Helgarpósturinn - 25.05.1995, Síða 7
Fl Ivl M'Tla 0WG UJ R
Kompudagar á langri
UppstigningardacL föstudag,
laugardag og sunnudag.
Allir markaðsdagar eru kompudagar
í Kolaportinu, en öðru hverju efnir
Kolaportsfólk til sérstakra kompu-
daga og er þá gefinn stór afsláttur á
básaleigu þeirra sem selja notaða
muni. Að þessu sinni er helgin
óvenju löng fjórir dagar frá uppstign-
ingardegi á fimmtudag, föstudag,
laugardag og sunnudag.
Verð sölubása verður aðeins 1200
krónur á fimmtudag og föstudag og
1800 krónur á laugardag og sunnu-
dag. Föstudagurinn verður reyndar
sérstaklega tiieinkaður Vesturbæing-
um og er liður í margvíslegum hátíð-
arhöldum við höfnina í sambandi við
Sögu- og menningarhátíð í gamla
Vesturbænum, sem borgaryfirvöid
standa fyrir.
VAIUTAR ALLTAF
KOMPUDOT
„Kompudótið er alltaf vinsælt og við
fáum aldrei nóg af slíkum seljendum
til okkar,“ segir Guðmundur G.
Kristinsson hjá Kolaportinu. „Með
þessum fjórum kompudögum um
helgina erum við að hvetja fólk til að
hreinsa til hjá sér og gera sér pening
úr gömlu dóti. Það finnst flestum
gaman þegar fóik lætur verða af
þessu, ekki síst börnum og ungling-
um, og ánægjulegt að sjá fólk jafnvel
fá tugþúsundir króna fyrir dót sem
annars hefði kannski lent á haugun-
EIIUS MAIUIUS DRASL
ER.ANIUARS MAIUIUS
FJARSIODUR
Einn af bestu gestunr Kolaportsins er
Magni í Frímerkjabúðinni. Hann
mætir gjarnan snemma á morgnana,
heilsar upp á fasta seljendur og aðra
kunningja, en kompudótið á hug
hans allan og hann segist oft finna
skemmtilega muni í Kolaportinu.
Magni segir að núorðið átti margir
sig á því að verðmæti geti legið í
„gömlu drasli“, en þó lendi því mið-
ur allt of mikið á haugunum. Hann á
það til að leiðbeina nýjum seljendum
um verðlagningu og þá gjarnan ef
honum finnst verðlagningin alltof
lág.
VERÐIÐ HÆKKAÐI OG
LÆKKAÐI
Fríða Björnsdóttir blaðamaður skrif-
aði skemmtilega grein sem birtist í
Vikunni 1993, þar sem hún lýsti
reynslu sinni af kompusölu í Kola-
portinu. Þar segir hún m.a.: „... Þetta
voru engir peningar en nú hafði
sölufíknin náð tökum á okkur
mæðgum og verðið skipti ekki lengur
máli, svo lengi sem hlutirnir seldust.
Við virtum fyrir okkur viðskiptavin-
ina og verðið hækkaði og lækkaði
eftir því hverjir spurðu.... Ég kom
undurfallegum postulínskisum og
öðru álíka fyrir frernst á söluborðinu
og sá strax að þar náði glingrið aug-
um yngstu gestanna. Áður en varði
voru allar postulínskisurnar horfnar
og í staðinn komnir seðlar í veskið
mitt Tilganginum var náð, þótt ef til
vill væri réttara að þegja yfir þessari
„óprúttnu" sölumennsku.“
ÞAU KUNNA AÐ
PRUTTA
Gefum Fríðu aftur orðið þar sem
hún segir frá Rússunum og öðrum
útlendum viðskiptavinum: „Munur-
inn á þeim og okkur Islendingunum
er sá að þeir vita til hvers staðir eins
og Kolaportið eru. Þar á að prútta og
það gera þeir svo sannarlega, á með-
Oli í Kaffi Sælu
Ólafur Ásgrímsson tók við veitinga-
rekstrinunr í Kolaportinu þegar
markaðstorgið flutti í Tollhúsið fyrir
ári síðan. „Eg sá auglýsingu frá Kola-
portinu í Mogganum einn sunnu-
daginn þar sem veitingasalan var
auglýst laus til umsóknar og ákvað að
slá til,“ segir ÓIi. „Fyrstu helgina ætl-
uðum við að vera tvö í rólegheitum
að selja kaffi og gos, og smyrja brauð
fyrir gesti eftir hendinni. Nema hvað
að við urðum að kalla út aukalið
strax fyrsta morguninn, vorum sex í
afgreiðslu og höfðum ekki undan.“
UR MALNINGAVINN-
UNNI I VEITINGA-
REKSTUR
Óii hafði verið í málningavinnu í sjö
ár og langaði að breyta til. „Nú á veit-
ingareksturinn hug minn allan og
mig langar helst að vera í þessu alla
daga. Ég hef verið að þróa veitinga-
söluna stöðugt og bjóða upp á sífellt
fjölbreyttara úrval veitinga. Fljótlega
byrjaði ég með fylltar franskar
pönnukökur, nýlega fór ég svo að
bjóða samlokur og franskar, og það
nýjasta er djúpsteiktur fiskur með
frönskum. Og svo passa ég mig á að
hafa verðið í lágmarki.“
RETTA KAFFIÐ
Helstu byrjunarörðuleikarnir hjá Óla
var að finna rétta kaffið fyrir kúnn-
ana sína. „Ég var búinn að prófa
margar tegundir en var aldrei nógu
ánægður fyrr en ég leitaði til Gevalia.
Óli í Kaffi Sælu á fullri ferð.
Þeir sendu mér í hvellinum hörku-
konu, Kristínu Birnu, sem kenndi
mér ekki bara að búa til gott kaffi
heldur bókstaflega umbylti öllu hjá
mér. Nema hvað að kaffisalan marg-
faldaðist hjá mér eftir að ég fór að
nota Gevalia, og eins gott hvað Hlöð-
ver þjónustustjóri er lipur og greið-
vikinn því ég þurfti oft að leita til
hans um helgar og á nóttu sem degi
hefur hann reddað mér um meiri
birgðir af kaffinu.“
Kompudótið er alltaf vinsælt í Kolaportinu.
an íslendingarnir spyrja um verð og
kaupa eða kaupa ekki. Mikill fjöldi
austurlenskra kvenna var í Kolaport-
inu þennan dag. Konurnar kornu og
spurðu um verð og undantekningar-
laust buðu þær að minnsta kosti
helmingi minna en það sem upp var
sett. Stundum gátum við sæst á verð-
ið, stundum ekki. Manninum mín-
um þótti ég þó gera hvað best þegar
mér tókst að selja einni.og sömu
konunni tvær hvítar regnhlífar,
reyndar fyrir aðeins hundrað krónur
stykkið en það var ekki málið.“
Og Fríðu gekk ljómandi vel eins og
seinna kom fram í greininni: „Það
var komið að leikslokum á sunnu-
dagssíðdegi. Hreinn hagnaður nálg-
aðist þrjátíu þúsund krónur og eigin-
maðurinn varð að játa sig sigraðan .“
ÞRJÁR GULLIUAR
REGLUR
Þegar fólk selur kompudót í Kola-
portinu er gott að hafa þrjár reglur í
huga, að henda engu og koma með
sem fjölbreyttastan varning, að setja
upp frekar hátt verð í byrjun á með-
an fólk er að átta sig á verðmætinu,
og síðast en ekki síst að mæta í góða
skapinu og hafa gaman af. Skemmti-
legast er að fjölskyldur, saumaklúbb-
ar eða vinahópar taka sig saman um
að selja kompudótið sitt. Þá veitir
fólk hvert öðru stuðning og skemmt-
ir sér enn betur. Varasamt er hins
vegar að vera margir um einn sölu-
bás, því reynslan hefur sýnt að salan
minnkar ef margir eru saman um
plássið og viðskiptavinirnir komast
jafnvel ekki að.
SUMARPORTIÐ í HÚSI KOL APOR TSINS
Ótrúlegt úrval af vöru með allt a« 3 70% B Fsl . lætt SsSÍ&S&M: **„v i
Gæðamatvæli
Fiskur -1 Síld - Lax
ð - Grænnu
09 ótal margt fleira.
í Sumarportinu standa framleið#idurnir
sjdlfir d bak vió söluborðið. Meó því að
versla beint frd framleiðanda tryggirðu
þér hdmarksgœði og hagstœtt verð.
vöruveisla
★ ★ ★ ★ 27. maí til 5. júní
"vr Evrópufrumsýning
ú amerískum sófasettum
Amerísku Englander rúmin
■fe Original 501 LEVI'S gallabuxur
/y Nýji Jordan #45 bolurinn
Einnig mikið úrval stofuskópa, stofuborða
viftuljósa, lampa, Austin stytta ósamt
fatnaði frá Reebok, Nike, Champion og
fleirum á sannkölluðu ameríkuverði.
C
&
ISLADISKA
UTSALA
Verð frá
kr. 199,-
Létt rokk, popp, hipp-hopp, sveitatónlist,
þungarokk, klassísk, melódísk sígild,
íslensk sem erlend tónlist í miklu úrvali.
Fjöí[>r^^^[s^ewmtTÍe^t
HJÓLHÝSI - TJALDVAGNAR
SUMARBÚSTAÐAVARA
ANTIKVARA - BÁTAR
LEIKFÖNG - GJAFAVARA
AUSTURLENSK VARA
SKARTGRIPIR - MYNDBÖND
FATNAÐUR - HANNYRÐAVARA
SET-
LAUGARí
SUMAR
PORTINU
(Sumarportinu, sumar-
markaði Kolaportsins sem
opinn er alla virka daga
kl. 12-18, er að finna
merkilega setlaug frá
Norm-x í Garðabæ. Sævar
Svavarson stofnaði fyrir-
tækið 1981 fyrst og
fremst til að þjóna sjávar-
útvegi með framleiðslu
fiskikara en einnig voru
þó ýmsir aðrir hlutir fram-
leiddir svo sem stór fóður-
síló sem steypt voru í
tveimur hlutum.
Einhverju sinni var Sæv-
ar á rölti um athafana-
svæði fyrirtækisins og
kom þá auga á lok af fóð-
ursilói og hugmynd sló
niður í kollinn á honum.
Þetta leit út eins og ein-
faldur „heitur pottur" eða
setlaug sem voru þá að
ryðja sér til rúms hér á
landi. „Mérvitanlega hafa
slíkar setlaugar hvergi
annars staðar verið fram-
leiddar úr polythelene
með hverfisteypuaðferð,"
segir Sævar Svavarsson.
„En ég ákvað að prófa að
þróa þetta og reynslan
Einu setlaugar
sinnar tegundar í
heiminum.
hefur sannast að segja
verið frábær. Hefðbundn-
ar setlaugar hafa verið
gerðar úr akrýl með miklu
dýrari framleiðsluaðferð-
um. Það var því strax Ijóst
að við gátum boðið betra
verð og 15 ára reynsla
hefur sýnt að okkar set-
laugar hafa marga eigin-
leika fram yfir acryl-pott-
ana."
Guðmundur Guð-
mundsson verkfræðingur
og tæknilegurfram-
kvæmdastjóri hjá Norm-x
segir mjög erfitt og oft á
tíðum útilokað að gera við
skemmda akrýl-potta.
Hins vegar sé tiltölulega
auðvelt að gera við Norm-
x-laugarnar, því efnið í
þeim hefur allt aðra eigin-
leika en akrýl.
Á þessum 15 árum
hafa verið seldar á annað
þúsund setlaugar og gerð-
ar hafa verið tilraunir með
útflutning til Kaliforníu
sem lofað hafa góðu. Nú
framleiðir Norm-x 4 mis-
munandi gerðir og stærðir
setlauga, og hægt er að
fá þær í næstum hvaða lit
sem er.