Fregnir - 01.11.1980, Side 3

Fregnir - 01.11.1980, Side 3
-3- ræddi um upplýsingamiðlun um sveitastjórnamál og Sigrún Klara Hannesdóttir lektor fjallaði um upplýsingar og ákvarðanatöku. Stefnt er að því að gefa þessi erindi út í bæklingi, en óvíst er, hvenær það getur orðið. Panel- umræður fóru fram á eftir erindunum, og tókci þátt 1 þeim auk framsögumanna þau Birgir Isl. Gunnarsson alþingismaður og Guðrún Ásgeirsdóttir sveitarstjórnarmaður, svo og Guðrún Helgadóttir alþingismaður, sem stjórnaði umræðum. Þá var starfað í umræðuhópum. Um kvöldið brugðu fundar- menn sér i kynnisferð upp á Akranes, heimsóttu Bæjar- og héraðsbókasafnið og sátu Raffiboð bæjarstjórnar Akraness. Áfram var starfað í umræðuhópum á laugardagsmorgun, og fyrir hádegi voru niðurstöður hópa kynntar. Eftir hádegi sögðu þær Aðalheiður Friðþjófsdóttir formaður skráningar- nefndar og Guðrún Karlsdóttir formaður flokkunarnefndar frá störfum nefnda sinna og fyrirspurnum var svarað. Að því búnu var landsfundi slitið. Kl. I8.00 þágu landsfundargestir boð forseta íslands að Bessastöðum. Kl. 2G.oo hófst svo 20 ára afmælishóf BÓkavarðafélags íslands í Snorrabæ. Afmælishófið fór hið besta fram; þar var veislukostur góður, Kerborg Gestsu ir, sem kjörin var heiðursfélagi Bókavarðafélagsins, flutti hátíéarræðu, og dans var. stiginn fram eftir nóttu. Formaður landsfundarnefndar var Jón Sævar Baldvinsson, en aðrir nefndarmann voru Anna Magnúsdóttir, Kristín H. Pétursdóttir, Margrét Geirsdóttir, Þóra Hólm, Þórey Axeis- dóttir ög Þorleifur jónsson. Landsfundar- og námskeiðs- gögn er enn hægt að fá í Þjónustumiðstöð bókasafna. ÞJ ÞÓRDÍS í LEYFI ' ÞÓrdís Þorvaldsdóttir verður í leyfi tímabilið 10. nóv. 1980 til 31. des. 1981 og dvelst þá erlendis. Varaformaður Bókavarðafélagsins, Erla Kristín Jónasdóttir, gegnir formannsstörfum á meðan.

x

Fregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.