Alþýðublaðið - 24.04.1968, Blaðsíða 3
Engar útiskemmtanir
á sumardaginn fyrsta
Ferð'alag- til Bandarikjanna er ekki lengur ne'inn lúxus, og nú vilja
Bandaríkjamenn fá sem flesta ferðamenn til sín til að jafna feröa-
mannastrauminn til og frá landinu. Myndin sýnir New York.
Hátíðahöldin í Reykjavík á sumardaginn fyrsta
-verða nú að því leyti frábrugðin því, sem verið
hefur undanfarin ár að útiskemmtanir aðrar en
skrúðgöngur falla niður. Aftur á móti verða inni-
skemmtanir á sjö stöðum og sjá skólafólk og hörn úr
leikskólum um skemmtiatriði.
Skrúðgöngur verða farnar frá
eftírtöldum stöðum: Vestúrbæj
arskóla kl. 13.10. Laugarnesskóla
kl. 14 00. -Hvassaleitisskóla kl.
13 30. Langholtsskóla kl. 13.00.
í broddi fylkingar verða lúðra-
sveitir, sem leika munu göngu
lög og vorlögv Kl. 15 30 leikur
svo Lúðrasveit Reykjavíkur á
Austurvelli.
Ferðalög til Banda-
ríkjanna gerð ódýr
og vegabréfaáritun einföld í sniðum.
Bandaríkjamenn leggja nú mikla
áherzlu á a5 laða til sín ferða-
menn og hafa öll mál er lúta að
móttöku ferðamanna, verið tekin
til umfangsmikillar endurskoðunar.
Nú eru boðnar margs konar
kostakjör í sambandi við ferðir
til Bandaríkjanna; m.a. verður
á næstunni dreift svongfndum i
gestakortum á vegum Ferða- J
þjónustu Bandaríkjanna og er §
hægt gegn framvísun þeirra að [
fá afslátt hjá ýmsum hótelum, 1
veitingahúsum, bílaleigum, verzl =
unum og á fleiri stöðum'frá 10- §
40%. . |
Unnið er að því að fá sam_ I
þykktan á þingi sérstakan afslátt :
á flugfargjöldum fyrir erlenda i
ferðamenn, ef þeir dveljast í i
landinu 14 daga og lengur. Gert i
er ráð fyrir að afslátturinn verði ;
um 50%. Þá eru einnig væntan E
leg ný fjölskyldufargjöld á leið i
til Bandaríkjanna. =
Öll formsatriði í sambandi við 1
vegabréfsáritun til Bandaríkj- =
anna eru nú einföld í sniðum. j
Ferðaskrifstofur munu m.a. ann jj
ast þá þjónustu að fá áritun i
fvrir ferðatnenn, en sérreglur =
gilda um námsmenn og innflytj j
endur.
Þessar upplvsingar komu I
fram á fundi með fréttamönnum =
sem haldinn var I bandaríska f
sendiráðinu í gær.
Kvnningin hefst í dag.
í dag hefst Bandaríkiakvnning
in með kvikmyndusýningu í Am-
eríska bókasafninu í Bændahöll
inrii. Sýndar verða fjórar kvik
myndir um New York og New
York ríki. Á föstudag verða
svndar kvikmyndir frá Wahing-
ton D.C. og Philadelphia auk
fleiri mynda frá frægum stöð
um víðs vegar um landið. Að sýn
ingunum loknum getur fólk
komið með fyrirspurnir.
Á laugardag kl. 2 verður mynd
in Discover America sýnd í
Nýja bíói auk tveggja annarra
mynda, og á sgma tíma mynda
sýning í Borgarbíói á Akur-
eyri.
Á fimmtudagskvöld verður
sérstakt kynrtingarkvöld í Amer
íska bókasafninu fyrir náms-
menn sem hafa hug á að kynn
ast námf og námstilhögun í
Bandaríkjunum.
Fyrsta inniskemmtunin verð-
ur í Safnaðarheimili Langholts
sóknar kl. 13.30 og sjá börn úr
Langboltsmfnuði og- barnastúk
an „Ljósið” um skemmtiatriði.
Börn úr Melaskóla, Hagaskóla og
Miðbaejarskóla sjá um skemmti
atriði á skemmtun, sem hefst í ♦
Hsgasköla kl. 14.00. í Réttar-
holtsskóla, Hvassaleitis^kóla og
Álf+amvrarskóla. Börn úr Lang
holtsskóla, Laugarnesskóla og
Laugarlækigrskóla skemmta í
Laugarásbíój kl. 15.00 og á sama
tíma hefst skemmtun í Austur
bæjarc-kóla og skemmta bar börn
úr Hlíðaskóla og Austurbæjar
skóla.
Skemmtun verður fyrir yngstu
börnin í Austurbæjarbíói kl.
15.00 og skemmta þar börn úr
leikskólum.
Nemendur gagnfræðaskóla
borgarinnar munu koma fram
með beztu árshátíðaratriðin á
skemmtun sem hefst í Háskóla
bíói kl. 16.00 og kl. 15-17 verður
dansleikur fyrir unglinga 13_
15 ára í Lídó og um kvöldið dans
■iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiitinn1111111111111111111111111111
leikur fyrir 16 ára og eldri.
Kvikmyndasýningar verða í
kvikmyndahúsum og leiksýn-
ing í Þjóðleikhúsinu kl. 15. Þá
verður barnatími í Útvarpinu á
vegum Sumargjafar.
Barnavinafélagið Sumargjöf
stendur að venju fyrir hátíða-
höldum þennan dag og seld
verða merki til fjáröflunar.
„Sólskin” kemur út síðar
- og verður þá selt á bárnaheimil
um Sumargjafar og í bókabúð-
um.
Páska-
happdræftið
Nú hefur verið dregið í hiapp
drætti Umferðarnefndar og lög
reglunnar í Reykjavík, en happ
drættismiðarnir voru í páska-
eggjum sem seld voru í verzlun
um fyrir páska. Vinningarnir,
reiðhjólin 10 komu á eftirtalin
númer:
12489 — 37683 — 42902
59003 — 77031 — 112607
128160 — 135486 — 146002
151602.
Vinningarnir óskast sóttir fyr
ir 1. maí á Fræðslu- og upp_
lýsingaskrifstofu umferðarnefnd
ar í íþróttamiðstöðinni í Laug-
ardal.
UMFERÐARVIKA á akranesi
ÞÓTT blaðamenn, sem
hringja til okkar daglega á
lögreglustöðina til að afla
frétta, fái að öllu jafnaði
litla úrlausn, er það samt, að
ýmislegt skeður, þó ekki sé
það fréttnæmt. Árekstur
milli bifreiða telst t. d. vart
til tíðinda nú til dags, nema
,þá að eitthvað annað og
meira hljótist einnig af.
Þó er það svo, að árekstr-
ar og önnur óhöpp í umferð
inni kosta þjóðina drjúgan
skilding árlega og sumt tjón
af þeirra völdum verður
vart metið til fjár. Á Akra-
nesi hefur t.d. árekstrum
fjölgað um 155% á s.l. tveim
árum og tjónabæfur vegna
árekstra á Akranesi námu
um 3 millj króna á sl. ári.
Umferðarmál hafa verið
talsvert á dagskrá að undan
förnu vegna væntanlegrar
breytingar í hægri umferð
26. maí n.k. Að þessu er nú
unnið af kappi um land allt,
enda mikið í húfi, að breyt-
ingin auki ekki slysahætl-
una, heldqr minnki hana að
mun.
ið vel unnið á Akranesi og
nágrenni að uridanförnu. Um
ferðaröryggisnefnd Akraness
og nágrennis var stofnuð í
febrúar s. 1. og er verkefni
hennar m. a- að vinna að auk
inni umferðarmenningu á
Akranesi og nágrenni.
Framkvæmdastjörn nefnd-
arinnar er skipuð þeim,
Björgvin Sæmundssyni bæj-
arstjóra, Stefáni Björnssynj
yfirlögregluþjóni og Birni
Péturssyni kennara.
Á vegum nefndarinnar hef-
ur farið fram könnun á því,
hvað gera mætti til að auka
umferðaröryggi á starfssvæð
inu. Hafa t. d. þjóðvegir á
svæðinu verið teknir til sér
stakrar athugunar og vega-
málastjóri ritað bréf með á
bendingum og óskum um
lagfæringar hætlustaða. Þá
hefur þingmönnum kjördæm
isins einnig verið skrifað
bréf um sama efni og þeim
bent á nauðsyn aukinna fjár
veitinga til lagfæringa á
mestu hættustöðunum á hin-
um fjölfarna þjóðvegi um
Að þessum málum hefur ver Framhald á bls. 10.
Gagníræðastúlkur á Akransci afhenda ungum
áminningarspjald. Ljósm. H. Dan.
vegfaranda
iiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiininiiiiiiinnmniiiiiiiminiiiiiniiiiiniiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiniiiiiiiiimiiiiii,,,,
- ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
24. apríl 1968
IIIIIIIIIIIIIIUJIIIIIIIIIIHlll|ltlUMii|||||||||||||||UiU|U||||H||||H||: