Helgarpósturinn - 17.10.1994, Side 26

Helgarpósturinn - 17.10.1994, Side 26
26 MORGUNPÓSTURINN SPORT MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 1994 Rekdal skoraði jöfnunarmark Norðmanna gegn Hollendingum á miðvikudagskvöld og það var nóg til þess að forráðamenn Lierse aft- urkölluðu lánssamninginn frá norska félaginu, en leikmaðurinn hefur verið samningsbundinn Li- erse í íjögur ár. Eric Gerets, þjálf- ari Lierse og fyrrum leikmaður Belga, krafðist þess að fá leikmann- inn og eftir því fór stjórnin. ■ Með hvaða liði heldur þú í hand- boltanum? ndartaki Þeir hafa fengið nóg af lífinu í skugga erkiíjendanna og nú hyggur lið Internazionale á hefndir. Liðinu var spáð sigri í ítölsku deildinni á síðustu leiktíð en olli miklum vonbrigðum. Hvað gerir liðið í ár? „Mér hefur verið mikið strítt á þessu," segir hún. "Það er líka mjög óalgengt í kvennaboltan- um að rauð spjöld séu gefin. Til dæmis fékk engin stelpa rautt spjald á nýliðnu Islandsmóti.“ þýðir þetta ekki bara að þú sért frekar grófur leikmaður? „Nei, það held ég ekki. Ég get verið föst fyrir en gróf er ég ekki. Þessi brottrekstur var hins vegar umdeilanlegur að mínu mati, fyrri áminningin var rétt en seinni ekki, að mínu mati. Hins vegar gerði þetta ekkert annað en að þjappa stelpunum saman og þær ldáruðu leikinn með sóma og mér hefur líklega liðið verst sjálfri uppi í stúku.“ Auður dvelur nú í Danmörku og leikur þar knattspyrnu með í. deildarliðinu Fortuna Hjörring. „Þetta kom nú eiginlega til fyrir tilviljun,“ útskýrir hún. „Ég fór út tií Danmerkur í sumar á stórt fótboltamót sem þjálfari litlu stelpnanna. Félagið heldur mót- ið og ég fékk að æfa mig með því á meðan á mótinu stóð. Þeim hefúr litist vel á mig og buðu mér að koma aftur og klára tímabilið. Ég þakkaði auðvitað gott boð og hélt utan í septemb- er en hef komið heim vegna landsleiksins og æfinga síðan þá.“ Og hvernig er „atvinnumennsk- an“? „Þetta er alveg rosalega gam- an. Félagið er eitt það sterkasta i landinu og miklu sterkara en fé- lögin heima. Æfíngarnar eru svipaðar og hjá landsliðinu, kannski erfiðari. Ég verð hér fram í nóvember og kem síðan heim. Síðan verður bara að koma í ljós hvort ég fer aftur út næsta vor.“ Bih Allir þekkja dæmin um dagfarsprúðu mennina sem umbreytast gjörsamlega þegar út í keppni er komið. Sómadrengir verða þá á svipstundu að óalandi og óferjandi óargadýrum sem allt gera til að valda andstæð- ingnum leiðindum. Þetta getur komið fyrir besta fólk. Þetta bara gerist. Til dæmis þegar frábær framherji eins og Mark Hughes gerir þrennu í einum og sama leiknum. Það fer ekkert í taugarnar á honum. Eðlilega ekki. En aumingja Carlton Palmer sem átti að dekka Hughes er í uppnámi, hann hefur allt á hornum sér, og þá lætur hann ýmislegt flakka í hita leiksins... Höllin fyrir fleiri áhorfendur Framkvæmdir eru nú hafnar við austurenda Laugardalshallarinnar í því augnamiði að koma fleiri áhorfendum fyrir vegna heimsmeistara- keppninnar í handbolta á næsta ári. Stutt er í keppnina og því ekki ráð nema í tíma sé tekið hjá borgaryfirvöldum og forystu íþróttahreyfingar- innar. Snorri Sturluson útvarpsmað- ur „Ég er gegnheill KA-maður enda al- inn upp fyrir norð- an frá tíu ára aldri. Ég er Akureyringur og norðanmaður í húð og hár og hef alltaf verið mjög hlýtt til KA-manna. Reyndar skipti ég einu sinni yfir í Þór og var þar í þrjá daga. Það voru þrír undar- legustu dagar ævi minnar." Illugi Jökulsson, fyrrverandi pistlahöfundur á Rás 2 „Ég fylgist nú frekar lítið með íþróttum almennt. Þó gerði ég það örlítið sem strákur og hélt með FH þegar Geir Hall- steinsson var upp á sitt betsa. Ég held því að ef mér væru settir ein- hverjir afarkostir myndi ég velja FH. Ég fylgist með íþróttum aðal- lega úr fjarlægð. Það er ekki hægt annað, svo mikið pláss fá þær í fjölmiðlum." Ólafur B. “afruglari" Ólafsson, rafeindavirki „Ég held með Haukum af því að þeir eru bestir. Ég er úr Garðabæ og er ný- lega farinn að fylgjast með gengi minna manna. Nú fer ég oft á Haukaleiki og finnst þeir góðir. Ég vona að þeim gangi vel, líst mjög vel á nýja mark- manninn en þori ekki að spá þeim titli í ár.“ Thor Vilhjálmsson, rithöfundur „Mín íþróttaiðkun hefur verið afar til- viljanakennd í gegnum tíðina. Ég stunda júdó, var sem drengur í 5. flokki á kantinum hjá KR og reyndi fyrir mér í þrístökki hjá Armanni. Þar brenndist ég reyndar og hætti eftir það. í raun má segja að ég haldi ekki með neinu liði. Ég sveiflast meira eftir umfjölluninni hverju sinni.“ Rósa Guðbjartsdóttir, frétta- maður „Ég held með Haukum. Ég er búin að fara á nokkra leiki með þeim og eitt af því fyrsta sem mér var kennt var að segja „Áfram Haukar“, enda uppalin í Hauka-mafíu. Ég bý í næsta húsi við íþróttahúsið við Strandgötu og heyri því lætin samfara leikjum inn á gafl.“ Norski landsliðsmaðurinn Kjetil Rekdal er snúinn aftur til belgíska iiðsins Lierse eftir að hafa verið í láni hjá norska liðinu Molde síðan í sumar. Nicola Berti Ótrúlega tilfinninganæmur leikmaður sem Inter getur ekki verið án. limov. Sá fyrrnefndi er þekktur fyr- ir sín þrumuskot og lék ágætlega á síðasta tímabili þegar hann skoraði 6 mörk í 25 leikjum. Shalimov komst í hóp dýrustu leikmanna heims þegar Foggia seldi hann til Inter fyrir 750 milljónir sumarið 1992. Hann hefur þó ekki náð að standa sig sem skyldi og virðist al- veg dottinn út úr myndinni. Á hægri kantinum spilar Pierluigi Orlandini sem var keyptur frá Atal- anta í sumar og hefur staðið sig mjög vel það sem af er. Hann þykir í hópi þeirra efhOegustu í boltanum og hefur mikla tækni en þykir held- ur þungur. Sóknin Sóknarleikur Inter brást illilega á síðasta ári. Þetta var talið sterkasti hluti liðsins fýrir tímabilið en ann- að kom á daginn. Hollendingurinn Dennis Bergkamp og Ruben Sosa frá Uruguay náðu engan veg- inn saman og uppskeran var effir því. Þó er talið að þeir verði notaðir saman áfram nú ásamt Darko Pancev frá Makedóníu, sem leikur með þeim í fremstu víglínu. Sosa er fljótur og lipur leikmaður sem get- ur skotið snöggt og fast að marki af ólíklegustu stöðum. Hann er vanur að skora glæsileg mörk en á það til að klúðra ótrúlegustu færum. Pancev var mikill markahrókur með Rauðu Stjörnunni frá Belgrad áður en Inter keypti hann fýrir tveimur árum. Hann hefur mjög lítið fengið að spila með liðinu eftir slæma byrjun en virðist núna vera í náðinni á nýjan leik. Komnir: Mirko Conte frá Venezia, Gi- anluca Festa frá Roma, Darko Pancev ffá Leipzig, Pierluigi Orland- ini ffá Atalanta, Giovanni Bia frá Na- poli, Andrea Seno ffá Foggia, Arturo Di Napoli ffá Acireale, Luca Mond- ini ffá F.Andria, Barollo frá Lecce, Marco Delvecchio ffá Udinese, Gi- anluca Pagliuca ffá Sampdoria, og Mirko Taccola ffá Lucchese. Farnir: Salvatore Schillaci til Jubilo, Massimo Marazzina til Foggia, Fa- bio Di Sauro og Alessandro Cont- icchio til Gualdo, Oliva og Alessan- dro Rossi til Sora, Walter Zenga og Riccardo Ferri til Sampdoria, Dani- ele Corona og Gianni Testa til Fas- ano, Beniamino Abate til F.Andria, og Mirko Taccola til Palermo. Saga inter 1908: Stofnað sem Internazionale Football Club Milano. 1909-10: Italskir meistarar í fýrsta sinn. 1928-29: Nafninu breytt í Am- brosiana-Inter. 1938-39: Italskir bikarmeistarar í fyrsta sinn. 1945-46: Nafninu breytt aftur í Internazionale. 1963-64: Evrópu- og heimsmeist- arar félagsliða. 1980-81: Sigurvegarar í Mundia- lito-bikarnum. 1989- 90: Meistarar meistaranna á Italíu í fyrsta sinn. 1990- 91: Sigurvegar í UEFA-bik- arnum í fýrsta sinn. ■ Knattspyrna Kjetil Rekdal aftur til Lierse Fyrir síðasta tímabil borgaði Int- er 2,5 milljarða fyrir nýja leikmenn og var liðinu spáð meistaratitii. Þegar upp var staðið hafnaði liðið í 13. sæti en bjargaði andlitinu með því að vinna UEFA-bikarinn. Nú í sumar fór Inter hægar í sakirnar en keypti þó landsliðsmarkvörðinn Gianluca Pagliuca frá Sampdoria og létu gömlu kempuna Walter Zenga upp í kaupverðið. Marka- hrókurinn Darka Pancev er kom- inn í liðið aftur og farinn að skora á ný og liðið er því líklegt til afreka í vetur en Dennis Bergkamp og Ruben Sosa áttu erfitt með að skora á síðasta tímabili. Inter hefur ávallt verið í fremstu röð og eftir að núverandi deildarskipulag var komið á hefur það aldrei fallið nið- ur um deild. Félagið hefur alls unn- ið 13 meistaratitla á Italíu, þrisvar sinnum orðið bikarmeistari, tvisvar sinnum Evrópumeistari og tvisvar sinnum unnið UEFA- bikarinn. Forseti félagsins, Ernesto Pelle- grini, hefur lagt mikla fjármuni í félagið síðan hann tók við stjórn- inni 1984. Hann hefur verið ósáttur við árangur flestra þjálfara liðsins til þessa og hikar ekki við að láta þá fjúka. Þjáifarinn Ottavio Bianchi var fenginn til að taka við liðinu í sumar eftir ófar- ir síðasta tímabils. Bianchi er gam- alreyndur þjálfari sem stjórnaði Napoli þegar þeir urðu meistarar 1987. Hann tók síðan við liði Roma en var óvinsæll á meðal leikmanna og snéri aftur til Napoli sem fram- kvæmdastjóri. Hann var efstur á óskalista eigenda Inter í sumar og tekur við af Marini sem hefúr stýrt liðinu undanfarna mánuði. Bianchi er með eins árs samning við Inter. Vörnin I markinu stendur hinn stóri og stæðilegi landsliðsmaður, Gi- anluca Pagliuca, sem Inter keypti frá Sampdoria í sumar. Hann tekur við af Walter Zenga sem hefur stað- ið í marki liðsins meira og minna síðasta áratug. Þótti mörgum löngu tímabært að breyta til og varla er hægt að fá betri markvörð á Italíu en Pagliuca. Hann er eini landsliðs- maðurinn í vörn liðsins en þar eru þó margir snjallir leikmenn. Sá sem skemmtilegast verður að fylgjast með er fríherjinn Giovanni Bia sem lék mjög vel í öftustu vörn hjá Napoli á síðasta tímabili og var far- inn að banka hraustlega á lands- liðsdyrnar fyrir lokakeppni HM. Bakverðir liðsins eru sókndjarfir og léttleikandi og ættu að setja skemmtilegan svip á liðið. Hægra megin verður það sennilega hinn tvítugi Mirko Conte sem verður í byrjunarliðinu en hann spilaði með Venezia í fyrra og var almennt tal- inn besti bakvörður B-deildarinn- ar. Vinstra megin leikur Davide Fontolan sem hóf ferilinn sem framherji en eftir að hafa fengið fá tækifæri þar undanfarin ár var hann síðan færður í stöðu vinstri bakvarðar á síðasta tímabili og blómstraði. Hann var jafnan besti maður liðsins og komst í ítalska landsliðshópinn. 1 miðri vörninni berjast tvö hörkutól um stöðu í lið- inu. Gamli landsliðsmaðurinn Gu- iseppe Bergomi er orðinn þrítug- ur og farinn að láta á sjá. Hann þykir einn sá allra harðasti í boltan- um, gefur aldrei eftir og andstæð- ingarnir bera þess oft merki lengi á eftir að hafa lent í honum í leik. Miðjan Eins og undanfarin ár er það Nicola Berti sem verður í aðal- hlutverki á miðjunni. Hann vekur ávallt mikla eftirtekt og látbragð hans á leikvelli gengur oft út í öfgar. Það var talin ein aðalorsök slæms gengis félagsins á síðasta tímabili að hann gat lítið leikið vegna meiðsla. Liðbönd í hægra hné slitnuðu í leik í september og hann gat ekki leikið aftur fýrr en undir lok tímabilsins. Inter á tvo erlenda miðjumenn sem ekki er talið að fái mörg tækifæri í vetur en það eru Hollendingurinn Wim Jonk og Rússinn Igor Sha- Intemazionale, AC Milan Auður Skúladóttir Er mikið stríttá spjaldinu Auður Skúladóttir hefur leikið vel með Stjörnunni og íslenska landsliðinu í sumar. 1 útileikn- um við Hollendinga á dögunum varð hún fýrst íslenskra knatt- spyrnukvenna til að hljóta rauða spjaldið í landsleik. Auður segir að þetta atvik hafi verið leiðin- legt og fyrir vikið hafi hún fengið mörg skot á sig.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.