Fregnir - 01.12.1976, Qupperneq 9
9
Fréttir frá höfuðstöðvum "stóru skrár" og spjalda-
framleiðslu FB fyrir íslenska útgáfu 1944-1973.
Samkvæmt nýjustu upplýsingum (9.12. 1976) er nú búið
að vélrita 5234 stensla af þeim 9000, sem FB hyggst
fjölga og selja til safna, sem vilja endurnýja spjald-
skrár sínar eða koma sér upp skrám. U.þ.b. 1500 spjöld
bíða stenslunar og eru þá u.þ.b. 2266 spjöld, sem eftir
er að tékka við bækur.
Yfirtékkarar síðustu mánuði hafa verið Sigríður Löve og
Þóra Hólm, stenslari Sólveig Ögmundsdóttir. Félagið
hefur lagt í að kaupa ritvél og hefur nú bæst við nýr
vinnukraftur, Erla K. Jónasdóttir, sem mun aðstoða
Sólveigu við stenslunina. Vonast er til að stenslun
ljúki um eða stuttu eftir áramót. Síðan þarf að lesa
yfir stensla og gera tilvísanir. Verður þá hægt að
skrifa pöntunarlista, sem dreift verður til safna.
í ráði er einnig að gefa út lista yfir nöfn og ártöl
íslenskra höfunda, meðhöfunda, útgefenda og annarra,
sem eiga aðild að bókum, sem spjöld verða seld yfir.
Er þar kominn vísir að íslensku höfundatali, sem bóka-
verði og fleiri hefur sárlega vantað hingað til. í
athugun er að vinna þessa tvo lista með aðstoð tölvu.
Fjölritun spjalda og sala ætti að geta hafist í janúar
eða byrjun febrúar.
Verkefni þetta hefur fram að þessu verið fjármagnað
með fyrirframgreiðslu nokkurra þeirra safna, sem
hyggjast kaupa spjöld af FB og hefur félagið notið
mikillar velvildar og skilnings frá bókavörðum og
bókasafnsstjórnum þeirra safna.
Hins vegar er ljóst, að framkvæmd þessa verkefnis
krefst mikils fjár og starfskrafta. Sótt hefur verið
um styrk frá ýmsum aðilum en án árangurs og nú síðast
um fé á fjárlögum og hefur svar ekki borist frá fjár-
veitinganefnd.
Alltof fáir virðast gera sér grein fyrir gildi þessa
verks fyrir íslensk bókasöfn og bókaútgáfu, en það má
e.t.v rekja til hæversku og hinnar hljóðlátu og fórn-