Helgarpósturinn - 17.10.1994, Page 23

Helgarpósturinn - 17.10.1994, Page 23
MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 1994 MORGUNPÓSTURINN MENNING 23 ★ ★ ★ ★ ★ FRÁBÆRT ★ ★ ★ ★ ÁGÆTT ★ ★ ★ GOTT ★ ★ LALA ★ SLÆMT 0 VONT © HÆTTULEGT HÁTlDARTÖNLEIKAR I HÁSKÓLAHlÓI ★ ★★★ „Bráðefnileg söngkona, Guðrún María Finnbogadóttir, hefur nú stigiðfram á sjónarsviðið. Á hún eft- ir að skáka sjálfum „King of the World“?“ vini sínum má lesa að í upphafi leit hann á konu sína sem elskulegan krakka. Það viðhorf virðist þó hafa breyst eftir því sem árin liðu. Freudisti á borð við Dagnýju Kristjánsdóttur hefði farið á kost- um í túlkunum á þessum þríhyrn- ingssamskiptum og skapað sér reiði og óvild afkomenda. Það má lesa milli línanna hjá Silju. Hún vill engan særa og engan móðga, full- yrðir fæst en gefur hárfínt í skyn. Hún heldur jafnvægi í mjög erfíðri stöðu. Silja lendir í enn einum jafnvæg- isleiknum þegar kemur að viðskipt- um Kristins E. Andréssonar og Guðmundar. Kristinn reyndist Guðmundi í flestu vel en það voru þó tímar þar sem viðskiptin voru skáldinu ekki í hag. Silja potar í Kristin í einni setningu og kyssir á bágtið í þeirri næstu. Sú meðhöndl- un er í fullu samræmi við þá stefnu sem Silja hefur tekið við samningu bókarinnar; að komast sem næst sannleikanum án þess að meiða. Mér virðist allir þeir sem við sögu koma mega una nokkuð sáttir við sitt, enda mun þessi bók varla valda deilum. Skáldskapur Guðmundar Böðv- arssonar fær vitaskuld veglegt rými í bók Silju. Úttekt Silju á skáldskap Guðmundar er mjög vönduð. Hér er einnig að finna áður óbirt ljóð sem aðdáendum skáldsins mun þykja fengur að. Bókin mun varla fjölga verulega aðdáendahóp Guðmundar en þeir sem unna skáldskap hans mega mjög vel við una. Kolbrún Berþórsdóttir ■ Vel unnin, læsileg en varfærin ævisaga Guðmundar Böðvars- sonar. Persóna skáldsins verður ekki athyglisverð, konurnar i lifi hans verða öllu forvitnilegri. Skáldskapurinn fær góða með- höndlun. Áhugi á bókinni mun likast til einskorðast við aðdá- endur skáldsins. Söngstjarnan og Búkolla HátIðartónleikar í HÁSKÓLABIÓI, SlÐASTLIÐIÐ FIMMTUDAGSKVÖLD, AFHENDING TóNVAKANS, TÓNLIST- ARVERÐLAUNA RíKISÚTVARPSINS 1994 Islendingar eiga fjölmargar söng- stjörnur. í heimi sígildrar tónlistar Lœsileg en varfœrin Silja Adalsteinsdóttir SkAldið sem sólin kyssti Ævisaga Guðmundar Bödvarssonar Hörpuútgáfan 1994 452 bls. Þótt fslendingar státi sig af því að vera mikil bókaþjóð þá býr þjóðin við heldur fátæklegan kost þegar kemur að framfærilegum ævisög- um merkra skálda og rithöfunda. Þessa haustdaga er þjóðin þó einni ævisögunni ríkari því Hörpuútgáf- an hefur sent frá sér ævisögu Guð- mundar Böðvarssonar eftir Silju Aðalsteinsdóttur. Guðmundur Böðvarsson var hið geðþekka skáld sem færði okkur ljóð eins og Kyssti mig sól, Rauða steininn og Fylgd. Hann var bóndi sem unni landi sínu og þjóðrækni og pólitísk afstaða settu mark á skáldskap hans. Það var ekki til lýta. í pólitískum skáldskap hlunkaðist Guðmundur aldrei niður á banalít- etplanið eins og Jóhannesi úr Kötlum varð stundum á. Maðurinn sjálfur virðist hafa verið hógvær og dagfarsprúður maður sem lifði stilltu og hvers- dagslegu lífi. Þetta var líf sem er ekki efni í hádramatíska sögu, en þar finnst þó sitthvað forvitnilegt. Guðmundur missti móður sína ungur. Sú kona sem snemma varð trúnaðarvinkona hans og virðist að nokkru hafa tekið að sér að ala hann upp sem skáld og mann var Ragnheiður Magnúsdóttir frá Gilsbakka, sem var sjö árum eldri en Guðmundur. Silja birtir í bók sinni nokkur bréf Guðmundar til Ragnheiðar. Þau bréf birta afar geðþekka mynd af ungum, einlæg- um og góðgjörnum einstaklingi. En svo er eins og mynd skáldsins dofni. Hann hættir að gefa færi á sér. Við lesum úr bréfunum hvern- ig ungmenni hann var en verðum litlu nær um það hvers konar mað- ur hann varð. Samband Guðmundar og Ragn- hildar er athyglisverðasti þátturinn í æviferli og þroska skáldsins og milli þeirra virðist hafa ríkt meiri kærleikur og traust en finnst í flest- um hjónaböndum. Silju er nokkur vandi á höndum þegar kemur að því að túlka samband þeirra því bæði voru í hjónabandi með öðr- um aðilum. Guðmundur var giftur konu sem var sjö árurn yngri en hann og úr bréfi sem hann skrifar Gerður Leifsdóttir, Hreinn Friðfinnsson, Ingileif Thorlacius, NIels Haf- stein og Haraldur NIelsson. Nýlistasafnið 15. - 30. OKT. •kk „öll verkin í Nýlistasafhinu eru virðingarverð, en einungis verk Hreins Friðfinnssonar erfyllilega trúverðugt; æ öruggari og persónu- legri aðferðafræði hans verður vart lengur á móti mcelt. “ Silja Aðalsteinsdóttir Skáldið sem sólin kyssti ★★★ „Vel unnin, læsilegen varfærin œvi- saga Guðmundar Böðvarssonar. Persóna skáldsins verður ekki at- hyglisverð, konurnar í lífi hans verða öllu forvitnilegri. Skáldskapurinn fær góða meðhöndlun. Áhugi á bók- inni mun líkast til einskorðast við aðdáendur skáldsins. “ Gríman The Mask Laugarásbíói ★★★ „EfThe Mask er ekkifyrir tíu ára menn, sem geta staðið af sér tveggja tíma rifrildi um hvort sé skemmti- legra fréttir eða teiknimyndir, þá veit ég ekki fyrir hverja hún er. “ Fæddir morðingjar Natural Born Killers Sambíóin ■kk „Það eina góða við Natural Born Killers er myndatakan, klippingin og hvernigþetta tvennt býr til and- rúmsloft sem fær mann til að halda að íþremur sætaröðum fyrir aftan mann sitji hálfgeggjaður maður sem stjórni myndinni með fjarstýringu.“ Megas „Ég veit ekki hvað hægt er að gera við mann eftir að búið er að flá hann, því ekki er hægt að éta hann. Megas hatar iöföídina; Hann er búinn að siga fjöldamorðingjdn um Axlar-Birni og syni hans, nauðgaranum Sveini Skotta, á spíttfríkað lýðveldið. Fljótlega kemur út bók eftir meistammi þar sem alburðarásinni er lýst í smáatriðum en hér gefur naþti Lofti^Atla Eiríkssyni nasasjón af þessum nútíma andlitum t)igfi Giovanni sem dregnir eru upp úr drullupolli íslandssögjfflBffl.v Makleg málagjöld Megasar „Það heita svo margar bækur glæsilegum nöfnunt en innihaldið er eins og verið sé að skrapa kjötið af nöguðu hundsbeini," segir Meg- as um íslenskar bókmenntir þegar við hittumst á heimili hans til að spjalla um um bók hans „Björn og Sveinn, makleg málagjöld," sem verið er að prófarkalesa þesa dag- ana, en hún kemur út á næstu vik- um hjá Máli og menningu. „Mér fannst bókin mín vera það mikil að efni að einfalt nafn væri við hæfi,“bætir hann við. Björn og Sveinn hafa verið í gerjun síðastlið- in fimm ár en fyrirmynd bókarinn- ar sækir Megas í óperuna Don Gio- vanni eftir Mozart. „Axlar-Björn og Sveinn Skotti eru samanlagt Don Giovanni,“ að sögn hans. "Eg skrifaði beinagrindina úti í Tælandi en það félst einfaldlega í því að taka Don Giovanni og staðfæra hann upp á nýtt með því að steypa saman Leporello og Don Giovanni og kljúfa þá aftur í sundur. Don Gio- vanni var morðingi og nauðgari, en Leporello var svona skrípó. Ég steypti þeim saman, skrípóið hvarf að mestu og útkoman var annars vegar morðingi og hins vegar nauðgari." Borgaralegir snyrti- mennsku-glæpir Feðgarnir Axlar-Björn og Sveinn Skotti bjuggu undir Axlarhyrnu á Snæfellsnesi á 16. öld en Björn var, að því er talið er, mesti íjöldamorð- ingi íslandssögunnar og hafði 18 mannslíf á samviskunni þegar hann var líflátinn árið 1596. Sveinn var hins vegar nauðgari sem hlaut sömu örlög um það bil 50 árum síðar og nú hefur Megas endurvak- ið þá og sleppt þeim lausum í Reykjavík nútímans. „Þeir félagar eru náttúrlega ekki í þessum borgaralegu snyrti- hefur enginn þeirra náð eins langt erlendis og Kristján Jóhannsson, sem varð fýrir aðkasti öfundsjúkra ungmenna í Kringlunni fyrir skemmstu. Aðrir söngvarar hafa sem betur fer ekki þurft að lenda í öðrum eins raunum, enda ekki notið sömu hylli í útlöndum og hann. En nú er stigin fram á sjónar- sviðið ung og bráðefnileg söngkona sem á ef til vill ekki eftir að gefa Kristjáni neitt eftir. Þetta er Guð- rún María Finnbogadóttir, og vona ég að sami lýður og púaði á Kristján eigi ekki eftir að gera slíkt hið sama við hana þegar fram líða stundir. Guðrún María söng nokkrar ar- íur á hátíðartónleikum með Sin- fóníuhljómsveit Islands - sem Ant- hony Hose stjórnaði - í Háskóla- bíói síðastliðið fimmtudagskvöld. Tilefnið var verðlaunaafhending, því Guðrún María sigraði í tónlist- arkeppni Ríkisútvarpsins, sem var haldin þriðja árið í röð núna í sum- ar. Er hér bráðefnileg listakona á ferðinni svo ekki sé meira sagt. Hún virðist hafa allt sem þarf til að verða prímadonna á heimsmæli- kvarða; hún hefur kraftmikla, tæra rödd og geislandi framkomu. Enn- þá bíður hennar auðvitað ströng þjálfun og mikið nám; röddin er til dæmis ekki fullmótuð á neðri svið- inu þó öll háu c-in hafi verið mjög áhrifarík á tónleikunum. En við því er heldur ekki að búast, því Guðrún María. er ekki nema tuttugu og fimm ára gömul, sem er mjög ung- ur aldur í sönggeiranum. Tónleikarnir á fimmtudags- kvöldið lofuðu samt góðu um framhaldið, og vill undirritaður hér með óska henni til hamingju með þennan glæsta árangur. Á sömu tónleikum voru einnig veitt sérstök heiðursverðlaun fyrir vel unnin störf, og var það Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld sem hreppti hnossið. Við það tækifæri voru flutt þrjú verk hans, svonefnd Hljómsveitartröll, Víravirki og Día- fónía. Segja má að Þorkell eigi verð- launin skilið, enda hafa um tvö hundruð tónverk, þar á meðal "Bú- kolla" og "Apaspil", runnið úr fjað- urpenna hans í gegnum tíðina. Stundum er tónlist hans þó dálítið einhæf, því það er eins og hann notist ekki við margar hugmyndir í hverju verki. Sumum kann að finnast það leiðinlegt, og sú virtist vera raunin á tónleikunum. Lófaklappið var dræmt, og það var eins og áheyr- endur hefðu ekki áhuga á að hlusta á neitt annað en nýju söngstjörn- una. Enda ljómaði hún skært þarna um kvöldið. Jónas Sen ■ Bráðefnileg söngkona, Guð- rún María Finnbogadóttir, hefur nú stigið fram á sjónarsviðið. Á hún eftir að skáka sjálfum King of the World? Hjarta, heili, - og sál Gerður Leifsdóttir, Hreinn Friðfinnsson, Ingileif Thorlacius, NIels Haf- STEIN OG HARALDUR NlELSSON. NyLISTASAFNIÐ 15. - 30. OKT. Um þessar mundir virðist það ekki einungis að verða viðtekin hefð hjá Listasafni Reykjavíkur að Kjarvalsstöðum að dreifa lista- mönnum til sýninga eins og hráviði í mismunandi afkima hússins, þessarar sömu tilhneigingar verður einnig vart í Listastofnun Hafnar-

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.