Helgarpósturinn - 25.05.1995, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 25.05.1995, Blaðsíða 6
J^TOTMguX5y?ig{UI^ spjallað við Arnar Barðdal, sölustjóra hjá Seglagerðinni Ægi. Vándaðir á frábæru verði I Sumarportinu sem opið er virka daga kl. 12-18 er Seglagerðin Ægir að kynna tjaldvagna og fellihýsi. Við tókum Arnar Barðdal, sölu- stjóra í Seglagerðinni Ægi, tali og spurðum hann út í þá vöru sem þeir eru með. „Tjaldvagnarnir okkar eru mjög fljótir í uppsetn- ingu og Trigano Odissee vagninn er með áföstu fortjaldi sem kemur upp með einu handtaki. Það þarft einungis að bæta við tveimur styrktarsúlum. Eins og þið sjáið þá eru vagnarnir á ótrúlegu verði og næstum allt er innifalið. Tjaldið í vögnunum er 350 gramma Ten cate bómullardúkur, sá sami og við höfum notað í tjöldin okkar í 30 ár og er einn af bestu tjalddúkum sem völ er á í heiminum í dag.“ Hvemig er reynslan búin (w vera á vögnun- um? „Reynslan á Trigano tjaldvögnun- um undanfarin ár hefur sýnd að þeir standast íslenskar aðstæður fullkomlega og vel það. Þetta hefur sýnt sig bæði í miklum vindum og þegar er verið að draga vagninn ut- anvega. Hægt er staga þá niður með auka flippum sem eru á fastir, ef það blæs mikið. Undirvagninn er sterkur og traustur og hannaður á sama hátt og undirvagn undir felli- og hjólhýsunum. Fjöðrun er byggð á flexitorum og undir vagn- inum eru stór dekk, 10 eða 13 tommu. Tjaldvagninn er einnig búinn fullkomnum bremsu- og ör- yggis búnaði sem er bæði með handbremsu og þrýstibremsubún- aði.“ Hvemigeru vagnamir útbúnir? „Rúmaðstaða í tjaldvögnum er í góðri hæð frá jörðu og það er pláss fyrir allt að 6 manns. í vögnunum eru borð og bekkir og stórt og gott geymslurými, bæði undir bekkjum og á gólfi. Það er hægt að hlaða inn í vagninn, þó hann sé niður settur. Öllum vögnum fylgir stórt og gott fortjald með þykkum og sterkum súlum.“ Afhvetju segirþú að mikilvœgt se að tjald- vagninn sé útbúinn þrystibremsubúnaði? „Allir vagnar yfir 500 kg verða samkvæmt lögum að vera búnir bremsubúnaði. Okkar vagnar eru þó ekki nema 300 kg og síðan má hlaða í þá 200 kg aukalega af mat og öðru dóti sem tekið er með. Við teljum afskaplega mikilvægt örygg- isins vegna að allar vagnar sem við seljum séu útbúnir bremsubúnaði. Þetta á sérstaklega við hér á landi þar sem aðstæður eru oft öllu verri en annarstaðar í Evrópu. Við get- um tekið sem dæmi að ef ekið er niður brekku þá ýtir vagninn á bíl- inn með öllum sínum þunga og ef að snögghemlað er þá lengist bremsuvegalengdin verulega sé vagninn ekki búinn bremsubún- aði. Einnig er mun þægilegra að keyra með vagninn utanvega ef hann er búinn bremsubúnaði, hann heggur minna og ýtir ekki eins á bílinn.“ Hvemig er undirvagn- inn hannaður? Undirvagninn er úr heitgalvin- séröðu þykktu stáli og smíðaður í Þýskalandi. Gluggar eru þrefaldir með flugnaneti, glugga plasti og segldúk. Vagnarnir eru mjög stöð- ugir þegar búið er að láta niður fæturna. Tjaldið liggur vel niður að jörðu og bæði hægt að hæla og pinna það niður. Mögulegt er að opna fortjaldið á tveimur hliðum. Vagnarnir eru allir tvöfaldir, mjög hlýir, með fatahengi og hátt er til lofts í þeim. Odyssée, verð aðeins 318.000 kr. staðgreitt (hlífðatjald og sólskyggni er aukabúnaður) Océane, verð aðeins 298.000 kr. staðgreitt. Sannkölluö amerísk vöruveisla í Kolaportinu 27. maí til 5. júní ■opið alla daga vikunnar þennan tíma AMERISKU ENGLANDER HJÓNARÚMIN Á ÓTRÚLEGU VERÐI Það er svo sannarlega hægt að kalla það ameríska vöruveislu sem gestum Kolaportsins og Sumar- portsins verður boðið upp á dagana 27. maí til 5. júní. n.k. Þarna verða t.d. amerísku Eng- lander gæðarúmin í King og Que- en stærðum með yfirdýnu og und- irstöðum, en þau hafa verið gríðar- lega vinsæl í gegnum árin og eru ein mest seldu rúmin á íslandi í dag. Þessu frábæru rúm verða seld á sannkölluðu „ameríkuverði". EVROPUFRUMSYNING A AMERÍSKUM SÓFASETTUM í amerísku vöruveislunni verða frumsýnd ný og glæsileg sófasett á einstöku verði. Tveir þriggja sæta sófar og einn stóll á kr. 99.000,-. Einnig verður boðið upp á fallegu stofuborðin með marmaralíki og ________________________ _____ Stofu- ^ ¥1 WKKWBi skápana frá Po- w e I I , loftviftur með Ijós- um, am- e r í s k a lampa, hinar heims- frægu Austin styttur og mikið úrval af öðrum húsgögnum. „0RIGINAL“ 501 LEVI’S GALLABUXUR OG NÝI JORDAN #45 BOLURINN Einnig verða þarna gjafa- geymslubox í hundraða tali, Disney barnaplaköt, gjafavörur, amerísk krem og snyrtivörur og margt fleira. Ekki má heldur gleyma heimsþekktum fatnaði frá Nike, Starter, Reebok, íþróttafatnaður frá Champion (Shaq, Hardawai, Pippen og einnig nýi Jordan #45 bolurinn) og original LEVI’S 501 gallabuxur frá kr. 4500,-. NY SPORTLINA FRA DISCUSS ATHLETIC OG RAY BAN SÓLGLERAUGU Þá verður þarna að finna nýja sportlínu frá Discuss Athletic s.s. bómullarbuxur, peysur og jogginggalla á verði sem á engan sinn líka hér á landi, mikið úrval af annarri vöru s.s. tjalddýnur, körfubolta, hatta, húfur, joggingbuxur og peysur. Einnig verðum við með hin heimsfrægu Ray Ban sólgleraugu á frábæru verði og þá bæði sportgleraugu og bílstjóragleraugu. Allt sem þarna verður boðið upp á er hátískuvara sem öll á að seljast. Ameríska vöruveislan einnig í Sumarportinu virka daga kl. 12-18. Eins og kemur fram hér að ofan þá verður mikið um að vera á amerísku dögunum hjá Kolaportinu og örugglegaþess virði að koma skoða þetta mikla úrval af ameriskri vöru sem þarna verður boðið upp á á verði sem á engann sinn lika. Til að gera þetta enn skemmtilegra kemur þjóðlagatríó í heimsókn á sunnudeginum 28. maí og tekur ameríska þjóðlagasöngva fyrir gesti. Við minnum síðan á að ameríska vöruveislan er ekki bara um helgar því að hún verður í Sumarportinu sem opið er á virkum dögum þessa viku kl. 12-18 og aðrir seljendur eru þar að bjóða ótrúlegt úrval af vöru á frábæru verði. Hvað getur Kolaportid gert fyrir þig? ÞAÐ ER IUÆSTUM HÆCT AÐ SEUA HVAD SEM ER Á MARKAÐSTORCI KOLAPORTSINS! Kolaportið býður upp á óendan- lega möguleika til tekjuöflunar. Það er auðveldara en margir halda að skapa sér aukapening með sölu á markaðstorginu og þeir sem hafa prófað, koma aftur og aftur. Fyrir suma er það mikið mál að að hefja sjálfstæðan at- vinnurekstur, en það er líklega hvergi einfaldara og betra að byrja en í Kolaportinu. Markaðstorg Kolaportsins er góður valkostur fyrir þá sem vilja ná sér í aukapening eða langar að starfa á eigin vegum, vilja byrja smátt og auka síðan jafnt og þétt við sig. Hér finnur þú nokkra af þeim Qölmörgu möguleikum sem Kolaportið býður upp á. 1. Kompudótið Einfaldasta aðferðin til að selja í Kolaportinu er að taka til í fata- skápnum og geymslunni, mæta með kompudótið í Kolaportið og taka góða skapið með. Reglan að henda engu gildir svo sannarlega í Kolaportinu því að eins manns drasl, er annars manns fjársjóður. Þegar geymslan er uppurin, er oft næsta skrefið að ræða við vini og kunningja og bjóðast til að taka til í geymslunni hjá þeim. 2. Umboðssala Hér á landi er að finna fjöldann allan af innflytjendum, verslun- um og framleiðendum sem margir sitja uppi með gamla vöru sem safnað hefur ryki. Taktu upp símaskrána og hringdu í þessa að- ila eða heimsæktu þá og ræddu málið. Segðu þeim að þú sért heimsins besta sölumanneskja og viljir gjarnan selja fyrir þá í um- boðssölu gegn prósentu. Athuga má líka í dagblöðum þar sem auglýstir eru gamlir lagerar til sölu. 3. Kaupmennska Það er mikið mál að opna verslun í t.d. Kringlunni eða við Lauga- veginn. Það þarf að finna hús- næði, gera leigusamning, ráða starfsfólk, innrétta verslunina, kaupa inn vörur og auglýsa síðan upp fyrirtækið til að ná til við- skiptavina. Síðan þarf að halda versluninni opinni sex daga í viku hverri og vera vakandi fyrir rekstrinum allan sólarhringinn. í Kolaportinu er aðstaðan fyrir hencfi þegar þér hentar, við- skiptavinirnir eru mörgum sinn- um fleiri og þú sleppur við að auglýsa. Þú vinnur aðeins tvo daga í viku og selur jafnvel meira þessa tvo daga en þú mundir gera alla sex dagana á öðrum stað. Þú getur tekið frí þegar þér hentar og auðveldlega skipt yfir í aðra vöru ef salan hefur dofnað. 4. Heimilisiðnaður Það er oft gott ráð að tala við ein- hvern sem prjónar eða saumar í fjölskyldunni og gera samning við viðkomandi um að koma ein- hverju af heimilisiðnaðinum í verð. Ef að þú þekkir einhvern sem er liðtæk/ur á járn eða tré má semja við viðkomandi um að smíða nokkra list- eða nytjamuni og hafa í bland við aðra vöru. 5. Sala á matvcelum Matvæli hafa oft verið góð sölu- vara í Kolaportinu, en við höfum þó reynt að ráðleggja fólki og passa að ekki séu alltof margir að selja sömu vöruna. Seljendur á matvælum eru háðir þeim regl- um sem heibrigðiseftirlit setur um sölu á þeim. Kælivara þarf að vera í kæli, frystivara í frysti o.s.fv.. Einnig þurfa vörur að vera rétt merktar. Sala á heimabakstri er t.d. ekki heimil nema um sé að ræða félagsamtök og alltaf þarf leyfi heilbrigiðseftirlits. Vinsam- lega hafið samband við heilbrigð- iseftirlitið í síma 623022 og fáið nánari upplýsingar varðandi sölu á matvælum. HVERNIC Á SVO AÐ BYRJA? Þú hringir á skrifstofu Kola- portsins í síma 625030 leggur inn pöntun fyrir þá daga sem þú ætl- ar að selja á í Kolaportinu.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.