Fregnir - 01.12.1976, Blaðsíða 6
6
Um þessar mundir hafði aðalfundur FB skipt um full-
trúa í launamálaráði, þar eð Guðrún Karlsdóttir gaf
ekki kost á sér lengur. Elfa Björk Gunnarsdóttir
var kosin aðalfulltrúi og Guðrún Gísladóttir til vara
Það kom í hlut þessara tveggja að fjalla um lokaþátt
þessara samningaumleitana við Fjármálaráðherra.
Gengið var að mestu út frá samningunum, sem Felag
íslenskra fræða hafði gert og tekið inn ákvæði um
heimild fyrir launuðu rannsóknarleyfi til framhalds-
náms erlendis, sem svarar til allt að þrem mánuðum
á sex ára fresti. Einnig voru tryggingaákvæði sam-
ræmd sams konar ákvæðum annarra kjarasamninga.
Eftir nokkurt þóf fékkst inn í samninginn ákvæði um
hækkun launa bókavarða hjá Iðnskólanum og Orkustofn-
un og ákvæði um laun deildarstjóra í stóru safni,
þótt enn gegni enginn meðlimur FB slíku starfi.
Þetta voru sem sagt þeir samningar, sem undirritaðir
voru 17. nóvember S.l. og tóku gildi 1. júlí 1976.
Að loknu þessu samningaþófi fer ekki hjá því, að sú
hugsun hvarfli að manni, að mikinn tíma og fyrirhöfn
hefði mátt spara, ef málin hefðu frá upphafi verið
rædd af einlægni, með það fyrir augum að komast sem
fyrst að samkomulagi, í stað þess að flækja þau
fremur en leysa.
Við skulum þó ekki ergja okkur yfir því, sem liðið
er, heldur fagna því, að þessum fyrstu samningamálum
FB er nú aflokið. Og við skulum vona það að samn-
ingurinn reynist þann veg uppbyggður að formi og efni
að auðveldara verði um framhaldið.
í desember 1976
Guðrún Gísladóttir'
Skrá um lokaverkefni í bókasafnsfræði 1964-1976
Aðalheiður Friðþjófsdóttir: Skrá um íslensk leikrit
1950-1959. 1970.
Aki Gíslason: Bessastaðaprentsmiðja og blaðaútgáfa
Skúla Thoroddsens. 1973.