Helgarpósturinn - 14.12.1995, Blaðsíða 2
2
HP spyr
Finnst þér að
verkalýðshreyfingin
œtti að grípa til svip-
aðra aðgerða og í
Frakklandi?
Sigfús Sigurðsson
atvinnurekandi:
„Já, endilega."
Jóhann Hjaltason
Háskólanemi:
„Nei.“
Sigurgeir Sigmundsson
tónlistarmaður:
„Mér finnst verkalýðs-
forystan hafa verið fulll-
in að ná fram kröfum
þeirra iægst launuðu."
Guðveig Eyglóardóttir
afgreiðslustúlka:
„Nei, mér finnst þetta
algjör klikkun í
Frakklandi.“
Kristín Ásta
Kristinsdóttir módel:
„Ég hef ekki fylgst nógu
grannt með fréttum
undanfarið.“
Ari Jóhannesson,
starfsmaður Samein-
uðu þjóðanna:
„Nei, ég held við verð-
um að trúa á þjóðarsátt
svolítið lengur. Verka-
lýðshreyfingin þarf
uppstokkun áður en
farið er út í slíkar að-
gerðir."
Nína Elísabet Sandberg
leikskólakennari:
„Kannski ekki alveg svo
hörkulegra aðgerða.1'
2bw rtf
FIMIVmiDAGUR 34. DESEMBER1995
Reiðisöngvar eins og Kríp og Ekkert munu á föstudagskvöld hljóma læf — í fyrsta sinn í meira en
áratug — í flutningi pönkgoðanna EBIýjar og Gunnþórs í Q4U — en núna í forvarnarskyni
Slípaðir pönkarar
að heyrir til tónlistarlegra tíðinda að
annað kvöld ætlar pönksveitin Q4U
með Elínborgu Halldórsdóttur (Ellý)
fremsta í flokki að troða upp í Lofkastalan-
um. Q4U var fyrir fimmtán árum ímynd
árásargirni og sýniþarfar, er hún það enn?
„Nei djísus," hrópar Ellý upp yfir sig. „Þó að
ég sé enn sami gamli pönkarinn í mér er ég
miklu slípaðri pönkari en áður, enda orðin
fimmtán árum eldri; búin að fara í meðferð
og orðin margra barna móðir.“
Endurkoman á föstudag er upphaf for-
varnarátaks sem Mótorsmiðjan kom á
koppinn í samvinnu við meðferðarbatter-
íið, Landlækni og forvarnardeild lögregl-
unnar, en auk Ellýjar kemur fram kollega
hennar, Gunnþór Sigurðsson bassaleikari.
Þau tvö, ásamt Kormáki Geirharðssyni
trommara, voru í grúppunni frá upphafi til
enda; bæði í fyrri útgáfunni, sem þótti
óvandaðri, og þeirri seinni, sem þótti spila
meira gæðapönk þótt ekki yki það vinsæld-
ir hennar.
Eru menn barasta hœttir að vera reiðir?
„Nei, nei... við erum enn reið, en þó
kannski yfir öðrum hlutum en áður. Þú skil-
ur, við „create the mood“, eins og allir góð-
ir listamenn gera, en nú í þeim tilgangi að
efla forvarnir. Við vorum þó ekki nein börn
þegar við fórum að neyta annarra vímuefna
en áfengis."
Áhyggjur Ellýjar og annarra sem að tón-
leikunum standa beinast með öðrum orð-
um að því hversu ungt það fóik er sem hef-
ur neyslu harðra efna. Það segir Ellý svo
leiða af sér innbrot og fleira, því ungt fólk
eigi eðlilega ekki mikla peninga.
Q4U gerði ein sjötíu lög, sem væntanlega
verða ekki spiluð öll í einu í Loftkastalan-
um. En það kemur þó ekki endilega að sök,
því Ellý tekur ekki fyrir að meira muni heyr-
ast í reiðipönksveitinni í framtíðinni.
Bjöm Ingi og Stöð 3 keppa við Bjama Fel
Fótbolti er lífið sjálft," segja margir og víst
er að ófáir hafa kæst úndanfarna daga yf-
ir fjölgun beinna útsendinga frá fótbolta-
leikjum í Evrópu og mesta og helsta vígið er
formlega fallið: sjálf enska knattspyrnan. Sá
bolti rúllar nefnilega ekki lengur í einkaeign
Bjarna Fel og Amars Bjömssonar hjá RUV,
eða hvað? „Neinei, nú er einkaframtakið
líka komið með skemmtilegasta fótbolta í
heimi og Stöð 3 sýnir þannig í framtíðinni
að minnsta kosti einu sinni í viku beint frá
ensku knattspyrnunni. Og margir ættu að
hafa áhuga á leiknum sem við erum með á
sunnudaginn, þar sem mætast stórliðin Li-
verpool og Manchester United á Anfield í
Liverpool,“ sagði Bjöm Ingi Hrafnsson,
sem hefur yfirumsjón með enska boltanum
á Stöð 3, í stuttu spjalli við Helgarpóstinn.
Hann telur umskiptin í útsendingum frá
Englandi stórtíðindi fyrir alla íslenska
knattspyrnuáhugamenn: „Enska knatt-
spyrnan er einfaldlega einstök í sinni röð og
hver einasti fótboltaáhugamaður hér á
landi á sér sitt uppáhaldslið; hvort sem það
er QPR, Manchester United, Leeds, Li-
verpool, Arsenal eða einhver annar klúbb-
ur. Þarna eru flest mörkin skoruð og hrað-
inn í deildinni er mun meiri en gengur og
gerist annars staðar í heiminum. Enda er
oft talað um ensku knattspyrnuna sem
knattspyrnu fyrir áhorfendur, því þeir eru
jú komnir til að sjá mörk og aftur mörk.“
Stöð 3 hefur keypt réttinn til að sýna
beint frá leikjum í ensku knattspyrnunni á
sunnudögum og mánudögum. „Samningur-
inn tekur bæði til deildar- og bikarleikja. Til
að byrja með verður þó oftast um sunnu-
dagsleiki að ræða. Sá möguleiki er þó ávallt
fyrir hendi að sýna mánudagsleiki beint, ef
um stórleiki er að ræða,“ sagði Björn Ingi.
Hann kvað sunnudagsútsendingar Stöðvar
3 frá ensku knattspyrnunni ekki árás á
gamlar laugardagshefðir tengdar boltanum
— svo sem heimsóknir á Rauða ljónið. „Alls
ekki. Þetta er einfaldlega tímanna tákn og
Bjarni Fel hlýtur að taka þessu fagnandi
eins og allir aðrir. Því meiri fótbolti, þeim
mun betra. Þá fer fólk bara að velja það
Jim Cartwright
höfundur sumarverks
Borgarleikhússins
Leikskáldið Jim
Cartwright
hefur notið fá-
dæma vinsælda
hér á landi. Leikrit
hans, Taktu lagið
Lóa, hefur þannig
gengið fyrir fullu
húsi á 93 sýning-
um í Þjóðleikhús-
inu. Strœti eftir
Cartwright var
einnig gríðarlega
vinsælt á Smíða-
verkstæðinu með
þá Ingvar Sigurðsson og Baltasar Kormák í
aðalhlutverkum. Ofan á allt saman er síðan
uppselt framyfir áramót á Bar-par á Leyni-
bar Borgarleikhússins. Hittir semsagt beint
í mark hjá landanum, þessi Jim Cartwright.
í ljósi vinsælda mannsins og verka hans
ætti það því að kæta leikhúsgesti að hann
lauk nýverið við
leikrit sem nefnist
Stone Free og verð-
ur það frumsýnt á
West End í London
í vor, en undirtekt-
ir á forsýningum
lofa góðu.
Skemmst er frá því
að segja að leikrit
þetta var tilnefnt
til virtra verðlauna Samtaka breskra leik-
húsframleiðenda, TMA, sem besta nýja leik-
ritið. Eins og við var að búast hefur verið
samið um uppsetningu verksins hér heima
í Borgarleikhúsinu. Kvisast hefur út í leik-
húsheiminum að undirbúningur sé kominn
á fullt og valinn maður verði í hverju rúmi.
Hvað annað. Frumsýningardagur hefur ver-
ið ákveðinn 12. júlí og því glögglega ljóst að
þarna er komið sjálft sumarverkefni Borg-
arleikhússins.
besta úr og enska knattspyrnan hefur á
heildina litið vinninginn."
En með hvaða liði í ensku knattspyrnunni
heldur svo lýsandinn sjálfur? „Tottenham
Hotspur er mitt lið í deildinni og hefur verið
síðan Glen Hoddle lék með þeim. Þar hafa
margir stórkostlegir knattspyrnumenn spil-
að, til dæmis Gary Lineker, Paul Gasco-
igne, Jurgen Klinsmann — og auðvitað
Guðni Bergsson,“ sagði Björn Ingi Hrafns-
son, sem ætlar í vetur að reyna sig við þá
bestu í sjónvarpslýsingum frá ensku knatt-
spyrnunni (og reyndar þá einu): Bjarna Fel
og Arnar Björns.
Nýi Bond-
inn drekkur
bremjsa
meðAma
Ikvöld, fimmtudags-|
kvöidið 14. mars, stát-|
ar Dagsljós af skemmti-l
Iegu einkaviðtali Árnal
Þórarinssonar kvik-|
myndaspekúlants viðl
nýja James BondinnJ
sjálfan Pierce Brosnan.l
Viðtalið var tekið á er-l
lendri grundu og munl
vera í ítarlegri kantin-| _____
um. Annað við þetta viðtal er svo sem ekki
ýkja merkilegt nema ef vera skyldi það
uppátæki Árna að draga alíslenska brenni-
vínsflösku úr pússi sínu í miðju viðtali og
bjóða sjarmatröllinu að smakka. Sam-
kvæmt öruggum heimildum blaðsins líkaði
Brosnan vel við brennsann þótt ekki hafi
fregnast af magnpöntunum. Gretturnar
voru altént karimannlegar — enda maður-
inn íri í húð og hár. Það var Marteinn Þóris-
son sem sá um samsetningu viðtalsins...
Ólgavegna
fyrirhugaðs
reykingabanns
á Stöð 2
Samkvæmt öruggum heim-
ildum HP liggja nokkrar
uppsagnir í loftinu á Stöð 2
vegna fyrirhugaðs reykinga-
banns sem á að taka þar gildi
um áramót. Eftir því sem næst
verður komist hefur Agnes Jo-
hansen, umjónarmaður barna-
efnis á Stöð 2 og einn reynd-
asti starfsmaður fyrirtækisins,
þegar lagt fram uppsagnarbréf
með nokkurra síðna greinar-
gerð þar sem hún gagnrýnir
meðal annars „gerræðisleg
vinnubrögð" stjórnarinnar í
þessu máli. Þeir sem eru heit-
astir á fréttastofu Stöðvar 2
vegna bannsins eru Heimir
Már Pétursson, Sigursteinn
Másson og Óli Tynes, sem
einnig mun hafa lýst óánægju
sinni í greinargerð til stjórnar
fyrirtækisins.
Vegna alls hitans í málinu
hefur Jóhann Ingi Gunnars-
son sálfræðingur verið ráðinn
til að freista þess að leysa inn-
anhússvandann. Ekki fögnuðu
allir þeirri ráðstöfun og eftir
því sem HP kemst næst mun
Heimir Már hafa sagt, þegar
hann heyrði af sálfræðingnum,
eitthvað á þá leið að í Rúss-
landi hefði fólk forðum verið
sent á geðveikrahæli, núna
hleyptu þeir sálfræðingi á lið-
ið!
Ólgan mun að miklu leyti
stafa af könnun sem gerð var
meðal alls starfsfólks Stöðar 2
í sumar, þar sem fram kom að
um 80 prósent starfsmanna
væru mótfallin banninu. Enn-
fremur liggi ekkert fyrir annað
en innantóm orð um að leysa
eigi vanda þeirra sem reykja
og ætla sér ekki að hætta, þrátt
fyrir bannið.
Dagskrárstjóri Stöðvar 2,
Páll Baldvin Baldvinsson,
vildi ekki tjá sig um málefni
einstakra starfsmanna stöðv-
arinnar.
Sverrir Ólafsson, mynd-
höggvari og fyrrverandi
framkvæmdastjóri Lista-
hátíðar Hafnarfjarðar.
Hann og nokkrir kollegar
hans úr listamannakreðs-
unni hafa stofnað með sér
hinn skáldlega félagsskap
Dead Meat Society, sem
auk þess að bera vott um
frjótt hugmyndaflug er
merki um smáiðnað sem
er Kvennalistanum að
skapi. Félagsskapurinn,
sem í eru leikarar, mynd-
listarmenn og bæjarritar,
svo dæmi séu tekin, gefur
fjöidaframleiddri
kjötvinnslu langt nef og
stendur að eigin vinnslu,
eða reykingu úrvalskjöts
að fyrirmynd Kvennafræð-
arans, sem kom út á síð-
ustu öld. Félag hins dauða
kjöts fremur verknað sinn
á hangikjöti, bjúgum og
svíni í jarðhúsi í námunda
við Álverið. Þessi framsýni
hljómar ekki bara eins og
góð kvennafræði frá síð-
ustu öld heldur líka sem
nútímaleg pólitík Kvenna-
listans, sem boðar margt
smátt fremur en eitt stórt
Álver í Straumsvík.