Alþýðublaðið - 14.01.1970, Síða 12
12 Miðvilkiudiagur 14. janúar 1970
--mOt
ur hossað
□ Ný útgáfa af sögu rúss-
neska kommúnistaflokksins
kom út í Sovét um áramótin,
og þar er gerð greinil. tilraun
til þess að koma aftur þeim
dýrðarljóma á Stalín, sem hann
var sviptur í útgáfunni þar á
undan.
Moskvufréttaritari júgóslav-
nesku fréttastofunnar Tanjug
segir um verkið, að nú komi
frarn taJsvei't 'anniað mait á hiut-
verki Stalins sem 'herforingj a í
isíðari heimsstyrjöldinni heldur
■en áður. í fyrri úfcgáfunni var
á það bent að Stalin hefði metið
stöðuna í upphafi styrjaldarinn
,'ar raniglega, h'aldið þrátt fyrir
aðvaranir um hið gaignstæða,
að Súyétríkin þyrftu ,ekki að
óttaat, árás frá Þjóðverjum.
Þetta rap^a mait hefði orðið til
þcss ;að Rússar voru innrásinni
■eklki nægilega viðbúnir.
Þessi söguskoðun er felld
niður úr nýju útgáfunnii, og þar
er ékkert haft með sem geti
bent ti'l þess að Stalín hiafi orð-
ið á mistök í þessu tilli'ti. Kem-
ur þessi endursköðuin á verkinu
vel heim við það, ®em hefirr
verið áberandi í Sovétríkjun.um
upp á síðkastið, að Stalín er á
ný bafður í ta'isverðum háveg-
um. En hvað skyldi hanm lengi
verða á stallinum að þessu
siinni? —
VELJUM ÍSLENZKT
ÍSLENZKAN ÍÐNAI
Réli tíminn að
framkvæma
Irjáklippingar
□ iFélag skrúðgarðyrkjumeist
ara vill vekja athygli almenn-
ings á því að þótt síðastliðið
sumar hafi verið óhagstætt fyr-
ir ræktun í skrúðgörðum er
ekki ástæða til að láta hugfall-
ast heldur húa sig undir meiri
og betri ræktun.
Eftir því, sem betur er að
gróðrinum húið er hann fær-
ari um að mæta misjöfnu tíðar-
fari og verður minna um harð-
ræði.
Síðastliðið sumar var með
eiindæmum úrkcmusamt hér
suninanilands og kailt,- iaf þeim
sökum nýttust ekki áþuirðárgjaf
ir, sem til vair ætíiazt-. 'Vegna
rigninganna útskola'ðist jarðveg'
‘urinn óeðl.:iléga mik'ið, • af þeim
sökum er því nauðsynfegt nú
að 'sjá skrúðgörðum' fyrir líf-
rænum áburðiþ bæði gr.asif]öt-
um og trjágróðri, en trjágróður
óx ti’ltöiulega vei] á si. sumri
og hefur hann því gengið
— Frh. á 15. síðu.
Fremur dræm aðsókn að „Sólmyrkva"
Antonionis
□ Undanfarna viku hefur
mynd ítalska meistarans Anton-
ionís, „Sólmyrkvi“ (Eclipse) ver
ið sýnd í Hafnarbíó, en við frem
ur dræma aðsókn.
Myndin Sólmyrkvi er gerð ár
ið 1962 og vakti þá verulega
athygli, eins og raunar flestar
myndir Michelangelo Antonion-
is hafa gert. Ein nýjasta mynd
hans, „Blow up“ var í fyrra sýnd
í Gamla bíói.
Ástæðan fyrir hinni dræmu
aðsókn að „Sólmyrkva“ mun að
sögn vera skortur á kynningar-
starfsemi. Til að mynda hefur
enginn hinna vísu kvikmynda-
gagnrýnenda blaðanna minnzt á
hana einu orði. Þar sem sýn-
ingum á þessari mynd mun trú-
lega ljúka í þessari viku er rétt
að benda kvikmyndaunnendum
á að síðustu forvöð eru að sjá
hana. —•
Leikarar í myndinni eru m. a. Alain Delon og Monica
Vitti, en hún héfur leikið í flestum myndum Antoni-
onis. Sjást þau í hlutverkum sýnum á meðfylgjandi
mynd.
Háskólamenn fara fram á:
Tafarlausan
sami itigsré
□ Aðalfundur Bandalags há-
skólamanna ítrekar þá krö.fu
sína, að bandaiaginu verði veitt-
vr fuliur og óskoraður réttur til
að hafa ,-neð höndum samninga
um kjaramál fyrir háskóiamenn
•í opinberri þjónustu. lím 1750
manns eru nú innan vébanda
bandalagsins og eru aðildari'élög
in nú alls 14 talsins. Öll aðildar-
félögin eru gengin úr B.S.R.B.
Áðalfundur Bandalags há-
skólamanna (BHM) var haldinn
25. nóv. s. 1. I skýrslu stjórnar
bandalagsins kom fram, að starf
bandalagsins fór stöðugt vax-
andi og verkefni þess væru fjöl
þætt. Barátta bandalagsins fyrir
samning'srétti bar verulegan ár-
angur á árinu. Á BHM nú aðild
að starfsmati opinberra starfs-
manna, og sagði formaður banda
lagsins, Þórir Einarsson, við-
skiptafræðingur á blaðamanna-
fundi í '|?r, að e'kki verði hægt
að ganga fram hjá bandalaginu
við nýja samninga ríkisins við
opinbera starfsmenn, sem ganga
eiga í gildi um næstu áramót,
þótt enn sé ekki ljcst, hvernig
aðild BHM verður háttað. Á
aðalfundinum var eftirfarandi
tillaga samþykkt einróma:
„Aðalfundur BHM, haldinn
27. nóv. 1969, ítrekar þá kröfu
bandalagsins til Alþingis og rík
isstjórnar, að bandalaginu verði
með lögum veittur fullur réttur
til að hafa með höndum fyrir
háskólamenn í opinberri þjón-
ustu samninga um kjaramál
þeirra. Bendir fundurinn á, að
enda þótt B.S.R.B. fari enn skv.
lögum með þetta fyrirsvar, liafa
háskólamenn mótmælt þeirri for
sjá á eftirminnilegan hátt með
því að ganga úr B.S.R.B.“.
Bandalag háskólamanna er
þátttakandi í norrænu samstarfi
hliðstæðra samtaka á Norður-
löndum, en innan þeirra eru sam
tals um 220 þúsund manns.
Hafa samtökin með sér sameig-
inlegt ráð, Nordisk Akademiker
rád. Hélt það árlegan fund sinn
hér í ágúst í boði BHM, og var
það í fyrsta sinn, sem fundurinn
er haldinn hér á landi. —
Keflavík - Suðurnes
__KlæSum og gerum viS bólstruð húsgögn, einnig bílsæti og
bátadýnur. Fijót og vönduð vinna.
Úrval af áklæði og öðrum efnum.
Kynnið yður verð á húsgögnum hjá okkur.
BÓLSTUKGÉRD SUDURNESJA
Sóltúni 4 — SímT .1484 -k. Keflavík. ó ■ • • f,