendur
Það hefur oft verið talið standa
íslenzkum fjölmiðlum fyrir þrifum
að þeir hafa ekki haft á að skipa
tæknimenntuðum starfskröftum
meðal blaðamanna eins og tíðkast
erlendis. Fyrir þessu eru margar
augljósar orsakir sem ekki þarf
upþ að telja. Frjálst framtak hf.
mun vera eina útgáfufyrirtækið
sem hefur ráðið til sín tækni-
menntaðan starfskraft til að ann-
ast tæknilegt efni og gera því
þannig skil að hægt sé að koma til
móts við þær kröfur sem sérhæfðir
lesendur hljóta að gera. Þetta starf
hefur verið að þróast á undan-
förnum árum, og þá sérstaklega í
sambandi við útgáfu Iðnaðar-
blaðsins en nú í auknum mæli í
öðrum sérritum, svo sem Sjávar-
fréttum, Ökuþór og Frjálsri verzl-
un.
Sá sem hefur þetta með hönd-
um er Leó M. Jónsson. Hann er
véltæknifræðingur með rekstrar-
tækni og markaðsfærslu sem sér-
grein og hefur rúmlega áratugs
reynslu úr atvinnulífinu eftir að
hafa starfað sem sjálfstæður ráð-
gjafi. Hann er auk þess einn fárra
tæknimanna sem skrifað hefur í
blöð og tímarit að staðaldri um
árabil.
Nú getur Frjálst framtak hf.
boðiö auglýsendum aukna þjón-
ustu sem felst m.a. í þýðingum á
tæknimáli, — tæknitextar eru
settir upþ á góðri íslenzku sem
kemst til skila. Þannig geta fyrir-
tæki fengið þýdda kynningar-
bæklinga og leiðbeiningar um leið
og texti er þýddur í auglýsingar.
Jafnframt eru slíkir textar notaðir í
tækninýjungadálkum Iðnaðar-
blaðsins og Sjávarfrétta sé um
nýjung á markaðnum að ræða og
þá er það fyrirtækjunum að kostn-
aðarlausu.
Ráðgjöf í sambandi við mark-
aðsfærslu, t.d. nýrra vara eða
tækja á íslandi er boðin um leið og
samvinna við gerð auglýsinga og
auglýsingaskipulags. Þegar hafa
mörg fyrirtæki notfært sér að geta
gengið að tæknimanni á sviði
auglýsingahönnunar og hafa náð
árangri á þann hátt. Þau fyrirtæki
sem flytja inn vörur hafa komið
með erlenda sérfræðinga, sem hér
hafa verið staddir, til skrafs og
ráðagerða og eftir að erlendi aðil-
inn hefur gengið úr skugga um að
tækniþekking sé til staðar hefur
viðhorfið gjarnan orðið mun já-
kvæðara og þeir hafa aukið
stuðning við söluaðgerðir íslenzka
fyrirtækisins.
Vissu ekki að slíka þjón-
ustu væri að fá
Að undanförnu hafa fleiri og
fleiri fyrirtæki uþþgötvað gildi
þessarar þjónustu. Þörfin er aug-
Ijós og veruleg. Sem dæmi mætti
taka greinar og auglýsingar sem
fjalla um tölvur og tölvutækni.
Þetta er mjög sérhæft svið og
upplýsingar beinast yfirleitt að því
að kynna tölvutækni og þá mögu-
leika sem í notkun tölva felast fyrir
þá sem ekki hafa reynslu af tölvu-
notkun en þurfa á henni að halda.
Það er á þessu sviði, sem mörgum
öðrum, að tæknimenntun og
reynsla í rekstrartækni gerir kleift
að kynna málið þannig að þeir sem
kynnu að hafa gagn af því, án þess
að hafa kynnst því, eigi möguleika
á að fá nákvæmar uþplýsingar, —
einmitt upplýsingar sem þá vant-
aði til þess að gera upp hug sinn.
Frjálst framtak h.f. hefur á að
skipa þjálfuðu og mjög hæfu sölu-
fólki. Þetta fólk hefur það hlutverk
að kynna sér hvað það er sem gæti
hjálþað fyrirtækjum að ná auknum
árangri í sölu, skipuleggja slíka
aðstoð, bjóða hana og fylgjast
síðan með árangrinum og miðla
þeim upplýsingum til fyrirtækj-
anna. Þegar sölufólkið hefur verið
að bjóða þessa nýju tækniþjón-
ustu og þá möguleika sem í henni
felast fyrir auglýsendur hefur ekk-
ert farið á milli mála, að hana hefur
lengi vantað, — viðkvæðið er
gjarnan: ,,Ég vissi ekki að svona
þjónusta væri yfirleitt fáanleg, —
því síður að hún kostaði ekki
neitt'.