Alþýðublaðið - 11.11.1969, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 11.11.1969, Blaðsíða 12
► I Alþýöu blaðið 11. nóvem'ber 1969 HVAD ER AÐFRÉTTA UTAN AF LANDH Helgi E. Helgason ræðir við fréttaritara blaðsins STEFÁN helgason — GRUNDARFIRÐI; Grundfirðingar bíða efir rækjunni Það er nú lítið að frétta núna. Tíðarfarið hefur verið svo slæmt síðustu daga, að bátar hafa ekki getað verið á sjó og afli því lítill, þegar gefið hef- ur. f dag — (föstudag) — er veðrið leiðinlegt, snjóhragl- andi og stormur. Annars er hér lítill snjór; það var dálítið föl í gær, en það tók að mestu leyti upp í gærkvöldi. Fjorir bátar hafa nú hafið 'rækjuveiðar, en þeir hafa -bara ekkert getað sinnt þessum veið um frekar en aðrir vegna veðr- . áttunnar. f VEÐUR HAMLAR RÆKJUVEIÐUM Það markverðasta, sem ég held, að ég geti sagt þér núna, er það, að hraðfrystihúsið er nú í óða önn að undirbúa rækju- vinnsluna. Til þeirrar starfsemi á að reyna að fullklára stóran vinnusal, sem byggður var fyr ;ir nokkrum árum, en ekki hef ur verið notaður, enda aðeins fokheldur. Nú er verið að smíða 105 tonna fiskiskip fyrir útgerðar- ■ mann hér í Grundarfirði og verður hann sennilega afhent- ur seinnipartinn í vetur. Alls eru 10 bátar, stórir og smáir, gerðir út héðan í vetur. Þeir leggja allir upp hér nema einn, sem siglir með aflann á erlendan markað. Hann hefur þegar farið einn túr til Bret- lands og er nú að fiska upp í annan túr þangað. TVÆR LAXAÞRÆR BYGGÐAR . Framkvæmdir stóðu í sum- ar við fiskeldisstöðina Látra- vík hf. Laxageymsla og tvær laxaþrær voru byggðar. Nú er verið að setja upp k-lak, en það hafa þeir ekki haft áður. Fram kt-æmdum við fiskeldisstöðina er ekki lokið enn og er stöðin því aðeins að litlu leyti komin í gang. Eigendur fiskeldisstöðv arinnar eru nú búnir að setja nokkurt magn af seiðum í klak- ið, sem þeir hafa flutt hingað að sunnan. Annars er mér að öðru leyti ókunnugt um, hvernig rekstur stöðvarinnar gengur. SÆTTUM OKKUR 7 VIÐ EINA HARMONIKU . .. Skemmtanalífið er ákaflega dauft. Hér er reyndar starf- andi hjónaklúbbur og má segja að það sé eini félagsskapurinn, sem sé með einhverju lifsmarki í plássinu. Hann heldur yfir- leitt eina skemmtun fyrir gift fólk í hverjum' mánuði yfir vet urinn og var sú fyrsta á þessum vetri haldin í október. Það er að mörgu leyti afar erfitt að halda uppi starfsemi svona lít- illa félaga úti á landi. Það er næstum ógerningur að fá litl- ar og ódýrar hljómsveitir til að spila á skemmtunum. Við, gamla fólkið, þurfum nefni- lega ekki stórar hljómsveitir, við sættum okkur við eina harmoniku og trommu eða eitt hvað svoleiðis, — ÍSAFJÖRÐUR— SIGURÐUR JÓHANNSSON: Aðeins að yta 1 á takka og slökkvi- liðið er til taks. Það er leiðinlegt veður í dag (föstudag), norðanátt og hríð. Rækjuveiðin hefur verið held ur léleg að undanförnu. Aðeins einstaka bátur hefur náð því tilskilda magni, sem rækjubát- arnir mega veiða á viku, sem er þrjú tonn. Alls eru það 27 bátar, sem eru á rækjuveiðum hér á svæðinu og leggja þeir upp hér á ísafirði, í Bolungar- vik, á Hnífsdal og á Langeyri við Súðavík. Ég má fullyrða að rækjan hefur að undanförnu verið smá og heldur léleg til vinnslu. Nú, þess má geta, að við vor um að taka í notkun nýtt síma kerfi fyrir slökkviliðið. Liðinu er skipt niður í þrjá hópa. Að- eins með því að ýta á einn „takka“ á slökkvistöðinni og reyndar líka á símstöðinni má kalla út heilan hóp — allt að 20 menn í einu. Þetta nýja kerfi hefur verið prófað og hef ur reynzt vel. Undanfarið hefur verið unn ið að því að bora eftir neyzlu- vatni hér á ísafirði.. Um síð- ustu helgi bilaði borinn og hef ur því verið hlé á framkvæmd um þessa vikuna og liggja því enn ekki fyrir neinar niðurstöð ur vegna þessara borana. Dæluskipið Hákur hefur ver ið hér að undanförnu vegna framkvæmda við nýju sunda- .höfnina. Nú þessa. dagana er hann að ljúka við að dæla upp úr henni,- Hákur. mun síðan flytja sig inn á gamla hafnar- svæðið og dæla þar upp. Öllu uppfyllingarefni, sem dælt verður upp á gamla hafnar- svæðinu, verður dælt beint vf- ir tangann í nýju uppfylling- una við sundahöfnina. SÍÐUSTU BÍLARNIR Síðustu vöruflutningabílarn- ir náðu hingað til ísafjarðar á fimmtudag. Almennt er talið, að þetta séu síðustu bílarnir, sem koma hingað í vetur, og heiðarnar verði ekki opnaðar aftur, nema gerbreyti um tíðar far, en það þykir heldur ótrú- legt að verði. — Eftir því sem mér- skilst voru bílarnir hart- nær viku á leiðinni vestur og munu tafirnar bafa stafað fyrst og fremst af því, hve lengi þeir þurftu að bíða við hverja heiði, áður en þær voru opnaðar. Töluvert er um það, að bát- arnir sigli með afla sinn og hef- ur það óhjákvæmilega komið niður á vinnunni í landi. Tveir bátar munu nú vera á leið með aflann út, en aðrir tveir eru á heimleið. TÁLKNARFJÖRÐUR — KRISTJÁN HANNESSON: Bíðum eftir nýjum sirandferSaskipum Það gerist ekkert hérna í fá- men'ninU. Við eruni mjög ó- ánægðir með strandferðirnar upp á síðkastið, síðan útgerð Esjunnar og Heklunnar var hætt. Aðeins eitt skip — Bald- ur — er nú í flutningum. m-i-lli Reykjavíkur og Vestfjarða- hafna, en þetta er lítið skip mið að við þau skip, sem áður voru í förum á milli. Baldur kemur hingað einu sinni í viku. Við væntum mikils af hinum nýju skipum Skipaútgerðar ríkis- ins, þegar þau komast í gagn- ið. - n Þrír bátar eru gerðir út héð- an. Tveir þeii'ra eru á síldveið- um í Norðursjónum og sá þriðji hefur verið á trolli og fiskað fyrir Bretlandsmarkað. EIGA EKKI AÐILD AÐ SJÓÐNUM f Það má segja, að hér sé al- gert atvinnuleysi. Þegar þát- arnir landa ekki heima, og er þetta mjög alvarlegt fyrir land verkafólkið, því að það á ekki aðild að atvinnuleysistrygging- arsjóðnum vegna smæðar hreppsins. Annars var hér ágæt vinna í sumar, á meðan bátarn- ir lögðu upp heima. Þá var afii fremur góður, einkum grá- lúðuafTinn. En við eigum ekki von á, að miklar breytingar verði á atvinnuástandinu fyrr en á netavertíðinni, kannski í febrúar. / ÓLAFSVÍK — OTTÓ ÁRNASON: Þrjár konur fengu gullúr Það hefur verið ákaflega erf- itt tíðarfar síðan þú talaðir við mig síðast og lítið um gæftir. Það heyrir þó til tíðinda, að í vikunni hóf einn bátur héð- an, Geysir, rækjuveiðar og hef ur hann farið tvær ferðir á rækjumiðin. Bakki s.f. vinnur rækjuna í samráði við SÍS, sem selur framleiðsluna. Hinn 29. þ.m. hélt Hraðfrysti hús Ólafsvíkur upp á 30 ára starfsafmæli sitt með samsæti í safnaðarheimilinu. Guðlaugur Þorláksson, Reykja vík, stjórnarformaður, stýrði þessu hófi. Hraðfrystihúsið færði þremur konum gullúr að gjöf fyrir langa og dygga þjón ustu. Þessar konur eru: Hólm- fríður Iielgadóttir, sem hefur starfað við hfaðfrystihúsið í 30 ár, Kristín Sigurgeirsdóttir og Guðrún Sigurgeirsdóttir. Stjórn Hraðfrystihúss Ólafs- víkur skipa nú: Guðlaugur Þor láksson, Reykjavík, formaður, Richard Thors, Rvík, Sigurður Ágústsson, Stykkishólmi, Hall- dór Jónsson, Ólafsvík og Gunn ar Bjarnason, sem jafnframt er framkvæmdastjóri fyrirtæk- isins. Nú, síðan við töluðum sam- an síðast, fyrir þremur vikum, hafa tveir Ólafsvíkurbátar selt áfla sinn í Bretlandi — Matt-; hildur fyrir 4.100 pund og Guð mundur Þórðarson fyrir um 7 þúsund sterlingspund. i BORGARNES — DANÍEL ODDSSON: Gamadöð og ný pökkun á rjéma og mjéik Fjárslátrun er nýlokið hér f Borgarnesi og var 78.093 fjár slátrað. Reiknað er með, að með alfallþunginn sé eitthvað minni en í fyrra. — í haust starfafS um 160 manns í sláturhúsinw, — Hingað hafa komið í haust fjögur flutningaskip og tekið um 600 tonn af dilkakjöti og auk þess allan innmat hjá slát- urhúsinu og flutt á erlendan markað. Áætlað er að garnastöðin hér taki til starfa um næstu ára- mót og mun hún veita 8—18 manns atvinnu. Einnig hefuB verið ákveðið, að mjólkursam- lagið hefji pökkun á rjóma og mjólk í fernur nú í þessum mánuði. Hingað til hefur mjólk in verið flutt héðan í tankbíl- Framhald á bls. 11. Sljórnarirumvarp í Alþingi: TRYGGINGAR GREIÐi LÆKNINGAR ERLENDIS Reyfcjavík — HEH □ Ríkisstjórnin leggur tll í frumvarpi, sem hún hefur nú lagt fyrir alþingi, að sú þarfa breyting verði gerð á lögun- um um almannatryggingar að þær greiði kostnað vegna sjúkrahúslegu og læknisþjón- ustu, sem fsl. sjúklingar verða að leita erlendis. Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir. að almannatryggingar greiði ferðastyrk ítil þeirra isilúklinga, :sem (af nauðsyn leita læknishjálpar erlendis, svo og til fylgdarmanna þegar alveg sérstaklega stend ur á. j • í frumvarpinu segjr, að sj úkratryggingadelld Trygg- ingástofnunar ríkisins skuíLi greiða þann híu'ta kostnaðar við sjúkrahúsvist samlags- manna, sem af brýnni nauð- syn vistast á erlendu sjúkra- húsi, vegna þess að ékki er unnt að veita horaum ’nauðsyn lega lækni'lslhjlálp í ísienziku1 sjú’kr-ahúsi, ásaimit 'læfcnis- hjlállp og annarri þj ónustu á sjúkraihúsiniu), seim uimframi er hæsta dággjaild ísll'enzikra sjúkrahúsa, eða allllan kostn- ■ aðinn, ef niðiur er falílinn rétfc ur sjúklings á bendur sam- lagi skv. 1. mgr. laganna. Róð herra sfca-l samkvæmt frum- varpinu skipa nefnd. sem úr- Framhald á 9. síðtl. J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.