Helgarpósturinn - 25.05.1995, Blaðsíða 4

Helgarpósturinn - 25.05.1995, Blaðsíða 4
'FIMMTUBWGUJR^gSl 3000 FERMETRA TÓNLEIKA- HÖLL í HJARTA BORGAR- INNAR Þegar borgarstjórn beitti sér fyrir flutningi Kolaportsins í Tollhúsið var hugmyndin að í þessu stóra og glæsilega húsnæði gæti þrifist margvísleg starfsemi sem flesta daga vikunnar. Kolaportið vill eiga samstarf við aðila um alls konar afnot af húsnæðinu og má til dæmis geta þess að þar er ákjósanleg aðstaða fyrir tónleika, Ríkissjónvarpið hefur notað það sem upptökusal, haldnar hafa verið tískusýningar og húsnæðið hefur verið leigt út fyrir aðra fjölbreytta starfsemi eins og vörusýningar, körfubolta, maraþondans, hjólabretti, borðtennis og fleira. Hægt er að fá afnot af öllu húsnæðinu eða hluta þess, því auðvelt er að stúka það niður í minni einingar. Áhugasömum aðilum er bent á að hafa samband við skrifstofu Kolaportsins í síma 562 5030. Frá sýningunni „Sunnlenskt - Já takk fylgt í kjölfarið. Má þar t.d. nefna sjávarútvegssýningar, landshlutasýn- ingar og margar fleiri. „Kaupstefna Kolaportsins hafa yfir að ráða starfs- liði sem hefur sérþekkingu og mikla reynslu á þessu sviði. Slíkt tryggir vönduð vinnubrögð og gott skipulag í allri framkvæmd. I lok hverrar sýn- ingar alltaf gert gæðamat hjá þátttak- endum og það notað til að efla enn frekar gæði í skipulagi og fram- kvæmd.“ lUYIR MARKHOPAR OG FERSKLEIKI I KYI\IN- INGARMALUM Kolaportid aðakamkomustaður boraarinnar Þó Kolaportið sé auðvitað fyrst og fremst markaðstorg þar sem gestir fá meira fyrir krónurnar, virðist stað- urinn einnig þjóna mikilvægu fé- lagslegu hlutverki í borginni. Góð vinkona Kolaportsins, vel við aidur, hefur t.d. komið í heimsókn hverja einustu helgi frá byrjun, „að einni helgi undanskilinni þegar ég lá í lungnabólgu“ eins og hún orðaði það þar sem hún sat í kaffistofunni mitt í góðum hópi Breiðfirðinga. Einn starfsmanna Kolaportsins var að reka erindi þess í opinberri stofn- un þegar kona á besta aldri sem var að afgreiða hann sagði: „Guði sé lof fýrir Kolaportið. Fyrir nokkrum ár- um var mamma, sem nú er 92 ára, alltaf fárveik og sífellt á sjúkrahúsum eða í læknisheimsóknum. Nú skipt- ist fjölskyldan á að fara með henni í Kolaportið um helgar og hún fer varla til læknis lengur." Það má því kannski segja að Kolaportið sé einn- ig hálfgerð heilbrigðisstofnun. I Kolaportinu má oft sjá heilu ættar- mótin og algengt er að fólk hitti þar gamla vini og kunningja sem það hefur jafnvel ekki séð áratugum saman. „Ég hitti alltaf einhvern sem ég þekki, fólk úr borginni eða utan af landi,“ segir Ingólfur Viktorsson. „Þetta er einn aðalsamkomustaður borgarinnar um helgar. Ég kem hér mjög oft og finnst Kolaportið mikil upplyfting í borgarlifinu." Ónefnd hjón tóku undir með Ing- ólfi. „Við komum hér oft til að skoða mannlífið. Það er svo skemmtilegt að hér hittum við fólk sem við ann- ars mundum aldrei hitta. Það er eins og það hafi vantað rétta vettvanginn fyrir slíkt.“ LIFLEGASTI VETT- VANGUR MANN- LEGRA SAMSKIPTA Ólafur Gíslason skrifaði skemmti- lega grein í Nýtt Helgarblað í janúar 1992 undir fyrirsögninni „Ó tímar, ó hallir“ en þar sem hann sagði m.a. „Tökum til dæmis Seðlabankahúsið, eina fyrstu byggingu í anda postmó- dernismans á höfitðborgarsvæðinu. Undir þessari byggingu inni í Arnar- hólnum sjálfum var byggt eitt fyrsta mannvirki borgarinnar sem er svo postmódernískt að það sést ekki of- anjarðar. Enda ætlað fyrir bíla. Núna gengur þetta mannvirki undir nafn- inu Kolaportið og það er orðið að einum vinsælasta samkomustað fólksins í borginni. Um hverja helgi flykkjast þúsundir borgarbúa í þetta neðanjarðarhús til þess að sýna sig og sjá aðra og spá í viðskiptin. Kola- portið er orðið að einhverjum lífleg- asta vettvangi mannlegra samskipta á höíúðborgarsvæðinu og það þarf ekki nema að horfa í andlitið á fólk- inu þar til að sjá, að hér er allt á hreinu. Hér gengur enginn um með opinn munn. Rétt eins og fyrir til- viljun, og sannanlega án þess að arkitektinn eða patrónar hans hafi haft það í huga. Þessi saga sannar það eitt að arkitektarnir eru ekki ein- ir um að skapa borgarumhverfið.“ BKJRAÐIR VID INNGANGINN Bílageymslan í Arnarhól, þar sem Kolaportið var til húsa fyrstu fimm árin, var orðin of lítil fýrir sívaxandi fjölda gesta og algengt var að biðrað- ir mynduðust við innganginn á álagstímum. Jens Ingólfsson, fram- kvæmdastjóri Kolaportsins, segir að það hafi komið sér á óvart hversu vel menn tóku fjöldatakmörkunum og hafði jafnvel lúmskt gaman af að standa í biðröðinni. Notaiegt að setjast niður og fá sér kaffisopa. Á þessum tíma var algengt að um 20.000 gestir kæmu í Kolaportið um helgi, og samkvæmt skoðanakönn- unum sem ÍM Gallup gerði í árslok 1992 kom í ljós að 83% borgarbúa höfðu komið í Kolaportið og 73% allrar þjóðarinnar. Þegar spurt var um viðhorf fólks til Kolaportsins í 1200 manna úrtaki voru 84% já- kvæðir, 11% hlutlausir og aðeins 5% neikvæðir. í þremur könnunum sem ÍM Gallup hefúr gert fýrir Kolaportið, hefur komið í ljós að gestirnir eru nánast þverskurður þjóðfélagsins, en ungt fólk og konur virðast heimsækja markaðstorgið oftar en aðrir. Um 10% þjóðarinnar hefur prófað að selja í Kolaportinu. 30.000 GESTIR A HELGI Effir að Kolaportið flutti í Tollhúsið fyrir ári síðan hefur gestafjöldi ekki verið talinn enda óhægt um vik því fjórir inngangar eru á nýja staðnum. Kunnugum ber þó saman að fjöldi gesta hefúr aukist verulega og talið er að allt að 30.000 gestir komi um hverja markaðshelgi. Nýja húsnæðið er mun stærra en gamla bílageymslan og er um 3000 fermetrar að stærð. Nefna má að fjöldi sölubása er um 200 á nýja staðnum á móti 130 á þeim gamla. AM að 40.000 gestir koma á íförusýnmgar í Kobportmu GLÆStlLEG ADSTADA TIL VORUSYNINGA „Með tilkomu þessa nýja og rúm- góða 3000 fm markaðshúss Kola- portsins er komin einstök aðstaða til að halda vörusýningar hvort sem er einar sér eða samhliða markaðstorg- inu um helgar,“ segir Guðmundur G. Kristinsson, markaðsstjóri Kola- portsins. Hægt er að hafa sýningar- svæðið hrátt og einfalt eða með hefð- bundnu sýningarsniði, teppum á gólfi og hvítum sýningarveggjum, sérinngangi og afmarkað frá mark- aðstorginu. Húsnæðið hentar hvort sem er stærri eða minni aðilum til sýningarhalds, og má negfna sem dæmi annars vegar litla sýningu norsku bátsmiðjunnar Viksund sem nýlega var haldin í hliðarsal Kola- portsins, en þeir seldu hvorki meira né minna en ; fimm báta sem hver kostaði um 10 milljónir króna. Og svo má hins vegar nefna sýninguna „Börnin og framtíðin“ sem lands- samtökin Heimili og skóli stóðu að í febrúar á um 600 fermetra svæði og þótti takast mjög vel. Sýningar og kaupstefnur í Kolaportinu geta því verið mismunandi að stærð og um- fangi, allt frá því að taka um 100 fm pláss upp í að vera á um 1500 fm sýn- ingarsvæði." ÞEKKING OG REYNSLA SEM SKILAR ARANGRI Það þótti mörgum að ráðist væri á garðinn þar sem hann var hæstur þegar Kolaportið skipulagði fyrstu sýninguna á gamla staðnum, en það var tölvusýning þar sem flest af stærstu töivufyrirtækjum landsins sýndu vörur sínar með góðum ár- angri, en síðan hafa fjöldi sýninga, -1 'íin’tór. i uenni is Jíisig í(vjí ihlijj Guðmundur segir að sífellt sé verið að skoða nýjar leiðir til að halda ferskleika í kynningu og framsetn- ingu á vörusýningum. „Það er mjög hagkvæmt að vera með sýningar samhliða markaðstorgi Kolaportsins því að samgangur við markaðstorgið tryggir mikla aðsókn eða allt að 40.000 gesti á hverja sýningu. Með þessu fýrirkomulagi er einnig verið að höfða til nýrra markhópa sem ekki kæmu annars á tiltekna sýningu. Við leggjum einnig mikið upp úr allri kynningu og hún er yfirleitt unnin í samstarfi við stærri fjölmiðlafyrir- tæki. Markmiðiðið er að hver einstök sýning hafi sína sérstöðu og veki áhuga þeirra markhópa sem verið er að höfða til hverju sinni. Við viljum hvetja félagasamtök og aðra áhugasama aðila sem vilja efna til sýninga að hafa samband við okk- ur og kynna sér þá möguleika sem við höfum upp á að bjóða."

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.