Fregnir - 01.11.1980, Side 5
SAMSTARFSFUNDIR BÓKAVARÐA
-5-
Að tilhlutan Samstarfsnefndar um upplýsingamál hafa
verið haldnir samstarfsfundir meðal bókavarða í söfnum
sam varða raunvísindi og læknisfræði. Er vonast til að
fundir þessir verði fastir liðir í starfsemi viðkomandi
bókasafna í framtíðinni. Tveir fundir hafa verið haldnir
til þessa, annar i apríl, hinn í júní. Til fróðleiks
verða hér nefnd mál sem til umræðu voru á þessum fundum.
1) Samstarfsnefnd um upplýsingamál. Starfsemi nefndar-
innar kynnt.
2) Núverandi samvinna milli bókasafna og ýmsir mögu-
leikar á aukinni samvinnu.
3) Samvinna um millisafnalán. Sérstaklega rætt um
hlutverk Háskólabókasafns í þessu sambandi.
4) Upplýsingaþjónusta Rannsóknaráðs. M.a. rætt um
hvernig bókasöfn geti nýtt sér þjónustuna.
5) Timaritsáskriftir. Rætt um möguleikann á verka-
skiptingu milli ‘safna um áskriftir tímarita.
6) Lestæki og lesprenttæki fyrir örgögn í íslenskum
bókasöfnum og stofnunum.
7) Listar um uppsláttarrit. Um er að ræða hugmynd þess
efnis að bókasö.fnin taki saman lista yfir helstu
uppsláttarrit sín og síðan verði listum dreift meðal
safnanna. Er þess vænst að slíkir listar stuðli að
samvinnu bókasafna í upplýsingaþjónustu.
ÞR
TÖLVUVÆÐING : ^ : " ' .f
Vikuna 11.-18. nóvember 1979 dvaldist hér á vegum
Háskólabókasafns og Landsbókasafns finnskur maður, Seppo
Vuorihen, sem hefur á hendi forstöðu fyrir tölvuvæðingu
rcinnsóknáfbókasafna í Finnlandi.' "Vérkefni Vuorinens hér
á landi var að veita ráðgjöf um, með hvaða hætti íslensk
rannsóknarbókasöfn gætu beitt töivutækni í starfsemi sinni
NORDINFO kostaði ferð hins finnska sérfræðings hingað og
samningu skýrslu um efnið. Sú skýrsla barst hingað snemma
árs 1980.