Alþýðublaðið - 23.08.1969, Qupperneq 8
8 Alþýðuiblaðið 23. ágúst 1969
EINAR BJARNASON fæddist 25. nóvember 1907 í
Seyðisfirði sonur hjónanna Bjarna fyrrv. bankaútibús
stj. Jónssonar og Solveigar Einarsdóttur. Hann varð
stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1926
<íg cand. juris frá Háskóla íslands árið 1933. Hann var
ráðinn aðstoðamnaður í fjármálaráðuneytinu 17. jan.
1934, skipaður fulltrúi þar 23. júní 1938 frá 1. júlí s.
4.; skipaður aðalendurskoðandi ríkisins 19. nóv. 1949
irá 1. des. s.á. og hefur gegnt því embætti fram að
iþessu (heitir nú ríkisendurskoðandi). Einar er kunn-
wr fyrir fræðistörf sín á sviði ættfræði og var nú í
isumar skipaður prófessor við Háskóla Islands í þeim
fræðum.
□ Það vakti allmikið umtal og eigi lítinn úlfaþyt, er
Einar Bjarnason, ríkisendurskoðandi, var á dögunum
skipaður prófessor í ættfræði við Háskóln íslands:
sá fyrsti í þeirri grein. Voru menn ekki á eitt sáttir
um réttmæti þessa prófessorsembættis, án þess þó,
að þeir efuðust um persónulega hæfni Einars cg sam-
vizkusemi til ættfræðirannsókna. Óánægjuraddirnar
kváðu eigi aðeins við utan veggja háskólans, heldur
eg innan veggja hans, og mun stofnun prófessors-
embættis við Háskóla íslands vart hafa sætt eins
misjöfnum dómum í annan tíma. Það var því ekki að
ástæðulausu, að ég labbaði mig á fund Einars Bjarna-
sonar einn (óvenju)góðan veðurdag nú fyrir skömmu
og fékk að leggja fyrir nokkrar spurningar af tilefni
hinnar nýju embættisveitingar:
AÐ VERA
PRÓFESSOR
— Hvernig fellur yður nú að
vera orðinn prófessor þvert of-
an í ýmsa „páfa“?
— Ágætlega. Ég hugsa gott
til þess að fá tækifæri til að
starfa að þessu óskiptur.
— Þér hafið eflaust orðið
var við þá gagnrýni, sem stofn-
un þessa embættis hefur sætt.
Hverju viljið þér svara henni?
— Ja, helzt engu. Ég tel
þeirri gagnrýni ekki stefnt að
mér persónul. og tel því ekki
ástæðu til að svara henni sér-
staklega. En ég get vel skilið
það viðhorf sumra háskólans
manna, að meira hefði legið á
öðru; um slíkt má auðvitað allt
af deila, þó að ég eigi ekki von
á því að þetta embætti mitt
taki neitt frá öðrum eða seinki
stofnun annarra prófessorsem-
bætta, sem brýn þörf er á.
ER ÆTTFRÆÐIN
VÍSINM?
— Sumir hafa látið í veðri
vaka, að ættfræði verði naum-
ast talin til vísinda — einkum
þar sem hún sé reist á ákaflega
ótraustum grunní — og eigi því
ekkert erindi inn í Háskóla ís-
lands. Hvað viljið þér segja
um þá hlið málsins?
— Ég er svo ókunnugur,
hvaða kröfur menn gera í því
sambandi. Ættfræðin hefur oft
og tíðum ekki verið nógu vís-
indalega unnin, það skal að
vísu játað. og því fengið það
orð á sig að vera fremur dægra
dvöl og tómstundadútl en alvar
leg vísindi. En betta hefur stað-
ið og stendur mjög til bóta.
— En er nú ekki raunin sú,
að ekki burfi nama eina rang-
feðrun til að kollvarpa heilli
ættartöiu?
— Ójú, rangfeðranir geta
auðvitað valdið tilfinnanlegri
brenglun, en við því er ekki
gott að gera. „Mater certa ,est“,
en hið sama verður ekki aiJtaf
sagt um föðurinn; því miður.
Við verðum víst að saeta því,
karlmennirnir, já, og ættfræð-
in um leið!
— Mundi vera mikið um shk
mistök í íslenzlvum ættartöl-
um?
— Nei, það hygg ég ekki.
Að minnsta kosti alls ekki
meira en annars staðar.
ÆTTKRÆÐTRA^N-.
SÓKNÍR GEGNA MIK-
ILSVERÐU HLUT-
VFRKI
— Hvert er markmið ætt-
fræðirannsókna almennt _ og
hvert er notagildi þeirra?
— Ættfræðirannsóknir eru
í fyrsta lagi grundvöllur ýmis
konar rannsókna á sviði erfða-
fræði, auk þess sem þær geta
varpað mikilsverðu ljósi á sögu
legar staðreyndir. Það er til
dæmis enginn vafi á því, að
saga íslands yrði okkur til
Mýtf fyrirtæki tíl slyrklar úlilulnlngi:
skrifstofan
Eeykjavík. — VGK.
f Kaup og hagsýsluskrif-
stofan heitir nýtt fyrirtæki sem
' tekið er til starfa í Reykjavík.
Tilgangur skrifstofunnar er
tvíþættur, að sögn Guðlaugs
Tryggva Karlssonar hagfræð-
ings, starfsmanns skrifstofunn-
ar. Annars vegar á skrifstofan
að vera ráðgefandi aðili í hag-
fræðilegum og tölfræðilegum
efnum, veita hvers konar að-
stoð við skýrslu- og töflugerð-
ir og hins vegar að vera upp-
lýsingaaðili' fyrir útflutnings-
atvinnuvegina og veita útflytj
endum >og framleiðsluaðilum
þá aðstoð sem unnt er að veita.
Skrifstofu þessari var komið
á fót fyrir tilstilli útflutnings-
aðilja og hins opinbera, er
veittu fjármagn til starfsem-
innar. Guðlaugur Tryggvi,
hagfræðingur, er eini fasti
starfskrafturinn, en í ráði er
að bæta við hagfræðingi eða
viðskiptafræðingi til starfa
við skrifstofuna síðar.
Nú þegar hefur skrifstofan
unnið að ýmsum verkefnum
fyrir útflytjendur, s.s. gert at-
hugun fyrir hraðfrystiiðnaðinn
og síldariðnaðinn, sem byggist
á tölfræðilegum útreikningum
varðandi vinnsluaðferðir og
markaðskannanir.
„Mikil þörf er á hvers kon-
ar hagfræðilegri og tölfræði-
legri þjónustu hér á landi,“
sagði Guðlaugur Tryggvi á
blaðamannafundi í gær og
bætti svo við: „Nægir í því
sambandi að benda á, að mikil
verðmæti fara forgörðum á
hverju ári, vegna skorts á næg-
um upplýsingum um einstaka
þætti hagkerfisins, sem og ó-
nógri fyrirgreiðslu í túlkun
þeirra upplýsinga, sem fyrir
hendi eru.“ ■
□ Kona stendur einsömul við grafreiti, hár hennar er
lesa scrg úr augum hennar. — Konan er Sophia Loren,
in er frá töku kvikmyndarinnar „Sunflower,“ sem ge;