Fregnir - 01.11.1980, Qupperneq 4

Fregnir - 01.11.1980, Qupperneq 4
-4- FRÁ SAMSTARFSNEFND UM UPPLÝSINGAMÁL Samstarfsnefnd um upplýsingamál var stofnuð i mai 1979. 1 2. tbl. Fregna 1979 var sagt frá hlutverki nefndarinnar og hverjir ættu sæti í henni. Skal þa<5 ekki éndurtekið hér, en hins vegar rakið hið merkasta í starfi nefndarinnar til þessa. Haldnir hafa verið 14 fundir og hafa nefndarmenn kynnt sér fjölmarga þætti upplýsingamála. Hefur verið komið upp skrá yfir verkefni á sviði bókasafna og upplýsingastarfsemi hérlendis. Samstarf snefndi-n - he-fur JaeLtt sér fyrir J5ví'áð bokaverðir i rcinnsóknarbókasöfnum - einkum á sviði raunvísinda og læknisfræði - héldu fundi í því skyni að ræða samvinnu og verkaskiptingu. (Sagt er frá þessum fundum á öðrum stað í blaðinu.) Ásamt með bókafulltrúa ríkisins hefur nefndin hlutast til um að komið yrði á fót skráningamefnd og flokkunar- nefnd. Vert er að geta þess að nefndin hefur sent menntamála- ráðuneytinu bréf þar sem bent er á nauðsyn þess að vel sé hirt um bækur og tímarit í stofnunum hins opinbera og þetta efni sé skráð og gert aðgengilegt. Dæmi var tekið af Náttúrufræðistofnun og minnt á að stofnuninni bærist mikill fjöldi rita, en hún hefði engan fastan bókavörð. í júlí 1980 var lögð fyrir menntamálaráðuneyti greinar- gerð og áætlun um tólvuvinnslu í íslenskum rannsóknar- bókasöfnum og þess farið á leit að fé yrði veitt til þessara hluta. Einnig sótti nefndin um fé til þess að gefa út kynningarefni um upplýsingamál. Loks ber að geta þess að nefndin hyggst á næstunni mynda vinnuhópa til þess að fjalla um tiltekin viðfangsefni í upplýsingamálum. ÞR ÍSLENSK BÓKASKRÁ 1979 Landsbókasafn hefur nýlega gefið út íslenska bókaskrá 1979 og sætir tiðindum að hún er nú i fyrsta sinn tölvu- unnin. Sem fylgirit með skránni kemur nú út i fyrsta skipti íslensk hljóðritaskrá 1979. Sú skrá nær yfir efni á hljóm- plötum og snældum, en slikt efni nefnist hér einu nafni hljóðrit.

x

Fregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.