Alþýðublaðið - 14.04.1970, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 14.04.1970, Blaðsíða 6
6 iÞriðjtídag'ur 14. apríl 1970 Þingmenn skoða laxaeldistjarnirnar í Kollafirði. (Ljósm. V.S.) Útgjöld við Laxaeldisstöðina 40,6 milljónir □ Stiórn Laxeldisstöðvar ríkis ins í Kollafirði bauð á laugar- dag alþingismönnum að koma í Laxeldisstöðina til þess að ske'a útbúnað þar ag kynna sér starfsemi hennar. Laxeldisstöð. in hefur, sem kunnugt er, lagt aðal áherz'u á uppeldi laxa- seiða í göngustaerð og eru nú í stöðinni um 150 þúsund seiði, se,m hafa náð þeirri stærð. Hef ur framleiðsla gönguseiða far- ið ört vaxandi nú síðustu árin. Auk þess hefur stöðin alið upp urriða og bleikju og eru nú í stöðinni m. a. um 140 þúsund bleikjuseiði, sem eru að byrja að taka fóður. Bvrjað var að reisa eldisstöð- ina árið 1961, og var hún þá miðuð við aðstæður eins og þær \ oru þá. Skyldi aðaláherzla lögð á framleiðslu gönguseiða af iaxi, en íil þess tíma höfðu laxa ‘seiði verið alin sum.arlangt og þeim s'ðan sleppt í árnar. Ráð- gert var, að ihin nýja eldisstöð skyldí ala seiðin í göneustærð, og það mvndi taka tvö lil þrjú ár. Var það því nýjung að ala seiðín áfram vfir veturinn, en ívið það sköpuðust miklir erfið- leikar, þar sem reyní var að ala r seiðin sem mest utan dyra, eins , og algengast var þá erlendis. í áætlun um kosínað við að reisa eldisstöð í Kollafirði ■ frá ' 1. júlí 1961 var gert ráð fyrir að reisa eldisstöð með útiað- stöðu til fiskeldis, eins og áður ‘segir, og hagnýta hús, sem voru á jörðinni Kollafirði. Áætlað var að kom.a upp eldisaðstöðu fyrir 7.8 milljónir króna, en af þeirri upphæð var áætlað að kaup aðstöðu fyrir stöðina myndi kosta um þrjár milljónir króna. Náði þessi áæílun til ár- anna 1961—1964. Þegar reynsla var fengin fyrir því að útieldi hæfði ekki fyrir íslenzkar að- stæður, var nauðsynlegt að kcma uop aðstöðu til fiskeldis innanhúss fyrir smáseiði að vetrarlagi, og var 1965 gerð ný fjárhagsáæUun fyrir árin 1966 —1970. að upphæð 35,6 millj. kr. Var í þeirri upphæð áætlað að greiða því sem næst upp skuldir stöðvarinnar og skyldi tæplega þriðjungur þeirrar upp hæðar fara til nýbygginga. I hinni nýju áætlun var gert ráð fyrir að reisa nýtt eldishús, 460 melra langa vatnsleiðslu og íbúðarhús. Nýtt eldiahús hefur verið reist og vatnsleiðsla svo sem kunnugt er, en íbúðarhúsi hefur ekki enn verið komið uop vegna þess, að fjárveiting' iil þes.s hefur verið skorin nið- ur. A síðasta áratug hafa, sem kunnugt er, orðið örar breyfing ar á verðlagi til hækkunar og hefur það leiít af sér, að kostn- aður hefur orðið meiri heldur en áætlanir gerðu ráð fyrir. ÚTGJÖLD 40,6 MILLJÓNIR 1 Til ársloka 1968 hafa utgjöld við Laxeldisstöðina í Kollafirði verið 40.6 milljónir króna. Byggingarkostnaður nemur um 18 milljónum króna og er þar með talið kaup á jörðinni Kolla firði . og rekstrarkostnaður nemur tæplega 12 milljónum króna. í upphafi var ætlunin að reisa stöðina fyrir lánsfé og var það gert framan af. Vextir og af borganir hafa numið nær 8 roilljónum króna og annar kostn aður hefur verið nálægt 3 millj- ónum króna. Ríkissjóður hefur lagt fram tæplega 26 milljónir króna, skuldir stöðvarinnar eru um 12 milljónir króna og bein- ar tekjur háfa numið um 3 millj ónum króná til ársloka 1968. FRAMLEIÐSLAN Laxeldisstöðin hefur framleitt síðustu þfjú árin 448 þúsund seiði, þar af 236 'þúsund göngu seiði af laxi, 157 þúsund sumar- abn laxaseiði, 55 þúsund bleikju seiði af ýmsum stærðum og um V-i tonn af bleikju til matar. Auk þess hefur verið selt frá slöðinni laxa'hrogn, bleikju- og sjóbirtingshrogn. TILRAUNIR í Laxeldisstöðinni hafa farið fram tilraunir og rannsóknar- síarfsemi. Tilraunir hafa m. a. verið gerðar með gildi fiskfóð- urs með það fyrir augum að geta framleitt fyrsta flokks fiskfóður hér a landi. Standa. slíkar til- raunir nú yfir í stöðinni í sam- vinnu við Rannsóknarsíofnun fiskiðnaðarins, og sér dr. Jónas Bjarnason, efnafræðingur, um samsetningu fóðurblandna, sem reyndar eru við þessar tilraun- ir. MERKINGAR Veiðimálastofnunin hefur síð- uslu fjögur árin merkt nær 22 ‘þúsund gongusei,ði af laxi í stöð inni, sem sleppt hefur verið í tjarnir hennar og þau síðan gengið í sjó. Er það m. a. liður í alþjóðlegri samvinnu laxveiði landanna. Hefur það verið gert til þess að afla upplýsinga um ferðir laxins um höfin og hér við land svo og að fá vitneskju um, hve margir laxar að hundr- aðshluía til, miðað við tölu slepptra gönguseiða, skila sér aftur. Hafa komið fram ýmsar athyglisverðar niðurstöður af þeim merkingum. Eitt merkt laxaseiði kom fram við Vest- ur-Grænland sem tveggja sumra lax í sjó og annar við Færeyj- ar. Laxjnn virðist flakka meira í aðrar ár en heimaá sína hér á landi, heldur en almennt hef- ur verið gert ráð fyrir. ENDURHEIMTUR Þá hefur verið sleppt ómerkt- um gönguseiðum í tjarnir við fjöruborðið í Kollafirði. Og hafa þau gengið til sjávar á árunum 1963—1968. Einstök ár hefur verið sleppt frá 300 og upp í 18000 ómerktum gönguseiðum að vori t'il ihvert ár, en á árunum 1965—1968 var sleppt frá 11300 til 120*00 gönguseiðum hvert vor og á árunum 1967 og 1968 var meira en helmingur □ Svo sem kunnugt er hafa bændur og aðrir íbúar þeirra 6 sveitarfélaga í Suður-Þingeyjar sýslu, sem hagsmuna eiga að gæta, vegna væníanlegs tjóns af fyrirhugaðri fullvirkjun Lax ár og fyrirhuguðum vatnaflutn ingum frá Skjálfandafljótssvæð inu, mótmælt virkjunaráform- um á margvíslegan hátt: Hafa mótmæli þessi komið fram frá eftirtöldum aðilum í héraði: 1. Ollum sýslunefndarmönnum á sýslufundi. 2. Öllu fulltrúaráði búnaðar- sambandsins (á aðalfundi þess). 3. 25 hlutaðeigandi sveitar- stjórnarmönnum af 28. þeirra merktur. Endurheimtur hafa frá 1966—1969 verið frá 203 laxar upp í 704'laxa á ári. Alls hefur á þessum árum ver- ið sleppt 52800 gönguseiðum og þar af nær 22 þúsund merkt- um eins og fyrr segir, eða 42 af hundraði og af þessum. seið- um hafa 1780 laxar skilað sér aftur í Kollafjarðarstöðina enn sem komið er eða 3.4 af hundr- aði. Nú skilar sér aftur nálægt einn merktur lax á móti þremur ómerktum, þannig að nefnt hundraðshlutfall æíti að vera töluvert hærra heldur en hér er nefnt, ef öll gönguseiðin hefðu verið ómerkt. Ber að hafa þetta í huga, þegar endurheimt- ur á laxi í Kollafjarðarstöðina eru skoðaðar. Þá er einnig .mikilvægt að .gera-sér grein fyrir, að náttúr- legar sveiflur í laxgöngum eru töluverðar frá ári til árs, sem einnig hlýtur að koma fram í endurheimtum á laxi i Laxeld- isstöðinni í Kollafirði. Slíkar sveiflur þekkjum við ekki hér á landi ,með tilliti til veru lax- ins í sjónum, og eru því göngu- seiðasleppingar í Kollafirði mjög mikilvægar til þess að fá vitneskju um þetta efni. Það er allt of snemmt að draga á- lyktanir af þeim endurheimtum, sem þegar eru fengnar. Mun þurfa að sleppa seiðum í eldis- stöðinni og endurheimía þau eftir sjávarveruna í 10—15 ár áður en sæmilega áreiðanleg mynd fæsí af endurheimtum þar. í sljórn Laxeldisstöðvarinnar eru Guðmundur R. Oddsson, for stjóri, Jón Sigurðsson, ráðuneyt isstjóri, Sigsteinn Pálsson, hrepp stjóri, Svanbjörn Frímannsson, bankastjóri og Þór Guðjónsson, veiðimálastjóri, sem er jafn- framt framkvæmdastjóri stöðv- arinnar. Stöðvarstjóri Laxeldis stöðvarinnar er Sigurður Þórð arson og ráðunautu stöðvarinn- ar í fiskeldismálum er Áke Há- konsson. Verkfræðingur stöðvar innar er Guðmundur Gunnars- son. — 4. Ollum stjórnarmönnum bún- aðarfélaga á svæðinu. 5. Öllum bændurn í Veiðifélagi Laxár. 6. 116 bændum, sem hagsmuna eiga að gæta, á Skjálfanda- fljótssvæðinu af 133, eða 87,2%. 7. 117 bændum við Laxá og Mývatn, af 129, eða 90%. 8. 541 alþingiskjósanda af 626 sem til náðist á báðum vatna svæðunum, eða 86,4%. Þetta vill nefndin láta koma fram vegna rangra fregna úr Suður-Þingeyjarsýslu af þessu máli. (Frá Héraðsnefnd Þingeyinga í Laxárvirkjunarmálinu). — ÞINGEYINGAR MÓTMÆLA

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.