Fregnir - 01.11.1980, Side 15
-15-
FRÁ NORDINFO
Hinu fyrsta þriggja ára starfstímabili NORDINFO
(Nordiska samarbetsorganet för vetenskaplig information)
f lauk 1. janúar 1980. I>á fluttist formennska stofnunarinnar
frá Finnlandi til Noregs, og við henni tók fyrir næsta þriggja
ára tímabil Gerhard Munthe ríkisbókavörður. Fulltrúar
íslands í stjórninni fyrir þetta tímabil eru Einar
Sigurðsson háskólabókavörður og Jón Erlendsson verkfræðingur,
en varamenn ^innbogi Guðmundsson landsbókavörður og
Ingjaldur Hannibalsson verkfræðingur. Skrifstofa
stofnunarinnar verður áfram í Finnlandi, a.m.k. fyrst um
sinn.
Á árinu 1980 hefur um 1.8 millj. Fmk. verið ráðstafað
til hinna margvíslegustu verkefna. Þar á meðal er NOSP,
samskrá um erlend tímarit í bókasöfnum og stofnunum á
Noröurlöndum. íslendingar eru beinir þátttakendur í þessu
verkefni, og er Þórir Ragnarsson deildarbókavörður full-
trúi íslands i starfshópi, sem hefur umsjón með því. -
Annars staðar í Fregnum er getiö um f járveitingu NORDII'JFO
til ráðgjafar um tölvuvæðingu bókasafna hér á landi.
Árinu er skipt í þrjú tímabil, að því er umsóknir um
fé til verkefna varöar, og miðast þau við 1. febrúar,
1. mai og 1. september. Langflestar umsóknir koma
venjulega á fyrsta timabili ársins, og má búast við að
mestallt fé ársins 1981 fari til verkefna, sem sótt er
um fé til fyrir 1. febrúar n.k.
Umsóknum skal beint til skrifstofu stofnunarinnar,
og þar er einnig fáanlegt án endurgjalds fréttabréf
hannar, NORDINFO-nytt, en af þvi koma 4 hefti árlega.
Áritunin er:
NORDINFOs sekretariat
c/o Tekniska högskolans bibliotek
Otnásvágen 9
SF-02150 ESBO 15
Finland
Efnissöfnun i þetta tölublað önnuðust:
Kristin Indriöadóttir
Þórir Ragnarsson