Alþýðublaðið - 20.12.1969, Síða 6

Alþýðublaðið - 20.12.1969, Síða 6
6 Alþýðublaðið 20. desember 1969 Ný saga um Tom Swifi FORTÍÐARVÉLIN nefnist ný bók um uppfinningamanninn unga, Tom Svvift, en það er bókaútgáfan Snæfell í Hafnar- firði, sem gefur bókina út. Þýð- andi er Skúli Jensson, en sagan er eftir Victor Appleton. Þessi nýja saga um Tom Swift er 167 bls. að stærð, sett í Ingólfs- prenti, en prentuð í Prentverki Þorkels Jóhannessonar. GIGI GIGI nefnist saga eftir frönsku skáldkonuna Colette, sem bóka útgáfan Snæfell gefur út í ís- lenzkri þýðingu Unnar Eiríks- dóttur, en kvikmynd sem gerð var eftir þessari sögu hlaut alls 9 Oskarsverðlaun. Er bókin prýdd myndum úr kvikmynd- inni, en hún er 84 bls. að stærð, sett í Prentsmiðju Guðm. Jó- hannssonar, en prentuð í Prent verki Þorkels Jóhannessonar. Ulvarpsleikril SÍÐASTA SUMARIÐ nefnist útvarpsleikrit eftir Líney Jó- hannesdóttur, sem ísafold hefur gefin út. Barbara Árnason hef- ur gert teikning'ar í bókina, en hún er 33 bls. að stærð. Ný saga eftir JackLondon HNEFALEIKARINN nefnist sextánda bókin í ritsafni Jacks Londons, sem ísafoldarprent- smiðja gefur út. Þessi saga er 136 bls. að stærð, prentuð í fsa foldarprentsmiðju, en þýðingu hefur gert Stefán Jónsson náms stjóri, sem nú er nýlátinn. Norsk skáldsaga SILFURBELTIÐ nefnist skáld- saga eftir norsku skáldkonuna Anitru, sem ísafoldarprent- smiðja gefur út í þýðingu Stef- áns Jónssonar námsstjói'a. Saga þessi gerist um síðustu aldamót í byggðum Heiðmarkar í Noregi. Bókin er 234 bls. að stærð, prent uð í ísafoldarprentsmiðju. Frumsamin barnasaga ANGALANGUR nefnist barna- saga eftir Ingu Birnu Jónsdótt- ur, sem ísafoldarprentsmiðja gefur út, en bókin er ríkulega myndskreytt af Silju Aðalsteins dóttur. Sagan er 24 bls. að stærð. um árið 1897. Haraldur Hann- esson hefur annazt útgáfuna og ritar hann grein um höfundinn. Bókin er Ijósprentuð í prent- smiðjunni Odda. Félagsmanna- verð er kr. 350, en bókhlöðu- verð kr. 537,50. að árið 1921 sem fylgirit Ár- bókar Háskóla íslands. Er þetta ein af merkari ritgerðum dr. Guðmundar. Verð bókarinnar til félagsmanna er kr. 275, en út úr búð er verðið kr. 344. —■ LAND OG ÞJÓÐ eftir dr. Guð- mund Finnbogason hefur nú komið út í annarri útgáfu á vegum Þjóðvinafélagsins, en upphaflega var þetta rit prent- BARÓNSFRÚ ORCZY Höfundur Heiðabrúffarinnar, er öllum lesendum aff góðu kunn. Hún skrifaSi margar bækur, sem allar náðu míkilli útbreiðslu í heimafandi hennar. Á íslandi hafa margar sögur Orczy verið þýddar, og má meðal annars nefna: RAUÐA AKURLILJAN, EIÐURINN, ÉG VIL HEFNA, og margar fleiri sögur, sem of langt yrði upp að telja. HEIDABRÚ8URIN gerist í smáþorpi, þar sem Elsa og Andor unnast hugás'tum. Þau hafa ákveðið að giftast, en áður en af hjónavígslunni verður er Andor kallaður í herþjónustu. Andor á að vera þrjú ár í herþjónustunni, og lofar Elsa að bíða eftir honum. Heiliandi og spennandi ástarsaga. Verð 330.00 án söluskatts. BÓKAÚTGÁFAN VÖRÐUFELL Ný bók um Mola lilla MOLI LITLI eftir Ragnar Lár er enn komin á kreik, en Leift- ur hefur gefið út nýja sögu um Mola með teikningum og texta eftir Ragnar. Þessi nýja bók um Mola er 32 bls. að stærð. Mannabúrið eftir Desmond Morris þýtl á íslenzku MANNABÚRIÐ (The Human Zoo) eftir Desmond Morris er nú komin út í íslenzkri þýðingu Hersteins Pálssonar, en ísafold arprentsmiðja gefur bókina út. Þessi bók gengur mjög í sömu átt og fyrri bók höfundar, Nakti apinn, sem kom út á íslénzku í fyrra, og hefur bókin vakið mikla athygli og umtal erlendis á þessu hausti.. Mannabúrið er 247 bls. að stærð, pýentuð í ísafoldarprentsmiðju. Ný skáldsaga effir Grefu Sigfúsdóffur f SKUGGA JARÐAR nefnist skáldsaga eftir Gretu Sigfús- dóttur, sem bókaforlagið Skarð gefur út. Þetta er framtíðarsaga, sem gerist eftir aldarfjórðung, sögusviðið er höfuðborgin og álverksmiðjan í Straumsvík, þai’ gerast helztu atburðir sög- unnar, fjárglæfrar, valdabar- átta og forsetamorð. Þetta er önnur skáldsaga Gretu, en hin fyrri, Bak við byrgða glugga, vakti mikla athygli og var val in sem framlag íslands til skáld sagnasamkeppni Norðurlanda- ráðs 1968. — í skugga jarðar er 184 bls. að stærð, prentuð í Prenthúsi Hafsteins Guðmunds sonar. — bækur ★ Á SÖGUSLÓÐUM nefnist ný myndabók, sem Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur gefið út. Eru þar í íslandsmyndir Coll- ingwoods, en hann ferðaðist hér íírval úr verkum léra Helga Svelns- sonar HELGI SVETNSSON — PRESTURINN OG SKÁLDIÐ nefnist ný bók, sem inniheldur úrvol úr verkum séra Helga Sveinssonar, er síðast var prest ur í Hveragerði. Skiptist bók- in i tvo hluta, nefnist annar Presturinn, en hinn Skáldið. Biskup íslands, herra Sigur- björn Einarsson ritar inngangs- orð að bókinni, en hún er gefin út af ættingjum séra Helga í litlu upplagi. Setberg hefur prentað bókina. GriSasfaSur Faulkners GRIÐASTAHUR nefnist skáld saga eftir bandaríska rithöfund inn William Faulkner, sem Mál og menning hefur gefið út í ís- lenzkri þýðingu Guðrúnar Helga dóttur, en í eftirmála ritar Sverr ir Hóimarsson um bókina og höfundinn. Griðastaður er 291 bls. að stærð, prentsmiðjan Hól- ar hefur prentað bókina. Heimildarsaga ÖLDURÓT nefnist ný ,">aga eft- ir Þorbjöigu Árnadóttur, en ísa foldarprentsmiðja gefur bókina út. Segir á kápu bókarinnar að þessi saga teljist til heimilda- sagna, styðjíst við við sanna at- burði og gerist á sömu slóðum og Sveitin okkar eftir sama höf und. Öldurót er 141 bls. að stærð, prentuð í ísafoldarprent smiðju. LJÓÐMÆLI GRÍMS THOMS- ENS hafa nú komið út í nýrri útg'áfu hjá Máli og menningu. S’gu’-ðui Nordal hefur séð um útgáfun-'., og ritar hann inn- gangsorð um skáldið. Bókin er 478 bls. að stærð, prentuð í Hól um. \

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.