Alþýðublaðið


Alþýðublaðið - 20.07.1969, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 20.07.1969, Qupperneq 7
27. Evrópumeistaramótinu í bridge, sem fram fór í Osló 23. júní til 5. júlí, lauk með yfirburðasigri ítölsku heims- meistaranna, eins og við var búizt, en Norðmenn urðu óvænt í öðru sæti, og taka þessi tvö lönd því þátt í næstu heirns meistarakeppni, sem verður í Svíþjóð að ári. 22 þjóðir voru skráðar í mótið, en ein, Líbanon, mætti ekki. íslenzka sveitin varð í 13. sæti á mótinu — vann niu leiki ,tapaði tíu og gerði tvö jafntefli með tæplega 50% vinningshlutfall. Þegar mað- ur lítur á þessar tölur virðist þetta ekki svo afleit frammistaða — og betri en í flestri annarri keppni ,sem Islendingar taka þátt í erlendis. En satt bezt að segja, þá varð maður fyrir miklum vonbrigðum með þennan ár- angur. Sem þátttakandi í íslenzku sveit- inni hafði ég persónulega búizt við ailt öðru og að sveitirr yrði í baráttusætum — og ekki neðar en þetta í sjötta sæti. Ég ætla ekki að koma með neinar afsakanir — en tvær meginástæður eru að mínu áliti fyrir því, að árangur okkar varð ekki betri. Gífurleg hitabylgja gekk yfir í Osló og fyrstu sjö daga mótsins var hitinn þetta milli 30—40 stig. Þessi júní-mán- uður er sá heitasti, sem komið hefur í Osló frá því að mælingar hófust. Spila- staðurinn var í gömlu húsi við Karl Jó- hannsgötu og þar var engin loftkæling. Þetta var eins og suðupottur og spilarar eins léttklæddir og frekast var hægt. Það þótti því engum merkilegt, að spilarar frá ÍS-landi ættu í erfiðleikum, þegar Tyrkir Grikkir, Italir og Spánverjar kvörtuðu. I öðru lagi bjuggu íslenzku spilararnir í Stúdentabænum, sem var gert til að spara fé — en ég held, að sá sparnaður hafi verið í hæsta máta lítill. Stúderrta- bærinn er langt frá keppnisstaðnum, og Norðmenn voru svo „óguðlegir" að hefja keppni fyrir hádegi, en slíkt hefur ekki þekkzt á EM áður, nema óverulega í Stokk hólmi 1956. Það þýddi, að spilarar þeir, sem bjuggu í Stúdentabænum (auk okkar voru þar Belgar, Finnar og Ungverjar — þjóðir, sem náðu lélegum árangri) þurftu að vera komnir á fætur upp úr níu á hverj- um morgni — og þegar spilaö er fram yfir miðnætti, sést, að slíkt er ekki væn- legt til árangurs. 2—3 tíma minni svefn á sólarhring, en þeirra, sem bjuggu við keppnisstaðinn. En nóg um það. Italir voru kóngar þessa móts — og það vakti því ekki litla furðu í hálfleik í sjöttu umferð, þegar úrslit voru tilkynnt, ísland 45 — Ítalía 13. Þetta breiddist út eins og eldur í sinu um keppnisstaðinn. ítalía í taphættu í fyrsta skipti á mótinu og áhorfendur fóru þegar að hópast að borði því í opna salnum þar sem viður- eign þessara þjóða átti að halda áfram. Þar var ekki þverfótað, og það var rétí með naumindum, að maður komst í sæti sitt við spilaborðið. Við Þórir Sigurðsson spiluðum gegn frægustu spilurum heims, Belladonna og Garazzo, en Hjalti Elíasson og Ásmundur Pálsson í lokaða herberginu. Sama uppstilling haföi verið hjá okkur í fyrri hálfleik. Nú, það var byrjað að spila og Garozzo og Belladonna voru ekki sömu spilarar og við höfðum séð fyrr í mótinu, síhlæjandi og leikandi á áhorfendur sem mótheria — heldur menn með samanbitnar varir og oft áberandi taugaóstyrkir. Á fyrsta spili unnum við sex stig — munurinn 38 stig — næsta spil féll — og í spili 19 unnu ítalir 5 stig. Og þá var komið að mesta sveifluspili hálfleiksins — spili nr. 20 og Spil A/V voru þannig: Vestur: Austur: S DG76 S K10983 H D3 H K6 T Á63 T KD L Á1094 L D865 Innan skamms vorum við Þórir komnir í fjóra spaða og átti ég að spila spilið ! Austur. Þetta virtist einfalt og gott spil. Garozzo spilaði út litlum tígli — þristur, tían frá Belladonna og ég vann á fígul kóng og spilaði spaða. Belladonna í Norð ur tók á ásinn og spilaði hjarta sjöi, sexiö og Garozzo hugsaði sig mjög lengi um. Ég var að vona, að hann gæfi, því að þá eru tíu slagir einfaldir — hjarta K hverfur í tígul ásinn. Nú virtits ekki skipta máli þó að Garrozzo tæki á ásinn — ef hann spilar ekki laufi, þá tekur maður spaðann, hreinsar upp rauðu litina — spilar síðan laufa drottningu og það skipt- ir engu máli, þótt N eigi bæði gosa og kóng. Og Garozzo hugsaði enn. Hann tók síðan á hjarta ás og spilaði litlu laufi — og ekki virtist það lakara til að byrja með. Lítið úr blindum og úff — Bella- donna trompaði. Þar með var ekki hægt að vinna spilið, því að tapslagur í laufi er óumflýjanlegur. Spil N/S voru þannig: Suður: Norður: S 2 S Á54 H ÁG102 H 98754 T 954 T G10872 L KG732 L ekkert Á hinu borðinu spilaði Messina í Austur einnig fjóra spaða. Hann fékk sama tígul spil út spilaði spaða sem tekinn var á ás og hjarta sjöi spilað. Eftir langa um- hugsun gaf Suður — og þar með er þeirri sögu lokið. Italía vann 12 EBL stig á spilinu —en munurinn í leiknum var 13 EBL stig fyrir ítalíu eða 6:2. Gremju- legt því að 12 stig gera þó ekki nema 5:3. Hallur Símonarson. Alþýðublaðið — Helgarblað 7

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.