Alþýðublaðið - 06.11.1969, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 06.11.1969, Qupperneq 6
r 6 Alþýðublaðið 6. nóvember 1969 Guðlaugíir Tryggvi Karlsson: BRÝN nauðsyn FYRIR STÆRRI BÆJARFÉLÖG Bolfiskveiðai’ eiga sér stað með misjöfnum skipum, sem kunnugt er. Lengst af stunduð- um við þær á opnum skipum, en síðar lærðu menn, að „sá guli er utar“, og þá smám sam- an hélt tæknin innreið sína í bolfiskveiðarnar. Skútur og þil- skip komu til sögunnar og um aldamótin kynntust íslendingar togurum. Togararnir ullu byltingu í atvinnulífi íslendinga. Með til- komu þeirra varð sjávarútveg- urinn traustur atvinnuvegur allt árið um kring. Að vísu var töluvert um ofveiði hér við land á fyrstu árum togaranna. En með tilkomu landhelginnar var þeirri hættu bægt frá og ný mið voru fundin. Smám saman varð veiðisvæði ís- lenzku togaranna svo til allt Norður-Atiantshafið og íshafið. Togararnir sköpuðu traust hráefni fyrir fiskvinnslustöðv- ar og þessi bylting í hráefnis- öflun sjávarútvegsins hafði á- hrif á allt efnahagslíf landsins og raunar þjóðlíf. Fiskverkun- arstöðvarnar stækkuðu og gátu fastráðið fólk árið um kring og þegar hraðfrystiiðnaðurinn byggðist upp, hafði það ekki minnst áhrif á staðsetningu hans, hvar togararnir áttu ör- uggar hafnir og aðstöðu. Full- yrða má -þannig, að ekkert eitt atvinnutæki hafi átt jafn mik- inn þátt í uppbyggingu Reykja- víkur og Hafnarfjarðar, eins og togararnir. Það, sem gerði baggamuninn, að - fólk settist hér að, var hin trygga atvinna, sem þessi stóru og öflugu skip, og sjómennirnir, sem á þeim voru, sköpuðu hér allt árið um kring. Að vissu leyti má segja þetta um Akureyri líka. Á undanförnum árum hefur þjóðin fjárfest gífurlega í hrað frystiiðnaðinum. Stór og af- kastamikil frystihús hafa risið upp um allt land. Þessir stað- ir standa þó misvel að hráefn- inu, þannig eru fiskimiðin svo til við bæjardyr Vestmanna- eyinga og Vestfirðinga, en aðr- ir þurfa iengra að sækja, eins og t. d. þeii’, sem búa hér á höfuðborgarsvæðinu og á Ak- ureyri. Bátaútgerð virðist geta tryggt fyrrnefndum stöðum sæmilega hráefni, en það er fráleitt að hún geti það á síð- arnefndu stöðunum. Reynslan hefur sýnt það, gð ef bolfisks- iðnaður höfuðborgarsvæðisins og Akureyrar á að geta byggt á trau íri hró/eífhþöíUun, og| það er í rauninni grundvöllur alls iðnaðar, þá verður að koma til útgerð stórra og afkastamik- illa skipa eða togara. Þessir tveir staðir hafa líka alla að- stöðu fyrir togarana, bæði varðandi hafnaraðstöðu og vinnuafl. Að sjálfsögðu útilokar þessi staðreynd ekki aðra staði frá togaraútgerð, og alls ekki, að togarar geti lagt þar upp afla reglubundið eða eftir á- stæðum. En það er vitað mál, að fiskiðnaður höfuðborgar- svæðisms og Akureyrar, fær aldrei þrifizt að nokkru marki, nema að hráefnið sé tryggt með togaraútgerð. Lítillega má minnast á sögu togaraútgerðarinnar. Útgerðin hefur, sem alkunna er, átt í miklum örðugleikum undan- farið, og stafar það ekki sízt af því, hversu uppgangurinn í síldveiðunum var mikill. — Fjármagn og mannafli leitaði til síldveiðanna og síldar- vinnslu. Erfitt reyndist því að manna tpgarana, og auk þess svipti útfærsla landhelginnar — þótt þöi’f væri — þá mikil- vægum fiskimiðum. Tiinnig má benda á allt of lágt fiskverð togarafiskjar á tímabili og hinn svokallaða bátagjaldeyri, en talsmaður Félags íslenzkra botnvörpuskipaeigenda ' telur, að einungis þeir tveir liðir hafi kostað togaraútgerðirnar kr. 1.200 milljónir, reiknað á nú- verandi verðlagi. Að sjálfsögðu má svo benda á ýmsa löggjöf um togaraútgerð, sem sett var við aðrar aðstæður en nú ríkja, sérstaklega ef miðað er við þá ' tæknibyltingu, sem á sér stað, með komu skuttogaranna. Auk þess er gengi íslenzku krón- unnar alltaf til umræðu, þegar fjallað er um útflutningsat- vinnuvegi. Allt hefur þetta hjálpazt að til þess, að þrengja hag togara- útgerðarinnar, þannig, að nú er svo komið, að flestir þeirra fáu togara, sem enn fljóta, eru eig- inlega að því komnir að verða rifnir í brotajárn. En viðhorfin til togaraútgerð- ar eru að breytast. Síldarleys- ið er staðreynd, sem enginn fær umflúið. Sjómenn vantar því verkefni, og þau eru í bol- fiskinum. Togararnir eru lang öflugasta bolfiskveiðitækið, það vita allir þeir, sem eitt- hvað til þekkja. Þeir eru auk þess einu skipin, sem henta í rauninni fiskiðnaði stærstu þétt býlissvæðanna, eins og bent hef ur verið á, - og útgerð þeirra 15. október voru 20 vinsælustu LP-plöturnar í Bretlandi þessar: SELDU 400 ÞUSUND PLÖTUR Um þessar mundir snúa Led Zeppelin heim til Bretlands frá Banda- ríkjunum, en þar hafa þeir leikið undanfarnar vikur. Þeirra fyrsta verk eftir heimkomuná véfður áð ijéfa ut sína fyrstu litlu plötu, en þeir ei;u jafnframt byrjaðir að leggja drögt að þriðju LP-plötunnk Önn úi. ur LP-plata þéjfra hfeur^elzt.,! 100 ^þúsund eintökifm í Báridaríkjuii- um, en útgáfu plötpnnar hefur seiplíað .í JBret1—A' <1 0 A(.Í!!

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.