Fregnir - 01.11.1980, Qupperneq 10
-10-
FUNDUR UM FÉLAGSSTARF 0G UPPLÝSINGAMÁL A VEGUM NVBF
Dagana 24.-26. okt. s.l. var haldinn i Noregi, á Lysebu
fyrir utan Osló, fundur á vegum Sambands norrænna
rannsóknarbókavarða, NVBF (Nordisk videnskcibeligt Biblio-
tekarforbund). Fundur þessi bar heitið Biblioteksfagligt
samarbejde og BDl-samarbejdet i Norden og eins og það
gefur til kynna var honum ætlað að fjalla um félagsstarf
rannsóknarbókavarða á Norðurlöndum og almennt samstarf
á sviöi 1 þss.VvL. Ifr.fv" fundarins '
voru kvaddar stjórnir félaga rannsóknarbókavarða stjórn
NVBF og einnig stjórn NORDINFO en NORDINFO stóð undir
kostnaði við hann að verulegu leyti.
Á fundinum gerðu framsögumenn frá hinum einstöku félögum
grein fyrir skipulagi félaganna, starfi og stefnumiðum
þeirra. 1 annan stað var greint frá almennri félagslegri
skipun bókavarðastéttarinnar í hverju landi, orsökum og
þróun til núverandi horfs og stöðu félaga rannsóknar-
bókavarða að þvi leyti. Aðrir framsögumenn ræddu vun þróun
upplýsingamála á Norðurlöndum á síðustu árum og norrænt
samstarf á því sviði. Fleiri mál komu til umræðu, svo sem
hlutverk NVBF og æskilegir þættir i starfi samtakanna á
næstu árum.
Fundurinn var að öllu leyti mjög gagnlegur til að styrkja
samstarf félaga rannsóknarbókavarða á Norðurlöndum, bæði
á vettvangi NVBF og beint sín i rnill'i. Hann sóttu rúmlega
30 manns. Fulltrúar íslands voru Einar Sigurðsson
hskólabókavörður, fulltrúi Deildar bókavarða i islenskum
rannsóknarbókasöfnum, Helgi Magnússon bókavörður, formaður
DBÍR, og Ingjaldur Hannibalsson verkfræðingur, varafulltr.
íslands i stjórn NORDINFO.
HM
STÖRF
Brunamálastofnun íslands hefur óskað eftir aðstoð frá
bókasafnsfræðingi við timabundið verkefni.
Við minntun ennfremur á að enn mun vera laus staða
bókavarðar hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins.