Alþýðublaðið - 24.04.1968, Blaðsíða 4
HEYRT&
SÉÐ
Ai Bishop á plötu með
íslenzkn hljómsveit
★ í erlendu blaði lesum við
að hinn kunni bassasöngvari
A1 Bishop, sem lengi
skemmti gestum hér á Borg
inni, hafi mýlega sungið inn
á plötu lögin „More“ og „I
ám“. Undirleik annast, segir
blaðið, íslenzka hljómsveitin
Faxar. Plötunni er hælt á
hvert reipi, og ennfremur er
sagt að iengi hafi verið beð-
ið eftir því að A1 Bishop
gerðj verulega góða hluti —
og nú virðist það n'æstum því
hafa tekizt því blaðið segir
að platan sé vissulega útlát-
anna virði.
★ hún; heitir PETULA CLARK og
er brezk. Nýlega var hún á ferð í Banda-
ríkjunum þar sem hún lék aðalhlutverk
ið í myndinni „Finians Rainbow" ásamt
Fred Astaire og Tommy Steele. Hún tók
einnig þátt í nokkrum sjónvárpsþáttum,
m. a. Ed Sullivan og Dean Martin. í
fyrra komst hún á toppinn með hinu vin-
sæla lagi „This is my song“ og næstum
eins góðar undirtektir hlaut lagið „Dont
sleep in the subvvay". Nokkrar aðrar
plötur hlutu ekki eins góða dóma og kennir Petula því einkum um,
að músíkin hafi verið komin á undan, en rödd hennar skeytt við
á eftir. Petula segir að nauðsynlegt sé að syngja með hljómsveit
því það hafi gefið henni aukna innlifun. Næst á dagskránni er
söngleikurinn „Goodby Mr. Chips“ þar sem hún leikur á móji
Peter O’Toole. ' •
Rithöfundurinn
Christine Keeler
Christine Keeler, stúlkan
sem árið 1963 hafði næstum
orðið brezku ríkisstjórninni
að falli, cr nú aftur komin
fram í sviðsljósið. Nú er hún
önnum kafin við að rita minn
ingar sínar, og verða þær vænt
anlega gefnar út síðar á þessu
ári-
Hun er nú langtum varkár-
ari en hún var þegar hún seldi
sunnudagsblaðinu News Of
The World sögu sína og kom
með því Profumo hneykslinu
af stað. Christine Keeler seg-
ir: — Fólk mun leita árangurs
laust að ákveðnum nöfnum
sem það þekkir. Ég ætla að
segja frá sjálfri mér sem ungri
stúlku sem kemur til Lundúna
og hvernig það er að bera
þekkl nafn.
Christine Keeler er 26 ára
og er nýlega skilin við mann
sinn, James Levermore, verk-
fræðing. Þau gengu í hjóna-
band árið 1965 og eiga 20 mán
aða gamlan son, Jimmie.
ÞAÐ VAR ALLT ÚR PAPPÍR!
R! DGESTONE
NORÐURLÖNDIN ÞRJÚ
SÝNDU í MONTREAL!
Ringo og Lilla.
ekki að neita. Hugsið ykkur
þann munað að geta farið í búð
og keypt brúðarkjól' úr pappír.
Þetta gerði hún Lillián Moser
frá Stokkhólmi á dögunum (sjá
myndina að ofan), og er sagt
að hún hafi brotið blað í gift
ingarkjólatízkunni með þessu
uppátæki sínu. Nú, ekki nóg
með það, og haldi blómasalar
niðri í sér andanum —• blómin
voru líka úr pappír, bæði brúð
arvöndurinn og blómin í kirkj
unni. Brúðguminn ætlaði að
klæðast á sama hátt og pantaði
sér herraföt úr pappír frá
Bandaríkjunum, en þau komu
ekki nógu tímanlega og varð
hann að láta sér nægja að klæð
ast venjulegum fötuni við bessa
hátíðlegu athöfn.
□ Leikkonan brezka Vanessa
Redgrave sýnir okkur bér svo-
lítið sem Elísabet Bretlands-
drottning gaf henni fyrir nokk
uð, er hún útnefndi hana
„Commander of the Most Ex_
cellent Order of the British
Empire". Hvers vegna Vanessa
fékk nafnbótina fylgir ekki sög
unni.
íslenzku blöðunum er oft
legið á hálsi fyrir ónákvæm-
an og villandi fréttaburð. En
það eru fleiri undir sömu sök
seldir. 17- apríl sl. birtir BT
áberandi frétt um að Norður-
löndin þrjú, sem þátt hafi tek
ið í heimssýningunni í Montre
al, hafi ákveðið að gefa Montre
al sýningarskálann. Það er
langt um liðið frá því þessi
gjöf var afhent — í ágúst eða
september sl., og því undar-
legt að skýra frá þessu sem
miklum tíðindum nú í apríl.
En látum það nú vera. Blaða-
maðurinn fræðir lesendur sína
Framhald á 9. síðu.
I........
★ MARGT HEFUR verið gert
til að létta okkur lífið, því er
Efnilegasti píanóleikarinn
□ Þessi ungi piltur heitir Terence Judd og hann var nýlega kjör-
inn bezti brezki píanóleikarinn í „ungliitgaflokki". Hann er að-
eins 10 ára og hefur meiri áhuga á að verða brunavörður en
píanóleikari. En mamma hans er ekki alveg á því að láta það
eftir drengnum — og innst inni er Terence litli alveg sáttur við
að halda áfram á tónlistarbrautinni því að séu brunaverðirnir
undanskildir þá eru uppáhaldskarlarnir hans þeir Scarlatti, Schum
ann og Bela Bartok.
□ Ringo Starr kom nýlega fram
í sjónvarpsþætti í Bretlandi og
í þetta skipti var hann ekki
með félögum sínum, Bítlunum.
En hann þurfti þó ekki að
kvarta yfir að hann.. væri ekki
í góðum félagsskap, því að á
hnjám lians sat engin önnur en
söngkonan Cilla Black. í þetta
skipti lék Ringo ekki á tromm
ur og Cilla söng ekki því að
Ringo lék búktalara sem talar
við dúkkuna sína, sem er engin
önnur en hún Cilla Black.
4 24. apríl 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ