Alþýðublaðið - 02.01.1970, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 02.01.1970, Blaðsíða 9
ínum heima hjá sér í Reykjavík. horft á ljónin og tígrisdýrin í dýragarðinum. — Hvernig var að vera í Rameswaram? — Ég hitti Guðjón strax. Við höfðum þó nokkuð góðan að- taúnað. Þarna er geysistórt must eri, eitt af þeim belgustu á land inu, sk.ilst mér, eitt af þeim sem rétttrúaður Hindúi þarf að fara til einhvern tíma á ævinni. Þar er smáþorp í kring. En svo höfðu maharajarnir hingað og þangáð á lndlandi byggt hús í kringum musterið, ætluð píla grímum, dálitið hús, sum tveggja hæða með hundruðum' herbergja, sum bara einnar hæð ar cg heldur frumstæð. Við höfðum fengið herbergi uppá annarri hæð í einu af pílagríma húsunurri, þokkaleg herbeim með járnrúmstæðum. En gall- inn var bar.a ,sá að bau voru full af djöfuis veggjalúsum. — Guðjón var búinn að vera í þrjú ár á Indlandi og þoldi ek.ki við, en ég v.ar ekki var við neitt. Hann rauk stundum út á þak um rniðjar nætur og svaf þár. Svo breyttist þetta, nú þoli ég svona ófögnuð afar ilia, en meðán maður er ekki búinn að aðhæfast loftslaginu er sem hann finni minna fyrir siík.u. — Hvernig þótti þér að vera á sjó svona blá-ókunnugur? — Mér þótti það ágætt. Auð- vitað var allt ólíkt því sem ég átti að venjást. Guðjón hafði í fleiri horn að líta. Fyrsta dag inn fór ég á sjó með honum, en annan eða þriðj.a daginn varð hánn eftir í lan<V', þurfti að sinna einhverju öðru. Þá fór ég einn með körlunum og ætlaði að nota tímann til að verða sól- brúnn og fínn, fór úr skyrt- unni og var á stuttbuxum ein- um. Svo k.om einhver fjandinn fyrir, ég þurfti að keppast við að vinna með körlunum á dekk inu, og bókstaflega steingleymdi að fara í skyrtuna aftur. Þegar ég svo klæddi mig í var ég orð- inn skaðbrunninn. Eg fann ekki mikið til fyrr en um kvöldið og nóttina, en daginn eftir var ég fárveikur, iá í nokkra daga möð töluverðan hita. Þetta hljóp a.llt upp í blöðrur, einkan- lega á herðunum. — Hafðirðu ekki eitthvað græðandi til að bera á þig? — Maður fékk einhvern siúkrakassa frá Róm. Það hefur sjálfsagt verið eitthvað í hon- um við sólbruna, en mest var þ’áð töflur til að set’ja í mengað vatn og hreinsa það. En maður var aldfei með þennan kassa með sér. Síðar var þessu haétt, — Varstú ekki nokkurn tíma að nú-þ.ér? ív- tnn og borgaði það sinsog þau væru að etfa. Bátarnír, sem lápcu ónotaðir í fiörunni. — Jú, og verst var að sofna, ég gat ekki legið á bakinu, það var allt eitt sár. Ég hugsa að þetta hafi verið að minnsta kosti annars stigs bruni. Svo rifnuðu blöðrurnar og allur bjór inn flagnaði af í stórum flyks- um. — Svo fórstu til Gujarat. — Ég var ráðinn til starfa í því héraði sem heitir Saurast- hra. Þar var fiskveiðideild og hafði hún aðalstöðvar í borg- inni Rajkot sem þá var höfuð- borg Gujarat. — Hvað gerðirðu fyrst? — Ég vissi náttúrlega ekkert í minn haus hvernig málin stæðu svo þeir byrjuðu að sýna mér öll hugsanleg fiskimanna- þorp þar á ströndinni, hvað væri gert, báta, net og önnur tæki. Þetta tók eina tíu daga. — Hvernig leizt þér á? — O, þetta var heldur frum- stætt, sennilega einsog það hafði verið í þúsund ár. Þeir veiddu mest með netum, náttúrlega baðmuilarnetum, önnur efni þekktu þeir ekki. Og þó þeir þekktu nælonnet af afspurn þá þóttu þeim þau svo dýr nð þeir veigruðu sér við að kaupa þnu. Einu verð ég að skjóta hér inní: Oft þegar ég ej heima er sagt við mig: .,Já, þú ert að kenna fiskveiðar“. En það er auðvitað tóm vitleysa, það þarf ekki að kenna þessu fólki fisk- veiðar, það hefur stundað þær miklu lengur en við. Ég er að reyna að kenna fiskimönnum að nota nútímatækni, nýjar veiði- aðferðir, ný veiðarfæri, nýja báta. Eitt er það sem ég reyndi að Jtenna þeim þarna í Saurast- hra, og það var að fellá net einsog við gerum heima. Við erum löngu búnir að finna það út að það margborgar sig að fella netin mikið, við fellum þau venjulega um 50%. Það gera. þeir ekki þar. Þeir að vísu fella þau dálítið, en ekki nóg. Á þennan hátt verða ' netin meira strengd og miklu lengri, og afþví þeir eru alllaf með mjög takmaikaðan fjölda af net um halda þeir að borgi sig að teygja sem mest úr þeim. En það er auðvitað einsog hver annar barnaskapur. — Hvfers k.onar báta voru þeir með? ' . — Bora kanóa eða eintrján- ingsbáta. — Ekki katamarana? — Nei, þeir þekkjast varla þar norðurfrá, bara á Suður- Indlandi og í Bengalfióa. — Þetta eru trjábolir holaðir innan. — Já, það á við um minni gerðirnar. Síærri bátarnir voru að maður verður að kalla, súð- byiðingar. En þeir vou ekki negldir, heldur saumaðir sam an með þvengjum eða. þræði úr leðri. Þessi saumavinna er ein staklega vönduð og merkileg iiandiðn. Göt eru boruð á borð in og þvengurinn dreginn í og reyrt geysifast. Svo notuðu þeir í þetta sólrunnið lýsi úr hákarla lifur eða skötulifur, lýsi sem ek.ki var rnanna matur. Lýsið v ar ekki bara notað til að þétta sauminn, bátarnir voru allir makaðir uppúr því, enda töíu- vert verð á lýsinu. Þeir mökuðu þessu á bátana til að verja þá fú.a og ágangi maðks sem al-lt étur í sundur. Og ýmislegt ann að sem verja þurfti bleyttu þeir i lýsi, það gengur vel inní vip- inn og reýnist ágæt vörn. — Hvernig gaztu orðið fiski- mönnunum helzt til leiðbein- ingar? — Það gekk heldur treglega ef átti beinlínis /bð leiðbeina þeim. Það var ekki um annað að ræð.u en taka báta sem stjórn in átti, búa þá út með nokkurn veginn skikkanlegum hætti og far.a svo á sjó og fiska miklu betur heldur en þeir, sýna svart á hvítu að nýjungarnar borg- uðu sig. Einstaka sinnum fór ég út með einhverjum karli á kan- ó.a með eitt eða tvö net. Stjórn in skaffaði okkur töluvert af næioni svo við gátum búið okk ur til net. Eins hafði ég hitt og þetta smottirí frá FAO, þar á meðal net sem^/aunar voru ekki a.lltof heppilega vabf, því þeir í Róm vissu náttúrlega ekkert hvaða möskvastærð væri pass- leg útaf ströndum Gujarat. Svo ég vík.i aftur að fellingunni á netu.num, þá var fiskurinn sem Frh. 12. síðu. Tarúní, einn af bátunum, sem Skafti lét byggja yfir.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.